Valur skokk

Valur skokk

Share

Valur skokk er hlaupahópur í alfaraleið. Við hlaupum bæði á götu og utanvegastígum. Upphafsstaður æfinga er Valsheimilið að Hlíðarenda.

Skráning í hópinn fer fram á staðnum.

Þjálfari:
Jóhann Freyr Jóhannsson

Æfingar:
Þriðjudaga kl. 17:30
Fimmtudaga kl. 17:30
Laugardaga kl. 9:00
Mánudaga kl 19.30 (okt.-mars í Laugardalshöll)

Verð:
Félagsgjöldin 2025 eru 33.000 fyrir heilt ár og 21.000 fyrir hálft ár. Leggja þarf inn á reikning: 0301-26-44214, kennitala: 4402141850.

Þegar hlaupari hefur ákveðið að gerast meðlimur og greitt féla

Photos from Valur skokk's post 29/04/2026

Hlauptu út í sumarið með Val skokk!
Langar þig að komast í betra form, takast á við ný markmið og njóta þess að hlaupa í góðum félagsskap? Valur skokk býður upp á tvö frábær hlaupanámskeið í sumar – fyrir byrjendur og lengra komna!

Byrjendanámskeið – Úr sófanum að 5 km
Upphafsdagur: 12. maí
Lengd: 6 vikur
Verð: 10.000 kr.
Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu hlaupaskref eða eru að byrja aftur eftir hlé. Við æfum saman með 5 km í Miðnæturhlaupinu, 25 júní, að markmiði! Skemmtilegar æfingar, hvatning og stuðningur í hverju skrefi!
Byrjendanámskeiðið fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:00 og laugardögum kl 9:00 lagt af stað frá Valsheimilinu Hlíðarenda.

Sumarhlaupanámskeið – Taktu 10 eða 21 km í Reykjavíkurmaraþoninu!
Upphafsdagur: 2. júní
Lengd: 12 vikur
Verð: 15.000 kr.
Þetta námskeið er fyrir hlaupara sem stefna á 10 km eða hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu 22 ágúst. Við vinnum markvisst að því að byggja upp úthald, styrk og hlaupatækni, án þess að gleyma því að hafa það gaman.
Sumarnámskeiðið fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:30 og laugardögum kl 9:00 lagt af stað frá Valsheimilinu

Það er hægt að taka bæði námskeiðin fyrir 22.000

Valur skokk – skemmtilegra saman!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Reykjavík

Opening Hours

Tuesday 17:30 - 19:00
Thursday 17:30 - 19:00
Saturday 09:00 - 00:00