29/08/2026
Vilt þú bæta heilsuna? Veistu ekki hvað þú átt að gera eða hvar þú átt að byrja?
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Heilsuklasinn, Gym/Physical Fitness Center, Bíldshöfða 9, Reykjavík.
29/08/2026
Vilt þú bæta heilsuna? Veistu ekki hvað þú átt að gera eða hvar þú átt að byrja?
27/08/2026
Þegar við eldumst er enn mikilvægara en áður að viðhalda hreyfingu í rútínu hversdagsins.
Með reglulegri hreyfingu á efri árum eru lífsgæði aukin og heilsunni viðhaldið.
25/08/2026
Styrkur, þol, jafnvægi og liðleiki eru allt þættir sem þjálfun í vatni hefur jákvæð áhrif á.
23/08/2026
Tækjasalurinn er rúmgóður og bjartur og býður upp á fjölbreyttar æfingar þar sem til staðar eru ýmis tæki.
Inn af búningsklefum er hægt að fara bæði í heitan pott og sauna.
Umhverfið er sérstaklega notalegt og um að gera að slaka þar á eftir góða æfingu.
19/08/2026
Regluleg hreyfing bætir árum við lífið og lífi í árin.
17/08/2026
Æfingarnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar, þar sem boðið er upp á púl og fjör.
Erfiðleikastig er miðað út frá getu hvers og eins, því hentar Kvennaleikfimi jafnt hraustum konum sem og þeim sem þurfa að fara varlegar í sakirnar.
29/05/2026
Betra er að vera elstur í ræktinni en yngstur á hjúkrunarheimilinu.
Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir í Heilsuklasanum, fer hér yfir helstu atriði hins þögla sjúkdóms sem beinþynning er. Í Heilsuklasanum er í boði sérhæft námskeið með fræðslu og líkamsrækt fyrir þá sem greinst hafa með beingisnun eða beinþynningu.
"Betra er að vera elstur í líkamsræktinni heldur en yngstur á hjúkrunarheimilinu" - Aldur er bara tala Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- og efnaskiptalæknir í Heilsuklasanum, opnaði nýlega fræðsluvefinn https://www.beinheilsa.is sem ætlað er að…
14/01/2026
Rætt var um beinheilsu í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í gær. Þar voru þau Sigríður Björnsdóttir innkirtla- og efnaskiptalæknir í Heilsuklasanum og Lars Óli Jessen fagstjóri heilsuræktar Heilsuklasans fengin í viðtal. Viðtalið þeirra hefst eftir rúmar 37 min og má nálgast hér: https://www.ruv.is/utvarp/spila/siddegisutvarpid/23825/bimpc8
Sigríður og Lars, ásamt Thelmu Rut Grímsdóttur næringarfræðingi, settu upp vefinn beinheilsa.is. Þar má finna ýmsan fróðleik og æfingar tengt beinþynningu og þeim áskorunum sem fylgja þeim þögla sjúkdómi.
Í Heilsuklasanum er í boði heilsuræktarnámskeið fyrir þá sem glíma við beinþynningu. Næsta námskeið hefst 27. janúar og nánar má lesa sig til um það námskeið hér: https://klasinn.is/namskeid-hja-heilsuklasanum/likamsraekt/sterkari-bein/
Sterkari bein - Heilsuklasinn Heilsuklasinn hefur sérstöðu innan heilsugeirans. Hér taka saman höndum ólíkir sérfræðingar eins og læknar, hjúkrunarfræðingar, næringarfræðingar, sálfræðingar, félagsráðgjafi og sjúkraþjálfarar, auk sérfræðinga á öðrum sviðum. Þannig verður þjónustan heilstæð ...
17/03/2025
Hér fer Ásta Guðrún, markþjálfi í Heilsuklasanum, yfir mikilvægi samskipta á vinnustöðum. Áhrif samskipta á árangur fyrirtækja og líðan starfsfólk er mikil - endilega lesið!
Samskipti: Lykillinn að vellíðan og árangri í vinnuumhverfi - Vísir Samskipti eru ein af grunnstoðum árangursríkra vinnustaða. Þau móta menningu fyrirtækja, hafa áhrif á vellíðan starfsfólks og geta ráðið úrslitum um hvort starfsfólk dafnar í starfi eða upplifir streitu og vanlíðan.
20/01/2025
Upplifun iðkanda:
„Það má segja að ég hafi verið komin á ákveðin tímapunkt í lífinu þar sem ég vissi að eitthvað varð að gerast.
Ég sá auglýsinguna um námskeiðið á laugardegi, skráði mig og námskeiðið byrjaði nokkrum dögum seinna.
Ég þurfti ekki mikið að hugsa mig um, lýsingin á námskeiðinu gerði það að verkum að ég treysti mér til að mæta.
Út frá lýsingunni vissi ég að þarna yrði fólk sem væri á svipuðum stað og ég.“
- Guðfinna, iðkandi á námskeiði sem byrjaði haustið 2024
| Monday | 06:00 - 20:00 |
| Tuesday | 06:00 - 20:00 |
| Wednesday | 06:00 - 20:00 |
| Thursday | 06:00 - 20:00 |
| Friday | 06:00 - 20:00 |
| Saturday | 07:30 - 14:00 |
| Sunday | 10:00 - 14:00 |