16/08/2026
Nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50! 🇮🇸
Íslenska karlasveitin í 4x100m fjórsundi setti nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50 í París í dag!
Guðmundur Leo Rafnsson, Einar Margeir Ágústsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius syntu á 3:42.35 og bættu gamla metið um 0.79 sekúndur.
Guðmundur bætti jafnframt sitt persónulega met í 100m baksundi þegar hann synti fyrsta legginn á 55.94.
„Gaman að klára þetta með stæl,“ sagði Símon eftir sundið.
Þar með hefur íslenska liðið lokið keppni á EM50 í París.
15/08/2026
Fjórir Íslendingar kepptu í undanrásum á næstsíðasta degi EM50 í París í morgun. Þar með hafa allir íslensku keppendurnir lokið einstaklingsgreinum sínum, en karlasveit Íslands keppir í 4x100 metra fjórsundi á lokadegi mótsins á morgun.
🏊 Símon Elías Statkevicius synti 50 m skriðsund á 22.81, næstbesta tíma sínum og aðeins 0.14 sek. frá sínu besta. Hann varð 57. af 77 keppendum.
🏊 Guðmundur Leo Rafnsson synti 100 m baksund á 56.13 og varð 51. af 66. Tíminn er næstbesti tími hans og aðeins 0.16 sek. frá hans besta.
„Ég ætlaði að fara undir 56, en þetta er næstbesti tíminn minn svo það er ekkert slæmt,“ sagði Guðmundur.
🏊♀️ Birgitta Ingólfsdóttir synti 50 m bringusund á 32.74 og varð 38. af 41 keppanda.
🏊 Birnir Freyr Hálfdánarson lauk einstaklingskeppni Íslands í 200 m fjórsundi á 2:05.18 og varð 44. af 48.
EM50 lýkur á morgun með 4x100 m fjórsundi karla þar sem Ísland verður meðal keppnissveita.
„Við erum með ótrúlega sterka sveit. Þetta verður bara mjög gaman,“ sagði Guðmundur um boðsundið.
13/08/2026
Andrea Elíasson hefur lokið keppni á Heimsmeistaramóti unglinga í listsundi!
Andrea keppti í einstaklings frjálsri aðferð (Solo Free) í gær og í einstaklings tæknilegri aðferð (Solo Technical) í dag. Hún hafnaði í 21. sæti í frjálsri aðferð og 26. sæti í tæknilegri aðferð.
Andrea er því búin með báðar greinar sínar á mótinu og getur litið til baka á góða reynslu af því að keppa á Heimsmeistaramóti unglinga.
Vel gert, Andrea!
13/08/2026
Guðmundur bætti sinn besta tíma um átta hundruðustu og synti á 26.19. Hann varð í 65. sæti af 72 keppendum.
„Ég er ótrúlega sáttur með að bæta mig á stórmóti. Ég var að horfa á Íslandsmetið inn í þetta tímabil, þannig að það er svolítið svekkjandi að ná því ekki, en ég er nær en ég hef nokkurn tímann verið áður.“
Guðmundur heldur áfram keppni á morgun í 100 metra baksundi og mætir fullur sjálfstrausts í greinina. 💪
Fimm Íslendingar verða einnig í undanrásum í fyrramálið:
🇮🇸 Vala Dís Cicero og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir í 50 m skriðsundi
🇮🇸 Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson í 50 m bringusundi
🇮🇸 Hólmar Grétarsson í 200 m flugsundi
12/08/2026
Þær Ragnheiður Birna Björnsdóttir og Ingibjörg Ýr Pálmadóttir eru mættar til Parísar sem dómarar á Evrópumeistaramótið í ár. Það er mikill heiður fyrir Ísland að hafa ekki einn heldur tvo dómara á þessu flotta móti, og frábært að þær Ragnheiður og Ingibjörg geti öðlast þá góða reynslu og lærdóm sem fylgir því að sinna dómarastörfum á stóru, alþjóðlegu móti. Til dæmis fékk hún Ragnheiður að taka þátt í myndbandsdómgæslu í gegnum svokallað VAR (Video Assistant Referee) kerfi, sem reyðir á myndavélar bæði ofan í lauginni og á bakkanum til að fá nákvæma mynd á mögulegum ógildingum.
Við erum afar stolt af okkar dómurum, og fögnum því innilega að þær Ragnheiður og Ingibjörg fái að taka þátt í þessari mikilvægu starfsemi. Takk fyrir ykkar framlag!
12/08/2026
Einar bætti sinn besta tíma um 0,82 sekúndur og var meðal þeirra fyrstu í sínum riðli frá upphafi. Hann kom fjórði í bakkann, aðeins einum hundraðshluta úr sekúndu á eftir þriðja sætinu, og hafnaði í 32. sæti í heildina.
„Mjög þreyttur, en mjög sáttur með að ná þessari bætingu,“ sagði Einar eftir sundið.
Einar, sem bætti sig einnig í 100 metra bringusundi á fyrsta degi mótsins, var ánægður með hvernig hann útfærði sundið.
„Ég náði að vera mjög yfirvegaður fyrsta helminginn af sundinu. Náði að berjast alveg vel seinni helminginn.“
🏊♀️ Vala Dís Cicero synti 200 metra skriðsund á 2:05.34 og varð í43. sæti af 45 keppendum.
🏊♂️ Birnir Freyr Hálfdánarson synti 100 metra flugsund á 54.38 og hafnaði í 55. sæti af 66 keppendum.
„Mér leið bara ágætlega. Tíminn aðeins hægari en ég átti von á. Eitthvað sem ég þarf bara að skoða með þjálfaranum,“ sagði Birnir um sundið.
🇮🇸 Á morgun heldur keppnin áfram þegar Guðmundur Leo Rafnsson keppir í 50 metra baksundi.
11/08/2026
Guðmundur fór af krafti af stað, var á undan sínum besta tíma eftir fyrstu 100 metrana og leiddi riðilinn fyrstu 150 metrana. Lokaspretturinn reyndist þó þungur.
„Mér leið vel fyrstu 150, síðan slökknaði bara á líkamanum,“ sagði Guðmundur eftir sundið.
Hann kom í mark á 2:01.42 og varð í 33. sæti af 39 keppendum.
„Líkaminn er alveg búinn, ég skildi allt eftir í lauginni.“
🇮🇸 Fleiri íslenskir keppendur voru í lauginni í dag:
🏊♀️ Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synti 50 m flugsund á 28.02 og varð í 50. sæti.
🏊♀️ Birgitta Ingólfsdóttir synti 100 m bringusund á 1:12.66 í sinni fyrstu keppni á mótinu og varð í 42. sæti.
Keppnin heldur áfram á morgun þegar:
🔹 Vala Dís Cicero keppir í 200 m skriðsundi
🔹 Birnir Freyr Hálfdánarson í 100 m flugsundi
🔹 Einar Margeir Ágústsson í 200 m bringusundi
Áfram Ísland! 🇮🇸👏
11/08/2026
Andrea Elíasson lauk í gær sinni fyrstu æfingu í Ungverjalandi, þar sem hún er að undirbúa sig fyrir keppni á Heimsmeistaramóti Unglinga í listrænu sundi.
Við óskum Andreu góðs gengis á mótinu og fylgjumst grannt með frammistöðu hennar!
10/08/2026
🇮🇸 Góður fyrsti dagur hjá íslenska liðinu á EM í 50 metra laug í París!
Einar Margeir Ágústsson átti besta árangur dagsins þegar hann bætti sinn besta tíma í 100 m bringusundi. Hann synti á 1:00.87 og varð 33. af 71 keppanda.
„Ég vildi bara vera nálægt mínu besta og koma til baka frá meiðslum, en ég er bara ógeðslega sáttur með þetta,“ sagði Einar eftir sundið.
🏊♀️ Snæfríður Sól Jórunnardóttir synti 100 m skriðsund á 55.72 og varð 35. af 54.
🏊 Hólmar Grétarsson synti 400 m fjórsund á 4:29.65 og hafnaði í 23. sæti af 26.
Aðrir tímar íslenska liðsins:
• Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, 100 m skriðsund: 56.79
• Vala Dís Cicero, 100 m skriðsund: 56.95
• Birnir Freyr Hálfdánarson, 50 m flugsund: 24.60
• Símon Elías Statkevicius, 50 m flugsund: 24.70
• Snorri Dagur Einarsson, 100 m bringusund: 1:02.20
Átta Íslendingar kepptu á fyrsta degi mótsins og keppni heldur áfram á morgun. 🇮🇸