Bæði í pool og í snóker eru 2 stigalistar, eins árs og tveggja ára.
1. árs stigalistinn gildir fyrir sætaskipan í norðurlandamótið.
2. ára stigalistinn gildir fyrir sítun í B.S.Í. mót.
kveðja
Stjórnin
Billiardsamband Íslands
Billiardsamband Íslands sér um snóker- og poolmót á Íslandi.
Stífar sunnudags æfingar bæði í snoker og pool fyrir komandi Norðurlandamót.
13/08/2026
Hér er mótaplanið fram að áramótum. Það á eftir að ræða við stofurnar um nákvæma niðurröðun.
Einnig vantar inn í þetta kvennamót í pool, en þau verða sett á snóker helgar. Endilega mætið á pool æfinguna á sunnudaginn stelpur, við þurfum að fara yfir nokkur atriði.
09/08/2026
Norðurlandamótið í snóker fer fram í Stokkhólmi dagana 2. - 5. september 2026.
8 manna lið Íslands er skipað eftirtöldum leikmönnum: Sigurður Kristjánsson, Brynjar Kristjánsson, Unnar Bragason, Jón Ómar Árnason, Jón Árni Bragason, Sævar Davíðsson, Hlynur Stefánsson og Arnar Richardsson
Hægt verður að fylgjast med gangi mála á Cuescore á slóðinni:
Nordic Snooker Championship 2026 SCHEDULE Tuesday September 1 20:00 Casual welcome meeting and mingling at the venue Wednesday September 2 10:00 Tournament start with group stage (round robin) best of 5 Thursday September 3 10:00 Group stage best of 5 Friday September 4 10:00 1/8-finals and 1/4-finals, best of 7 Saturday September....
20/07/2026
Nú er loksins komið að því að við höldum NM í pool á Íslandi.
Þeir sem eiga þátttökurétt í mótið, fá skilaboð á FB messenger.
03/07/2026
EBSA tilkynnir - EUROPEAN SNOOKER CHAMPIONSHIPS
Búlgaría 9.-24. september 2026
Þeir sem hafa áhuga hafi samband við stjórn sem fyrst.
21/04/2026
Sælir félagar.
Eins og auglýst hefur verið frá áramótum, fer aðalfundur Billiardsambands Íslands fram, næstkomandi laugardag 25. apríl, á Billiardbarnum kl.15:00. Ekki hafa borist enn neinar tillögur til stjórnar en við tökum við tillögum fram á föstudag til kl.18:00.
Eingöngu verður tekið við stuttum og hnitmiðuðum tillögum.
Lokahóf og verðlaunaafhending er svo klukkan 18:00.
Billiardbarinn verður með tilboð á mat og drykk. Ostborgari, franskar og gos á 2.500kr. og ostborgari, franskar og bjór á 3.000kr.
Bjór á krana 1.200kr.
Eftir formlegheitin verða svo haldin mót/leikir í snóker og pool.
A.T.H. Þeir sem ætla að fá sér hamborgara, endilega skráið ykkur inn á cuescore hér að neðan svo að við vitum sirka hversu marga hamborgara þarf að taka úr frysti.
AÐALFUNDUR-LOKAHÓF 2026 CueScore helps people organize and run billiard tournaments, keep track of events near you, view livescores and checkout your competition. Run tournaments for you and your friends, or enter national championships in the same system.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Faxafen 12
Reykjavík
108