26/06/2026
English below 🌤
Við þökkum kærlega fyrir frábært skólaár og vonum að þið hafið það sem allra best í sumarfríinu ❤️
Hugmyndin um sjálfbæra sumardagskrá kom upp í spjalli við foreldra í júní. Við sem sinnum Opna Leikskóla Memmm förum í sumarfrí en með þessari dagskrá má halda áfram að hitta vini og leikfélaga í sumarfríinu. Við hvetjum ykkur sem verðið á höfuðborgarsvæðinu að kíkja á þessi fallegu leiksvæði á mánudögum og miðvikudögum 😍 börnin munu svo sjá um að starta söngstund 😂
Thanks to all friends and falmilies for a wonderful school year. We hope you will enjoy the summer ahead ❤️
While talking with parents in June someone came up with this idea of a sustainable summer program. We, the staff, will be on vacation BUT attending this summer program you can still meet friends and play! We encourage everyone available to show up on these beautiful locations 🎉 without a doubt the children will start singing time 😍
Addresses from google maps:
HELLISGERÐI
Hellisgata 3, 220 Hafnarfjörður
BUS 1
ELLIÐAÁRSTÖÐ playground
Rafstöðvarvegur, 110 Reykjavík�BUS 16, also 17 min walk from Ártún bus stop, BUS 5, 6, 15, 16 and 18
03/06/2026
Mörg lögðu leið sína í Elliðaárstöð í morgun til að njóta samveru og leiks með vinum og fjölskyldu í Opna Leikskóla Memmm ❤️ Takk fyrir samveruna í dag🥰, sjáumst í næstu viku ☘️
27/05/2026
Þjónustukönnun - Survey for families, english below
Okkar árlega þjónustukönnun er komin í loftið og hvetjum við öll að taka þátt í henni. Könnuninni er ætlað að gefa fjölskyldum rödd í þróun starfsins og að vera formlegur vettvangur upplýsingaöflunar og til umbóta.
Slóð: https://forms.gle/GX93TU6CGS4Bq1Dc7
Our annual survey for families has been releashed and we hope that all participate. The results will be used to further develop the servise and meet the needs of families in the best possible way.
Url: https://forms.gle/XPntfECSxg1LYXig8
25/05/2026
Við erum í skýjunum!🤩😍 Opni Leikskóli Memmm var tilnefndur til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla 2026 og fyrir það erum við endalaust þakklát🥰 Þessum skólavetri fer senn að ljúka og sumardagskráin tekur við en þá fer starfsemin fram undir berum himni 💚 Við þökkum enn og aftur fyrir tilnefninguna og hlökkum til framtíðarinnar með fjölskyldum sem eru oft að taka sín fyrstu skref í samfélaginu er þau mæta í Opna Leikskóla Memmm❤️
06/05/2026
VIÐ ERUM 5 ÁRA!
Haldið var upp á 5 ára ✋ afmæli Opna Leikskólans í vikunni og héldum við upp á það með diskóljósum, ljúffengum kræsingum, fullt af blöðrum 🎈🎈🎈og okkar besta fólki ❤️💙❤️💙❤️ Takk fyrir komuna öll sem komu, dönsuðu, sungu og nutu samverunnar með okkur 🥰🥳
28/04/2026
Í dag komu í heimsókn til okkar í Opna leikskóla Memmm þær Bergdís og Lilja, nemar í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands en þær eru að ljúka fjórða ári í náminu þar. Þær hafa hug á að vinna mastersverkefni sín í samstarfi við Opna leikskóla Memmm og foreldrasamfélagið sem nýtir sér þjónustuna þar. Gerðar verða bæði eigindleg rannsókn og meginleg rannsókn. Starfsfólk Opna leikskóla Memmm er þeim innilega þakklátt fyrir að velja að rannsaka þá þjónustu sem er í boði fyrir fjölskyldur á stórhöfuðborgarsvæðinu. Svona vinna krefst hugrekkis, eljusemi, áhuga, næmni og seiglu sem þær stöllur búa svo sannarlega yfir. Opni leikskóli Memmm óskar þeim alls hins besta með að undirbúa verkefnið, safna gögnum, með úrvinnslu og komast að niðurstöðum❤️. Við hlökkum mikið til að sjá og deila niðurstöðunum síðar á þessu ári.