Frímann - Golfklúbbur Frímúrara

Frímann - Golfklúbbur Frímúrara

Share

FGF Frímann golfklúbbur Frímúrara er ætlaður frímúrarabræðrum og mökum þeirra. Frímann Golfklúbbur Frímúrara, skammstafað FGF.

Tilgangur og markmið FGF er að glæða og viðhalda áhuga frímúrara og fjölskyldna þeirra á golfíþróttinni. FGF stendur fyrir golfmótum og annarri
félagsstarfsemi sem tengist íþróttinni og stuðlar að tilgangi og markmiðum klúbbsins.
Öllum bræðrum innan Frímúrarareglunnar á Íslandi, mökum þeirra og niðjum er heimill
aðgangur að FGF.

21/08/2026

Blessaðir bræður
Þá er komið að því;
Einvígi Oddfellowa og Frímúrara 2026

Oddfellowbræður og Frímúrarar halda sitt árlega Einvígi í golfi á Urriðavelli föstudaginn 4. september nk.

Keppnisform er Greensome tveir í liði þar sem að hámarki 25 lið frá hvorum mætast (100 keppendur).

Opnað verður fyrir skráningu í Einvígið 22. ágúst kl. 13:00. Skráningu lýkur 3. september kl. 15:00.

Aðeins verður tekið við skráningum í gegnum Golfbox-forritið. Við skráningu þarf að reiða mótsgjald, kr. 15.000 sem er það sama og 2025 -
Skrá þarf leikmann og meðspilara á sama tíma.
​Innifalið í gjaldinu er:
Súpa og brauð fyrir hring. Mótsgjald og Gúllas eftir hring.
Ath: Það þurfa tveir að skrá sig saman sem lið.
Ef þú hefur ekki meðspilara þá getur þú sent póst á [email protected] og taka fram fyrir hvort þú ert Oddfellowi eða Frímúrari og við reynum að koma mönnum saman.

Einungis 50 Oddfellowar og 50 Frímúrar geta skráð sig. Fyrstur kemur fyrstur fær.

ATH: Ekki er hægt að fá mótsgjald endurgreitt ef afskráning fer fram eftir kl:18:00 þann 31. ágúst.

Afskráningar og öll önnur samskipti við mótsstjórn fara fram í gegnum [email protected]

Dagskráin er hefðbundin,
· Byrjum á súpu og brauði -
Gott að vera kominn í skálann eftir upphitun um kl.11:30,
· Keppendur verða sendir á teiga kl:12:45.
Skorkort afhent inn í skála.
· Ræst verður út af öllum teigum kl.13:00.
Baldur þenur flautuna á þjónustubílnum.
Endum daginn á Gúllas með öllu gómsætu meðlæti
Verðlaunaafhending að loknu móti.

Glæsileg verðlaun í boði fyrir góðan árangur.

Mótsstjórn: Valdimar Júlíusson, Trausti Víglundsson og Þórður Ingason frá Oddfellowum. Baldvin Ómar Magnússon, Guðmundur R Magnússon og Ari Þórðarson frá Frímúrurum.

Keppnisskilmálar:
Einvígið er holukeppni - þar sem tveir frá Oddfellowum og tveir frá Frímúrurum keppa í hverjum leik. Þeir sem vinna fleiri holur skila einum vinningi fyrir sitt lið í hús og ef það er jafnt þá fá bæði lið hálfan vinning.
Svo er keppt í Greesome milli allra keppanda og er keppt í punktakeppni með forgjöf.

Sjáumst hressir.

06/07/2026

Eru vandræði með afsláttarmiða (Voucher) ?

Langflestir hafa fengið afsláttarmiðana sína í GolfNext appið.

(sjá nánar hér fyrir neðan).

Einhverjir hafa þó ekki fengið þetta og fyrir því geta verið ýmsar ástæður, svo sem nýskráning í FGF, Golfbox númer var ekki fyrir hendi eða rangt fyrir þann 15. júní. Þá geta verið aðrar ástæður sem klúbbarnir gætu jafnvel útskýrt.



Þeim sem ekki hafa fengið sína afsláttarmiða er bent á að hafa samband við þann golfklúbb þar sem þeir hyggjast spila á, og óska eftir að fá afsláttarmiðan sendann.

Úthlutun afsláttarmiða er í höndum klúbbanna en ekki FGF. ​​
Kveðja
Stjórnin

26/06/2026

Blessaðir bræður

Fann einhver bróðir kylfu, sem er sárt saknað, frá bræðramótinu á Hellu, um er að ræða 8 járn með grafit skafti af gerðinni king cobra.
kveðja
Frímann

16/06/2026

Landsmót Frímúrara verður haldið á Golfklúbbi Leynis Akranesi Laugardaginn 18.Júlí.
Ræst verður frá kl.08:00 - 14:00 frá 1.teig.
ATH. Skráning hefst kl.12:00 þann 18 júní.
Muna þarf að velja teig Gulan - Bláan eða Rauðan fyrir alla sem skráðir eru.að auki er mikilvægt að merkja við þrjá liði,bæði hjá bróður og systur: punktakeppni, stúku og höggleik.
Nánar um Landsmótið:
Heildarfjöldi Keppanda er 144. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Ræst verður af 1 teig kl 08:00. svo á 10 mín fresti eftir það. Síðast ræsing verður kl.14:00
Setning Landsmótsins:
Landsmótið verður sett í Frímúrahúsinu Akurs
Stillholti 14 17.Júlí, kl 20:00.

Mbkv.

Mótstjórn

09/06/2026

Bræðramót frímúrara fór fram að Strandavelli á Hellu þann 6 júní
Aðstæður voru virkilega góðar, völlurinn frábær og veður var gott eftir að hafa rignt á okkur fyrstu holur. Góður félagsskapur, vel heppnað mót og góður matur í lok móts.
Þökkum styrktaraðilum okkar fyrir þeirra stuðning
Ecco umboðinu, Margt smátt, Hamborgarafabrikkunni, golfklúbbnum Úthlíð

Úrslit bræðramóts voru eftirfarandi
Stúkukeppni
1 sæti Akur
Liðsmenn
Bjarni I Björnsson
Hannes M Ellertsson
Ársæll Guðmundsson
Eyjólfur Stefánsson
2 sæti Mímir
Liðsmenn
Hilmar Björgvinsson
Guðmundur Magnússon
Aðalsteinn Richter
Þórir Sigurgeirsson
3 sætiHamar
Liðsmenn
Ingvar jónsson
Dagur Garðarsson
Gísli Vagn Jónsson
Eyjólfur Einar Elíasson
Heiðurskylfingur Sigurður Örn Einarsson
Höggleikur
1 sæti
Hannes Marinó Ellertsson Akri 71 högg
2 sæti Hilmar Th Björgvinsson Mími 72 högg
3 sæti Þorlákur G Halldórsson Sindri 76 högg
Punktakeppni
1 sæti Bjarni Ingi Björnsson Akri 39 punkta
Sturla Rafn Guðmundsson Edda 37 punkta
Guðmundur Ragnar Magnússon Mími 35 punkta
Nándarverðlaun
2 hola Hannes M Ellertsson Akri
4 hola Bjarni Einarsson Hamri
8 hola Guðmundur Hjaltested Sindri
11 hola Bjarni Einarsson Hamri
13 hola Arnar Svansson Lilju

31/05/2026

Kæru félagar

Vegna Voucher úthlutunar

Eindagi félgasgjalda FGF er 1. júní 2026. Þann 2. júní verur listi yfir þá sem hafa greitt félagsgjaldið, sendur á þá golfklúbba sem eru með Voucher kerfi. Í framhaldi af því senda golfklúbbarnir Voucher á þá félagsmenn. Þess ber að geta að klúbbarnir óska eftir Golfbox númeri í tengslum við úthlutun á Voucher.
Kveðja
Stjórn

06/05/2026

Sælir félagar Uppfært 10.05.26

Búið er að senda út greiðsluseðla fyrir árgjaldi í Frímann. Félagsgjaldið var hækkað á síðasta aðalfundi í kr. 12.000,- pr félaga. Hægt er að sjá umfjöllun á fgf.is
Búið er að staðfesta eftirfarandi velli sem vinavelli okkar.
Það eru 7 vellir sem eingöngu verður hægt að njóta fríðinda gegn því að sýna wouchera sem sendir verða til ykkar síðar í mánuðinum. Því er mikilvægt að emailið ykkar sé skráð( systir og niðjar fá senda wouchera á mail sem þau eru með skráð hjá okkur)
Gleðilegt Golfsumar
Frímann
Vinavellir 2026
Norðurland
Golfklúbbur Skagafjarðar kr 2.500 9
Golfklúbbur Ós kr 2.500 Daggjald
Golfklúbbur Siglufjarðar kr 2.750 9 Wouchera
Golfklúbbur Fjallabyggðar kr 3.000 9
Golfklúbburinn Hamar kr 2.750/4.750 9/Hjónagjald
Golfklúbbur Akureyrar kr 6.540 18 Woucher
Lundsvöllur Fnjóskadal kr 2.000 9
Austurland
Golfklúbbur Egilsstaða kr 1.750 / 2500 9 eða 18
Golfklúbbur Fjarðarbyggðar kr 2.500 Daggjald
Golfklúbbi Byggðarholts Eskifirði kr 2.500
Golfklúbbur Hornafjarðar kr 2.500 9
Suðurland
Golfklúbburinn Flúðir kr 3.300 / 4.900 18 virka/helgar Woucher
Golfklúbbur Grindavíkur kr 3.000 18
Golfklúbbur Brautaholts kr 5.900 18
Golfklúbbur Úthlíð kr 3.000 9
Golfklúbbur Hellu kr 3.500 18 Woucher
Kiðjaberg kr 6.300 18 Mán-fimmtud
Hellishólar kr 3.400 9 og 18
Golfklúbburinn Dalbúi kr 2.000/3.000 virkir/helgar Woucher
Golfklúbbur þorlákshafnar kr. 4.700 18 Woucher
Golfklúbbur Suðurnesja kr 4.000 18 Woucher
Vesturland
Golfklúbburinn Vestarr kr 1.500 9
Glanni Borgarfirði kr 2.500 Daggjald
Golfklúbburinn Mostri kr 3.000 9eða 18
Golfklúbbur Ísafjarðar kr 3.000 18

Þessir vellir munu verða vinavellir, en eftir að ganga frá verðum.Klárum það í vikunni.

Golfklúbbur Öndverðanes 18 mán-fimmtu

05/05/2026

Blessaðir br mínir

Opnað er fyrir skráningu á bræðramótið á Hellu í dag kl. 12.00. Skráning er í golfboxinu, opin mót 6 júní 26

kveðja
Frímann

28/04/2026

Sælir félagar

Endalok vetrarstarfs okkar er þann 01.maí 26. Þá hækkar gjaldið í golfherma er niðurgreiðsla okkar fellur úr gildi. En menn geta áfram notið afsláttarverðs er við höfum samið um fyrir okkar félaga.

Nú líður að opnun valla og vinna við vinavelli er að ljúka og stefnir í að þeim fjölgi um 2-3 frá því í fyrra. Við stefnum á að senda út innheimtu félagsgjalda í lok næstu viku og á sama tíma sendum við út hvaða vinavellir verða í ár. 6 golfvellir verða með Golfnext(áður golfmore) þar virkjast vinavallasamningar ca 1 júní og verða sendir út voucherar frá golfnext. Bræðramðótið verður þann 6 júní og opnað verður fyrir skráningu 5 maí.

kveðja

Frímann

27/03/2026

Verðlaunaafhending fyrir hermamótaröð Frímanns fór fram í dag.
Leiknir voru 15 vellir vítt og breitt um heim. Góð þátttaka var í mótaröðinni. Veitt voru stig eftir árangri í hverju móti. 7 bestu hringir hjá hverjum einstakling töldu til verðlauna.
Úrslit voru eftirfarandi:
1. sæti Ársæll Guðmundsson Huginn/Akri með 507 stig.
2.sæti Elísabet Valdimarsdóttir systir Akri með 407 stig
3.sæti Gunnhildur Harðardóttir systir Akri með 456 stig
Til gamans má geta þess að Ársæll og Gunnhildur eru hjón og óskum við þeim öllum til hamingju með sigurinn.
Verðlaun voru gjafakort frá Berjaya hótel á Íslandi sem gildir í mat, spa eða gistingu allt eftir hentugleika hvers og eins.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Skúlagata 55
Reykjavík
105