Reykjavik Regatta

Reykjavik Regatta

Share

Reykjavík Regatta er fjölskylduvæn siglingakeppni á þriðjudagskvöldum á sumrin - undan ströndum Reykjavíkur.

Reykjavik Regatta is a family friendy regatta every Tuesday night during the summer off the coast of Reykjavik

01/09/2026

ATHUGIÐ TÍMABREYTINGAR.
Nefndin hefur ákveðið að flytja keppnina fram til að minnka líkur á að vindur detti niður og myrkur skelli á í miðri keppni.

Vefurinn hefur verið uppfærður: https://reykjavikregatta.is/

01/09/2026

Spáin er ekkert að þokast okkur í hag. Engin keppni í dag. Sjáumst eftir viku.

26/08/2026

Loksins náðist að klára Double Diamond - en það tók tímana tvo. Dögun náði frábæru starti í léttum vindi og náði fyrsti Secret bátur henni eftir 23 mínútur. Íris varð hins vegar svöng og dreif sig í pylsurnar.

25/08/2026

Við gefumst ekki upp og reynum enn einu sinni að klára þessa braut!

18/08/2026

Úrslit liggja að mestu fyrir, nema ekki hafa borist fregnir af tíma Sigurvonar. Sigurvon og Dögun lentu í svartaþoku undan Gróttu og í Hólmasundinu miðju sá Dögunarmenn hvorugan endann þótt báðir stæðu upp úr.

16/08/2026

Regatta vikunnar verður frá Hafnarfirði til Reykjavíkur á þriðjudaginn. Start kl. 17:30, fyrsta flaut 17:25 í hafnarkjaftinum. Frjáls aðferð að marki við Brokey. Flott spá.

09/08/2026

Það er komið í gang fansí rafmagnshlið við Ingólfsgarð.

Hliðið virkar þannig að það símanúmer sem skráð er í kerfið hjá okkur í Brokey getur hringt til þess að opna, það kemur eins og á tali þegar hringt er en hliðið opnast. Skynjari hleypir síðan bílum út án þess að það þurfi að hringja.

Númer hliðsins er 760 1974

Búið er að skrá inn í kerfi hliðsins alla þá sem eru skráðir fyrir bryggjuplássi í gegnum Abler og þau símanúmer sem viðkomandi skráði þar inn.

Til að bæta við áhafnarmeðlimum og númerum þeirra þá sendið þið bara póst á [email protected] með númerum og nöfnum (og bát).

09/08/2026

Braut eða upphaf og endir?
Frjáls leið eftir start og að hafnarkjafti í Hafnarfirði.
Það verður því sem næst háflóð þegar við eigum leið um Hólmasund - fyrir þau sem rata.
Start eigi síðar en 18:00, Mánudaginn 10. ágúst.

09/08/2026

Sólblómin í keppnisáhöfnunum vilja færa Hafnarfjarðarhalarófuna fram til mánudagsins af því að spáin er svona. Við miðum við að starta eigi síðar en 18:00 - eða um leið og allir sem ætla með eru mættir.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Ingólfsgarður
Reykjavík
101