Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ, er æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi í landinu og í erlendum samskiptum íþróttahreyfingarinnar.

Website: www.isi.is
Instagram: isiiceland

GSÍ og KPMG héldu málstofu í síðustu viku um samfélagslegt virði golfíþróttarinnar ⛳Þar voru kynntar niðurstöður nýrrar ...
28/09/2026

GSÍ og KPMG héldu málstofu í síðustu viku um samfélagslegt virði golfíþróttarinnar ⛳

Þar voru kynntar niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýnir að samfélagslegt virði golfsins á Íslandi er metið á rúman 31 milljarð króna á ári.

Lesa um málstofuna á isi.is 👇
https://www.isi.is/um-isi/frettir/malstofa-gsi-og-kpmg-um-samfelagslegt-virdi-golfithrottarinnar

Málstofa Golfsambands Íslands (GSÍ) og KPMG um virði golfíþróttarinnar fyrir líðan, heilsu og samfélag Íslendinga fór fram í húsnæði KPMG í Borgartúni miðvikudaginn 23. september.

🏅 Alþjóðlegur dagur þjálfarans er í dag, 25. september! ❤️Þjálfarar gegna veigamiklu hlutverki í íþróttahreyfingunni og ...
25/09/2026

🏅 Alþjóðlegur dagur þjálfarans er í dag, 25. september! ❤️

Þjálfarar gegna veigamiklu hlutverki í íþróttahreyfingunni og gera íþróttafólki á öllum aldri kleift að blómstra. Takk allir þjálfarar fyrir ykkar ómetanlegu vinnu! 🙌



🔗 Hægt er að lesa meira um daginn hér:
https://icce.ws/event/icce-global-coaches-day-2026/

Íþróttavika Evrópu hefst í dag! 🏃‍♀️⚽🚴Dagana 23.–30. september fer Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) fram í 42...
23/09/2026

Íþróttavika Evrópu hefst í dag! 🏃‍♀️⚽🚴

Dagana 23.–30. september fer Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) fram í 42 löndum. Markmiðið er einfalt: að fá fólk á öllum aldri og úr öllum samfélagshópum til að hreyfa sig meira, hvort sem er í gegnum íþróttir, leik eða skipulagða viðburði.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ýtti átakinu úr vör árið 2015 og síðan þá hefur það hvatt milljónir Evrópubúa til heilbrigðari lífsstíls. Ár hvert eru haldnir þúsundir viðburða víðs vegar um álfuna.

Um allt land verður boðið upp á fjölbreytta viðburði þar sem allir geta tekið þátt á sínum forsendum.

📅 Yfirlit yfir alla viðburði: https://www.beactive.is/allir-viðburðir

ℹ️ Nánar um vikuna:
https://www.beactive.is

Einnig er hægt að lesa frétt um vikuna á heimasíðu ÍSÍ:
https://www.isi.is/um-isi/frettir/ithrottavika-evropu-er-hafin-2

Hér má sjá ávarp Glenn Micallef, framkvæmdastjóra íþróttamála hjá ESB.

https://audiovisual.ec.europa.eu/corporateplayer/index.html?aspect=16-9&language=EN&key=6a97f423264adc0a42a27287&video=I-293848

Vertu með – ! 💪

Um 60 fulltrúar norrænna íþrótta- og Ólympíusamtaka, samtaka um íþróttir fatlaðra og íþróttamannanefnda komu saman í Rey...
22/09/2026

Um 60 fulltrúar norrænna íþrótta- og Ólympíusamtaka, samtaka um íþróttir fatlaðra og íþróttamannanefnda komu saman í Reykjavík 10.–11. september á árlegum norrænum fundi. Þátttakendur komu frá Noregi, Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð, Álandseyjum, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi.

Rætt var um málefni íþróttafólks, lýðheilsu, góða stjórnarhætti og norrænt og alþjóðlegt samstarf. Forsetar IOC og IPC lögðu fundinum lið og norrænt samstarf um íþróttir fatlaðra fagnaði 50 ára afmæli en það hófst einmitt í Reykjavík árið 1976.

Næsti fundur verður haldinn í Svíþjóð að ári. 🇸🇪

Lesa má meira um fundinn á heimasíðu ÍSÍ 👉 https://www.isi.is/um-isi/frettir/jofn-taekifaeri-og-thatttaka-allra-i-forgrunni-a-norraenum-fundi

21/09/2026

𝗙𝗼𝗿𝘃𝗮𝗿𝗻𝗮𝗿𝗱𝗮𝗴𝘂𝗿𝗶𝗻𝗻 𝟮𝟬𝟮𝟲 – 𝗦𝗮𝗺𝘁𝗮𝗹 𝗼𝗴 𝘀𝗮𝗺𝗸𝗲𝗻𝗻𝗱

🖊️𝗦𝗸𝗿á𝗻𝗶𝗻𝗴 𝗴𝗿𝘂𝗻𝗻𝘀𝗸ó𝗹𝗮 𝗳𝘆𝗿𝗶𝗿 𝗙𝗼𝗿𝘃𝗮𝗿𝗻𝗮𝗿𝗱𝗮𝗴𝗶𝗻𝗻 𝗲𝗿 𝗵𝗮𝗳𝗶𝗻!
Við hvetjum grunnskóla um allt land til að skrá sig til þátttöku:
https://www.forvarnardagur.is/forvarnardagurinn-%C3%AD-grunnsk%C3%B3lum

Málþing Forvarnardagsins verður haldið 1. október og verður í beinu streymi.

🎙️Með færslunni fylgir myndbrot frá erindi sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, flutti á Forvarnardagsmálþinginu 2025.

🏅 Starfslaun afreksíþróttafólks gegna mikilvægu hlutverki í að skapa íþróttafólki svigrúm til að einbeita sér að æfingum...
21/09/2026

🏅 Starfslaun afreksíþróttafólks gegna mikilvægu hlutverki í að skapa íþróttafólki svigrúm til að einbeita sér að æfingum, keppni og undirbúningi fyrir stærstu verkefnin.

Sérsambönd ÍSÍ fengu umsóknargögn fyrir starfslaun 2027 send til sín í síðustu viku og vinna nú að því að tilnefna íþróttafólk sem uppfyllir skilyrði sjóðsins.

Stefnt er að því að tilkynna um úthlutun starfslauna fyrir lok október.

🔗Lesa frétt á heimasíðu ÍSÍ👇

Undirbúningur úthlutunar starfslauna afreksíþróttafólks fyrir árið 2027 er hafinn. Sérsambönd ÍSÍ fengu umsóknargögn send í síðustu viku og vinna nú að því að tilnefna íþróttafólk sem uppfyllir skilyrði sjóðsins.

🎉 Norrænt samstarf um íþróttir fatlaðra fagnar 50 árum!Haldið var upp á þessi tímamót um helgina á Hótel Reykjavík Öskju...
16/09/2026

🎉 Norrænt samstarf um íþróttir fatlaðra fagnar 50 árum!

Haldið var upp á þessi tímamót um helgina á Hótel Reykjavík Öskju, áður Hótel Loftleiðum, á sama stað og samstarfið hófst fyrir hálfri öld.

Heiðursgestur afmælisins var Andrew Parsons, forseti Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra (IPC), sem hlaut heiðursmerki norræna samstarfsins fyrir framlag sitt til hreyfingarinnar á heimsvísu. Í heimsókn sinni á Íslandi heimsótti hann einnig Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík sem fagnaði nýverið eigin 50 ára afmæli.

Lesið meira 👇

Hálfrar aldar afmæli norræns samstarfs í íþróttum fatlaðra var fagnað með formlegum hætti á Hótel Reykjavík Öskju um síðustu helgi í tengslum við árlegan fund norrænna íþrótta- og ólympíusamtaka, samtaka íþrótta fyrir fatlaðra og norrænna íþróttamannanefnda.

16/09/2026

Hvaða hreyfing finnst þér skemmtilegust? 🚲🏊🏋️‍♀️🏃🏽‍♀️🕺

Íþróttavika Evrópu hefst 23. september. Verður þú með?🫵

Address

Engjavegur 6
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:30
Tuesday 08:30 - 16:30
Wednesday 08:30 - 16:30
Thursday 08:30 - 16:30
Friday 08:30 - 16:00

Telephone

+3545144000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share