Sundlaugar Reykjavíkur

Sundlaugar Reykjavíkur

Share

Sundlaugar Reykjavíkur eru átta talsins og hver og ein sundlaug hefur sín sérkenni og einstakt andrúmsloft. Öll í sund!

Hér deilum við almennum upplýsingum, tilkynningum, fréttum og skemmtilegu efni frá Sundlaugunum í Reykjavík. Nánari upplýsingar um aðstöðu, opnunartíma, símanúmer, viðgerðir eða tímabundnar lokanir er hægt að nálgast á heimasíðu hverrar laugar fyrir sig á https://reykjavik.is/sundlaugar

Ath. að upplýsingar um stutt, tímabundin og ófyrirséð frávik á þjónustu eru veittar í afgreiðslu hverrar laugar fyrir sig.

Tímabundin breyting á opnunartíma í Sundhöll Reykjavíkur 24/08/2026

🛠️❕Tímabundin breyting á opnunartíma í Sundhöll Reykjavíkur

Vinna við endurbætur á búningsklefum í Sundhöll Reykjavíkur hófust fyrr í sumar. Framkvæmdirnar hafa reynst mun umfangsmeiri en gert var ráð fyrir og standa enn yfir.

Á meðan á framkvæmdum stendur hafa karlar notað gamla búningsklefann á neðri hæð og konur báða útiklefana. Þessir klefar rúma samtals um 60 gesti og því þarf að miða við þann hámarksfjölda í lauginni á meðan þessar ráðstafanir eru í gildi.

Þegar skólasund hefst að nýju 25. ágúst þarf því tímabundið að breyta opnunartíma Sundhallarinnar á virkum dögum þar til viðgerðum á kvennaklefa lýkur.

Opnunartíminn verður sem hér segir:
Mánudagar: 06:30–10:00 og 14:00–22:00
Þriðjudagar: 06:30–08:30 og 14:00–22:00
Miðvikudagar: 06:30–22:00 (óbreyttur opnunartími)
Fimmtudagar: 06:30–08:30 og 15:00–22:00
Föstudagar: 06:30–10:00 og 15:00–22:00

Lögð er áhersla á að ljúka framkvæmdum við búningsklefa eins fljótt og kostur er og koma starfsemi Sundhallarinnar aftur í hefðbundið horf. Vonast er til að hægt verði að opna kvennaklefann að nýju á haustmánuðum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar tímabundnu ráðstafanir kunna að valda og þökkum gestum fyrir sýnda þolinmæði og skilning.

Við bendum jafnframt á að árskort og aðrar áskriftir gilda í öllum Sundlaugum Reykjavíkur.

Tímabundin breyting á opnunartíma í Sundhöll Reykjavíkur Vinna við endurbætur á búningsklefum í Sundhöll Reykjavíkur hófust fyrr í sumar. Framkvæmdirnar hafa reynst mun umfangsmeiri en gert var ráð fyrir og standa enn yfir.

24/08/2026

📢 Tilkynning frá Laugardalslaug

• Laugardalslaug er opin með hefðbundnum hætti.
• Skólasund er að hefjast og nú ganga skólabörn inn um aðalinngang.
• Enn er skert aðgengi að pottum og gufubaði undir stúkunni, en önnur starfsemi er opin eins og venjulega. 💦

22/08/2026

🎆 Það er frítt fyrir þátttakendur Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka í sundlaugar Reykjavíkur eftir hlaupið ef sýnt er hlaupanúmer í afgreiðslu.

Á menningarnótt er oft þétt setið í laugunum miðsvæðis og við hvetjum því gesti og þátttakendur hlaupsins að kíkja einnig í sundlaugarnar í úthverfum borgarinnar.

17/08/2026

BREYTTUR OPNUNARTÍMI STÖKKBRETTIS Í SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR
Vegna þess að sundæfingar eru hafnar í innilaug Sundhallarinnar breytist opnunartími stökkbrettisins dagana 17.-21. ágúst. Stökkbrettið verður opið sem hér segir:

Mánudagur: 11:00-16:00 og 19:00-21:00
Þriðjudagur: 11:00-16:00 og 17:00-21:00
Miðvikudagur: 11:00-16:00 og 19:00-21:00
Fimmtudagur: 11:00-16:00 og 17:00-21:00
Föstudagur: 11:00-16:00 og 19:00-21:00

Frá og með mánudeginum 24. ágúst verður stökkbrettið opið virka daga frá 15:00-16:00 og 19:00-21:00.

05/08/2026

Gleðilega Hinsegin daga!❤️🧡💛💚💙💜

30/07/2026

Opið 11:00-17:00 í öllum sundlaugum Reykjavíkur þann 3. ágúst!

30/07/2026

🐳Gleðifréttir úr Grafarvogslaug!

Við höfum opnað okkar æðislegu rennibraut á ný eftir viðgerð. Nú geta gestir og börn skemmt sér enn betur í lauginni 🌊

22/07/2026

Kæru gestir,

Þann 23. Julí lokar laugardalslaug kl 20:00 og hætt verður að hleypa ofan í laugina kl. 19:30 vegna ReyCup.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta veldur og þökkum tillitsemina.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Borgartún 12-14
Reykjavík
105