Annarosflexibility

Annarosflexibility

Share

Liðleikaþjálfun fyrir alla sem hafa áhuga á að auka liðleika, styrk, líkamsmeðvitund og vellíðan.

20/07/2023

Started my Yin Yoga Teacher Training today and I’ve been studying about the Yin & Yang and their different attributes ☯️
I feel that this picture captures so perfectly the necessary of the two opposites that was needed to create the pose.
Strength + tension & softness + breathe and let go.

Yin: ~ softness~ flexibility~ frontside ~ closed
Yang:~ hardness ~ solidity ~ backside ~ open
Neither can exist without the other. Nothing is exclusively one or the other. Neither is better as they are two halves of a whole = Harmony ✨

18/06/2023

Maharishi Mahesh Yogi Ashram or better known as The Beatles Ashram is believed to be one of the main reasons Rishikesh became so famous in the western world and a popular destination for a spiritual practice all though today in my opinion Rishikesh, which is a very beautiful place and the nature is spectacular it has become very commercialized.
The Beatles came to the Ashram in the 60’s along with other celebrities. The purpose was to practice Transcendental Meditation or TM taught by Maharishi. The practice is said to have numerous benefits such as promoting a state of relaxed awareness, increasing creativity and for avoiding distracting thoughts among other things e.g. being good for anxiety and depression

The Ashram which is now abandoned but it’s remains are open for tourists and it’s definitely an interesting place to check out with some beautiful spiritual graffiti like this one.

P.s Ignore the dirty feet 👣 😅




02/04/2023

Ég er að byrja með fjölskyldujóga í Yoga Shala Reykjavík
Námskeiðin eru 1x í viku í 4 vikur = 13.000kr
Skráning er hafin 💖🙏🏼

28/03/2023

Með hækkandi sólu - hækkandi orka 🌞
Ég er búin að halda mig í mýktinni undanfarið og hlúa vel að mér bæði hvað varðar æfingar sem og andlegu hliðina. Ég vildi sinna vel og fylgja eftir útgáfu Jógastundar sem hefur verið skemmtilegt en mikil vinna í bland við grunnskólakennsluna svo ég tók mér smá hvíld frá þjálfun hvað varðar liðleika tímana sjálfa, en hef þó verið og verð áfram með fjarþjálfunina (mun byrja með tímana sjálfa aftur í haust).
Ég er búin að vera dugleg að sinna minni eigin jógaástundun en hef sótt meira í mýkri tímana sem hefur verið dásamlegt þar sem mér finnst oft jan/feb svolítið erfiðir. Þessi tími í dvala/hvíld hefur fyllt mig orku og þori til þess að stíga skrefið og taka ákvarðanir í átt að spennandi tímum og ansi mörgum breytingum sem eru framundan á þessu ári. Segi ykkur betur frá síðar 😄en
núna eftir páska (17. og 19. april) er ég að fara af stað með fjölskyldujóga námskeið í Yoga Shala, sem er yndislegt jógastúdíó í Skeifunni. Ég er ótrúlega spennt fyrir þessu námskeiði og hlakka mikið til að byrja en námskeiðin verða tvö, annað er fyrir 4-6 ára og hitt 7-9 ára.
Mun byrja að auglýsa fljótlega 💖🙏🏼

13/11/2022

Liðleikatímar í Reykjavik MMA á þriðjudögum kl.18:10-19:10
Í tímunum er unnið markvisst að því að byggja upp liðleika og styrk og að opna þau svæði líkamans sem eiga það til að lokast við daglegt líf og æfingar.
Tímarnir eru samsettir af virkum teygjum, PNF/isometric teygjum, hreyfiflæðum, fyrirbyggjandi æfingum í bland við mýkri passívar teygjur sem miða að því að auka liðleika og styrk sem nýtist í daglegum athöfnum og iðkun.
Hægt er að kaupa staka tíma, 5 eða 10 tíma klippikort. Greitt er á staðnum með pening eða millifærslu eða haft samband hér í gegnum skilaboð.
Ég býð uppá frían prufutíma í Nóvember fyrir þá sem hafa ekki komið áður.
Tímarnir eru bæði fyrir byrjendur sem og lengra komna.
Æfingavörur: Hreysti
Fatnaður: Metta Sport

Photos from Annarosflexibility's post 17/10/2022

Geggjaður árangur á einum mánuði! 🤩👏🏼 Kristín leitaði til mín þar sem vildi vinna með splittin sín. Hún er svo brjálæðisleg dugleg og metnaðarfull, svo gaman að vinna með þessari skvísu!
Kristín valdi leið 2 sem er fjarþjálfun í 4 vikur með tveimur einkatímum.

22/09/2022

🤎~ Líkaminn er listaverk ~ 🤎
Það að þjálfa liðleika og styrk er mikilvægt til þess að auka og viðhalda almennri hreyfifærni, vellíðan og afköst í þróttum en stundum er það líka bara skemmtilegt. Líkaminn er svo mikið undraverk og það að skapa list með líkamanum er eitthvað sem mér finnst gefandi og ánægjulegt allt frá hugmyndavinnunni, æfingunum við að ná pósunni eins og maður vill, myndatökunni og svo skemmir ekki fyrir þegar maður getur átt mynd af lokaútkomunni 😌

Ein af uppáhaldsmyndunum mínum frá myndatökunni hjá

Fatnaður: .sport

17/09/2022

Um daginn fjallaði ég um skilgreininguna á liðleika svo í dag langar mig til þess að fjalla um hreyfanleika eða Mobility og mobility æfingar. Þetta eru orð sem eru mikið notuð í fitness og heilsuheiminum og á samfélagsmiðlum bæði hér á landi og erlendis og er það þá notað fyrir ákveðnar æfingar og hreyfiteygjur sem eru framkvæmdar af hægum stjórnuðum hreyfingum og séu blanda af liðleika, styrk og stjórn og er það þá kallað hreyfanleiki.

Þá segja sumir að liðleiki sé bara passívur og betra sé að þjálfa hreyfanleikann þar sem hann sé gagnlegri en þetta er bara alls ekki rétt. Þarna er í raun er bara verið að lýsa virkum liðleika sem er framkvæmdur með rólegum og stjórnuðum hreyfingum semsagt virkum hreyfiliðleika sem er ein tegund af liðleika þar sem vöðvinn er virkur og liðirnir hreyfast. Í allri liðleikaþjálfun ætti í raun að vera unnið líka með styrk og stjórnaðar hreyfingar þar sem það er einmitt það sem liðleikaþjálfun snýst um, að unnið sé með mismunandi gerðir liðleika og styrk í end range stöðu en ekki bara passíva liðleikann þó hann sé einnig mikilvægur.

Hin vísindalega skilgreiningin á orðinu mobility er hinsvegar að mobility sé getan til þess að geta hreyft sig örugglega og án aðstoðar á milli staða. Þess vegna eru til dæmis ýmis hjálpartæki sem notuð eru til að aðstoða fólk að komast á milli staða eins og hjólastólar og hækjur kölluð mobility aid.

Sumir segja að þetta trend fyrir mobility hafi komið fram aðallega vegna þess að fólk sé að selja ákveðna hugmyndafræði og æfingar sem veitir þeim sérstöðu á þessum markaði en það er nú annað mál.

Fyrir flesta skiptir þetta kannski ekki höfuð máli og sama hvaða orð við kjósum að nota er gott að vera allavega meðvitaður um þessa mismunandi notkun orða og hvað er á bakvið þessar skilgreiningar.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Reykjavík

Opening Hours

Monday 17:30 - 18:30
Wednesday 17:30 - 18:30