05/09/2023
Sigurvegarar í Gatorade sumarhlaupunum 2023 🎉🎉🎉
Innilega til hamingju með þennan glæsta árangur kæru hlauparar og við sjáumst næsta sumar 🙌🙌🙌
Mótaröð fjögurra sumarhlaupa í Reykjavík. Vefsíða: https://www.sumarhlaupin.is/
05/09/2023
Sigurvegarar í Gatorade sumarhlaupunum 2023 🎉🎉🎉
Innilega til hamingju með þennan glæsta árangur kæru hlauparar og við sjáumst næsta sumar 🙌🙌🙌
20/06/2023
Miðnæturhlaup Suzuki fer fram fimmtudaginn 22. júní næstkomandi. Hlaupið heldur upp á 30 ára afmæli í ár og því verður blásið til afmælisveislu.
3 vegalengdir eru í boði. 5 km, 10 km og 21,1 km og því ættu allir hlauparar að finna eitthvað við sitt hæfi.
Allir þátttakendur fá afmælismedalíu að hlaupi loknu og svo verður sundlaugapartý í Laugardalslaug þar sem DJ Danni Sæberg mun þeyta skífum og Ölgerðin býður upp á drykk.
Miðnæturhlaup Suzuki er hluti af mótaröð hlaupa sem nefnist Gatorade Sumarhlaupin, en frekari upplýsingar um mótaröðina má finna hér.
👉 https://www.sumarhlaupin.is
Hér er hægt er að skrá sig.
👉 https://www.corsa.is/is/103/register
Komið og fagnið með okkur 😍
16/05/2023
Afhending gagna verður frá kl. 18:00-20:00 þann 17. maí og á keppnisdag frá 09:30 til 10:15 í anddyri Grafarvogslaugar í Íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum ☀🥳
10/05/2023
Skráningin í Fjölnishlaup Olís fer fram á netskraning.is, hægt er að skrá sig þar til afhendingu gagna lýkur á hlaupadag. Þátttakendur fá Gatorade í boði Ölgerðarinnar við 5 km og í endamarki 🙌
07/05/2023
Í Fjölnishlaupi Olís er boðið er uppá 10 km hlaup, 5 km hlaup og 1,4 km skemmtiskokk. Bæði 10 km og 5 km vegalengdirnar eru löglega mældar.
Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga í stigakeppni Gatorade sumarhlaupanna ☀
05/05/2023
Fjölnishlaup Olís verður ræst í 35. sinn á Uppstigningardag 18. maí 2023 klukkan 11:00 frá Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi við Dalhús, hægt er að skrá sig á netskraning.is 🙌
12/10/2022
Aldursflokka sigurvegarar í Gatorade sumarhlaupunum.
Sigurvegarar í aldursflokkum - Gatorade Sumarhlaupin Íþróttabandalag Reykjavíkur, frjálsíþróttadeildir Ármanns, Fjölnis og ÍR og Gatorade standa saman að Gatorade Sumahlaupunum, mótaröð fimm sumarhlaupa í Reykjavík. Mótaröðin var fyrst sett á laggirnar sumarið 2009 og fer því fram í tólfta sinn sumarið 2020.