Námskeið byrja í næstu viku!
Yoga & Heilsa
Yoga & Heilsa er hlýlegt og vinalegt yogastúdíó í Faxafeni 10.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af yogatímum, persónulega kennslu og leggjum mikla áherslu á að hver og einn geti fundið yoga við sitt hæfi.
23/08/2026
Sjáumst á þriðjudaginn 25. ágúst!!
Komdu og prófaðu! - Yoga & Heilsa Kæru iðkendur! Þriðjudaginn 25. ágúst bjóðum við upp á prufutíma í fjórum ólíkum námskeiðum hjá Yoga og heilsu. Þetta er kjörið tækifæri til að skoða aðstöðuna, hitta kennarana og finna þann tíma sem hentar þér best. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Prufutíma...
✨ NÝTT NÁMSKEIÐ – LIÐKANDI JÓGA ✨�Hefst 3. september
Liðkandi jóga er fyrir þig sem vilt losa um stífleika í vöðvum og liðum, bæta hreyfigetu og veita taugakerfinu nærandi hvíld.
Á námskeiðinu fléttum við saman:
🌿 Yin yoga�🌿 Bandvefslosun�🌿 Mjúkar hreyfingar og teygjur�🌿 Öndunaræfingar og slökun
Við notum einnig pullur, sandpoka, bolta og jógabelti til að vinna með viðkvæma punkta og aðlaga álagið að hverjum og einum.
Námskeiðið er fyrir öll getustig og hentar sérstaklega vel þeim sem glíma við stoðkerfisvanda eða gigt.
Skráning og nánari upplýsingar: https://yogaogheilsa.is/lidkandi-joga/
💪 KJARNAJÓGA – 8 VIKNA NÁMSKEIÐ 💪�Hefst 1. se
Tímar á þriðjudögum og fimmtudögum
Viltu auka styrk og liðleika, draga úr stífleika og finna meira jafnvægi í líkama og huga?
Kjarnajóga hentar meðal annars þeim sem glíma við stífleika í liðum og vilja byggja upp líkamann með öruggri og einstaklingsmiðaðri hreyfingu. Námskeiðið getur einnig hjálpað þér að takast á við streitu og bæta almenna líðan.
Æfingarnar eru aðlagaðar að hverjum og einum svo þú getir hreyft þig á þínum forsendum. 🌿
Skráning og nánari upplýsingar:�https://yogaogheilsa.is/kjarnajoga/
🧘 YOGA GRUNNUR – 8 VIKNA NÁMSKEIÐ 🧘�Hefst 1. september�
Tímar á þriðjudögum og fimmtudögum
Langar þig að byrja í jóga eða öðlast betri skilning á undirstöðum þess?
Yoga grunnur hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja rifja upp grunnatriðin og dýpka iðkun sína. Við förum yfir öndun, teygjur og helstu jógastöður með áherslu á að aðlaga æfingarnar að þörfum og getu hvers og eins.
Þú þarft hvorki að vera liðug/ur né hafa reynslu af jóga – þú byrjar nákvæmlega þar sem þú ert. 🌱
Skráning og nánari upplýsingar:�https://yogaogheilsa.is/yoga-grunnur/
🌿 HUGARRÓ – 6 VIKNA NÁMSKEIÐ 🌿
Hefst 1. september
Gefðu þér tíma til að hægja á, kyrra hugann og hlúa að líkama og taugakerfi.
Á HugarRó vinnum við með mjúkar hreyfingar og teygjur, öndunaræfingar, yoga nidra hugleiðslu og djúpslökun. Námskeiðið er hugsað sem nærandi rými þar sem þú getur aukið vellíðan, endurnært þig og tekið skref í átt að betri heilsu.
✨ Mýkri líkami
✨ Rólegra taugakerfi
✨ Kyrrari hugur
✨ Aukin andleg vellíðan
Skráning og nánari upplýsingar:
https://yogaogheilsa.is/hugarro-i-att-ad-betri-heilsu/
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Faxafen 10, 2. Hæð
Reykjavík
108
Opening Hours
| Monday | 07:00 - 21:00 |
| Tuesday | 07:00 - 21:00 |
| Wednesday | 07:00 - 21:00 |
| Thursday | 07:00 - 21:00 |
| Friday | 07:00 - 21:00 |
| Saturday | 10:00 - 13:00 |