27/08/2026
Þá er mótadagskrá vetursins farin að lýta dagsins ljós og því fylgir að við þurfum að manna sjoppuvaktir á leikjum í Laugardalnum.
Á U16 og U18 leikjum er bara drykkja, snarl og samlokusala og ein manneskja mannar nema við förum að sjá mikla aðsókn í leikina
Á meistaraflokks leikjum eru tveir aðilar í sjoppunni og er þá meiri veitingasala.
Sjoppuvaktir eru mjög góð leið til þess að kynnast betur öðrum í starfinu, hjálpa við fjáröflun foreldrafélagsins sem styrkir við barnastarf SR með klefanesti á mótum og öðrum búnaði fyrir æfingar. Sem auka bónus þá fæst 4000kr ferðastyrkur uppí keppnisferið fyrir hverja vakt þannig að safnast saman þegar saman kemur.
Hægt er að skrá sig á vaktir hér að neðan og fyrstur kemur, fyrstur fær
Sjoppuvaktir skráningar
18/08/2026
Ccm pöntunin komin, hægt að nálgast hana á Kársnesi frá morgundeginum fram að æfingu á mánudaginn. Eftir það verður hún í sjoppunni
01/08/2026
Mæli með að kíkja hvort að skautarnir passi ennþá fyrir veturinn og græja áður en fjörið hefst í haust
Hokkískúrinn
23/06/2026
Minnum á tiltekt í dag kl 17.00 í Laugardalshöll.
Margar hendur vinna létt verk!
18/02/2026
Byggjum fleiri skautasvell - Vísir
Skautaíþróttir hafa verið stundaðar í Reykjavík, með hléum, frá árinu 1873. Skautafélag Reykjavíkur er eitt elsta starfandi íþróttafélag á landinu, stofnað formlega 1873 en endurvakið árið 1893. Félagið var svo endurvakið öðru sinni árið 1938. Árið 1967 mættust úrval...
12/02/2026
Að ósk fjölskyldu Patreks verður frítt á leik SR og SA í Toppdeild kvenna í Skautahöllinni í Laugardal á morgun föstudag. Við viljum engu að síður minna á að það verða posar á staðnum fyrir þá sem vilja styrkja. Allur ágóði af pökkakasti, veitingasölu og kökubasar er til stuðnings fjölskyldunnar.
Á þriðjudaginn komust færri að en vildu svo nú gefst annað tækifæri til að minnast yndislega Patreks okkar og horfa á kvennalið SR og SA etja kappi í skemmtilegustu íþróttinni sem elsku Patti okkar lifði fyrir!
Liðin ætla minnast Patta í upphitun með nafni og númeri hans #12. Fyrir leik ætlum við að hafa mínútu minningarklapp til heiðurs honum, leikmenn lemja kylfum í ísinn og áhorfendur klappa með.
Kynnir og DJ kvöldsins verður Bjarni töframaður.
Eigum saman frábæra kvöldstund og minnumst fallins félaga úr hokkí hreyfingunni.
SR gegn SA í Toppdeild kvenna
Skautahöllin Laugardal
Föstudagurinn 13. febrúar
Upphitun á ís hefst kl. 19.15
Leikurinn hefst kl. 19.45
Sérstakar þakkir til þeirra sem styrkt hafa verkefnið með vinningum eða öðru framlagi.
2Guys | A4 | Aðalbón | BakaBaka | Borgarleikhúsið | Bónus | Brynjuís | Dominos | Eimskip | Elko | FlyOver Iceland | Garmin | Happy Hydrate | Henson | Hilton Reykjavík Spa | Hokkíbúllan | Hreysti | Kandís og Sweeto | Kjörís | Kólus | Krónan | Laugarásbíó | Lemon | M Fitness | Minigarðurinn | Mjólkursamsalan | Myllan | Oche Reykjavík | Ölgerðin | Pollýanna | Sambíó | Síminn | Skopp | Spilavinir | Tannbjörg | Tímavera | Unbroken | Útilíf | Velmerkt
14/12/2025
Opnunartímar fram að jólum verða líklegast:
Mánudaginn 15. ~17 til 19
Miðvikudaginn 17. ~16 til 18
Laugardaginn 20. ~10 til 13 (ef æfingar þá)
Treyjurnar, peysurnar og bolirnir eru allt komið í hús, eigum góðan lager af kylfum, hjálmum og byrjendasettum í hörðu pakkana
CCM pöntunin kemur vonandi í vikunni þannig að hægt verður að afhenda á miðvikudag og laugardag.
Ef ofangreindir tímar henta ekki er alltaf hægt að senda línu og við finnum eitthva út úr hlutunum
03/12/2025
Jólapöntunin af keppnistreyjum er lent, hægt verður að nálgast þær í sjoppunni milli ~16.30 og 19 í dag
03/12/2025
Vegna mikillar aðsóknar í Íshokkískólann er farið að ganga á lánsbúnaðinn okkar, en félagið lánar endurgjaldslaust búnað til að koma krökkum af stað í íþróttinni. Þess vegna leitum við til ykkar hvort það eigi til notaðan búnað sem börnin eru vaxin upp úr sem það væri til í að gefa félaginu. Við erum helst að leita að búnaði fyrir 12 ára og yngri, bæði hlífðarbúnað og kylfur.
Það má endilega koma með búnaðinn í Skautahöllina í Laugardal eða hafa samband við Íshokkískólann á [email protected]