27/08/2026
Ertu 13–17 ára og langar að verða betri á ísnum?
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða vilt bæta færnina – Þá er Unglingahópur LSR fyrir þig! ⛸️
Skráning hér: https://www.abler.io/shop/sr/listhlaup/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NjQ5NDM=
24/08/2026
Vinsælu FULLORÐINSNÁMSKEIÐIN okkar eru komin í sölu!
Og nú er enn meira úrval af æfingatímum – svo auðveldara sé að finna tíma sem hentar þér!
Hefur þig alltaf langað að prófa listhlaup? Eða hefur þú skautað áður og langar að komast aftur á ísinn? ✨
Eldhugar er fyrir alla 18 ára og eldri sem vilja æfa listhlaup – hvort sem þú ert algjör byrjandi eða hefur reynslu á skautum.
Hjá okkur snýst þetta um hreyfingu, skautafærni, gleði og góðan félagsskap. Þú æfir á þínum forsendum og vinnur að þínum markmiðum. 🙌
🗓️ Æfingar í boði fjóra daga vikunnar:
⛸️ Mánudaga kl. 21:15–22:45
⛸️ Þriðjudaga kl. 11:15–12:30
⛸️ Miðvikudaga kl. 7:30–8:45
⛸️ Föstudaga kl. 11:15–12:30
Það er aldrei of seint að byrja á skautum! 💙
📩 Nánari upplýsingar og fyrirspurnir:
[email protected]
Skráning á abler: https://www.abler.io/shop/sr/listhlaup?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NjQ5MzE=
14/08/2026
Við höfum opnað!
Skráning í Skautaskóla LSR er hafin! 💙❤️🤍
👉 Skráning fer fram hér:
Listhlaup | Skautaskóli LSR-Haust'26
Skautaskóli LSR hefst sunnudaginn 6. september. Skautaskólinn er tvisvar í viku, þriðjudaga kl:17:00-18:00 og sunnudaga kl:11:45-12:45. Upphitun fer fra...
17/07/2026
Hvað ætlar barnið þitt að gera í ágúst?
Nokkur laus pláss eftir í sumarskautaskóla LSR
viku 4 og vika 5
skráning: https://www.abler.io/shop/sr/listhlaup/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTYwNTQ=
06/06/2026
🌸 Dansleikur Vorsins🌸
Vorsýning LSR fór fram sunnudaginn 31. maí.
Önninni er núna formlega lokið og hefst ný önn aftur í ágúst.
Vonandi hafa allir SR-ingar það gott í sumar og við hlökkum til að taka á móti öllum aftur í haust
💙❤️🤍⛸️
Áfram SR!
29/05/2026
31. maí verður hátíðlegur í Skautahöllin í Laugardal
Tvær sýningar:
kl 12:00 https://stubb.is/events/oQ3Gan
kl:14:00 https://stubb.is/events/n25w3b
Vorhátíð 15:30-17:00 (hoppukastalar, grill og skautaball)
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn/Reykjavik Family Park and Zoo verður einnig í hátíðarskapi þessa helgi og gera má ráð fyrir miklum fjölda á svæðinu.
*Mælum með að mæta tímanlega til að leggja bílnum (hægt að leggja hjá Laugardalshöllinni), skanna miðann og finna sæti áður en sýningin hefst*
26/05/2026
🌼Vorsýning Lishlaupadeildar SR
Sunnudaginn 31. maí
14:00-15:30
📲Miðasala: https://stubb.is/events/n25w3b
26/05/2026
Vorsýning Skautaskóla LSR Sunnudaginn 31. maí
Miðasala: https://stubb.is/events/oQ3Gan
Einnig koma fram valin atriði úr framhaldshópum.