24/07/2026
Frábær ferð framundan hjá fótboltadeild Ösp/Stjarnan ásamt Suðra. Við erum öfga stolt af keppendunum okkar og þjálfurum
Íslenskt landslið gæti mætt Manchester United og Barcelona - RÚV.is
Eftir þrjá daga hefst Genuine Cup í Bandaríkjunum, en það er stórt alþjóðlegt fótboltamót fyrir íþróttafólk með þroskahömlun og einhverfu. Í tilefni HM í sumar er mótið enn stærra en vanalega og Ísland sendir landslið þangað í fyrsta skiptið.
07/06/2026
Í gær tóku flottar stelpur í nútímafimleikadeild Aspar þátt í 2 vorsýningum hjá fimleikadeild Ármanns en við erum einmitt í samstarfi við Ármann í NF. Skvísurnar okkar stóðu sig frábærlega, virkilega flott hjá þeim.
07/06/2026
Í gær var Ollamót/vormót Aspar í boccia. Allt gekk mjög vel og keppendur stóðu sig með miklum sóma.
Allir nutu pizzaveislu í boði Domino's í hádegishlé. Iðkendur fengu svo viðurkenningarskjöl fyrir veturinn í lok móts sem vakti mikla lukku.
19/05/2026
Einstaklega vel sóttur aðalfundur Asparinnar var á sunnudaginn 17.maí!
Aðalfundur Íþróttafélagsins Aspar afstaðinn
Sunnudaginn 17.maí kl.13:00 hófst aðalfundur Íþróttafélagsins Aspar í Sigtúni 42 í Reykjavík. Nokkuð fjölmennt var á fundinum en rétt rúmlega 60 manns mættu á fundinn. Af þeim voru 55 atkvæðabærir félagsmenn sem tóku þátt í aðalfundarstörfum. Kl.13:20 setti formaður Asp...
17/05/2026
Ÿmir Snær s*xfaldur flokkameistari í sundi
11/05/2026
Alls bárust sjö framboð frá s*x einstaklingum til kjörs stjórnar Íþróttafélagsins Aspar.
Þessi eru í framboði til stjórnar Íþróttafélagsins Aspar
Í boðun til aðalfundar, sem skal haldinn 17.maí 2026, var beðið um framboð til þeirra stjórnarsæta sem kosið skal í samkvæmt lögum félagsins og rann framboðsfrestur út á miðnætti í gærkvöldi, 9.maí. Framboðin eru sem hér segir: Framboð til formanns: Helga Hákonardóttir H...
10/05/2026
Það verður vorhátíð hjá okkur í Íþróttafélaginu Ösp kl.14:00 sunnudaginn 17.maí!
Vorhátíð Asparinnar 2026
Vorhátíð Asparinnar verður haldin sunnudaginn 17. maí kl. 14:00 í beinu framhaldi af aðalfundi félagsins sem hefst kl. 13:00. Það er mikilvægt að félagsmenn mæti á fundinn til að nýta kostningarétt sinn og njóta síðan veitinga með félögum sínum. Ösp íþróttafélag fagnar ...
29/04/2026
Aðalfundur Aspar verður sunnudaginn 17. maí kl.13:00
Aðalfundur Íþróttafélagsins Aspar - 17. maí
Aðalfundur Íþróttafélagsins Aspar verður haldinn í Sigtúni 42, 108 Reykjavík, sunnudaginn 17. maí kl.13:00. Samkvæmt lögum félagsins skal dagskrá aðalfundar vera: Fundarsetning Kosning fundarstjóra, fundarritara og annarra starfsmanna fundarins Lögð fram ársskýrsla stjórnar fyri...
19/04/2026
Haukur Guðmundsson skarar fram úr – mestar framfarir í 3. deild karla
Haukur Guðmundsson, leikmaður Asparinnar / Ösp Ásar, hlaut í kvöld viðurkenningu fyrir mestu framfarir í 3. deild karla á lokahófi Keilusambands Íslands.
Öspin er íþróttafélag sem leggur áherslu á íþróttaiðkun fatlaðra en er jafnframt opið öllum. Haukur keppir undir merkjum félagsins og hefur verið lykilmaður í liði sínu í almennri deild, þar sem hann keppir á móti sterkum hópi keilara.
Á tímabilinu hefur Haukur sýnt framúrskarandi framfarir, bæði hvað varðar árangur og stöðugleika. Frammistaða hans hefur vakið athygli innan deildarinnar og skilað honum þessari verðskulduðu viðurkenningu.
Verðlaunin fyrir mestu framfarir eru veitt þeim keilara sem tekið hefur stærstu skrefin fram á við yfir tímabilið og endurspegla því þá miklu vinnu sem Haukur hefur lagt í íþróttina.
Í 3. deild karla ríkir hörð samkeppni og margir efnilegir keilarar stíga þar sín fyrstu skref, en árangur Hauks sýnir að hann á fullt erindi meðal fremstu keilara deildarinnar.
Viðurkenningin er jafnframt mikil hvatning fyrir Hauk til áframhaldandi framfara og árangurs á komandi tímabilum.