04/09/2026
Fjarðarhjólið 2026
Nú er þetta að bresta á, veðurspáin öll að koma til og allt að verða klárt hjá okkur fyrir Fjarðarhjólið 2026.
Brautarskoðun í dag kl 18:00, mæting við Sundlaug Ólafsfjarðar
Dagskrá morgundagsins er eftirfarandi:
KL 09-10:30 Afhending númera á marksvæði (við MTR)
kl 10:30 Barnahjól ræst
KL 10:50 Léttur upplýsingafundur á marksvæði
KL 11:00 RAFHJÓLAFLOKKUR 22 KM ræstur (5 hringir)
KL 11:01 RAFHJÓLAFLOKKUR 8,8 KM ræstur (2 hringir)
KL 11:02 Skemmtihjólið ræst og hjólað sveita hringinn réttsælis.
Reglur mótsins:
1. Allir verða að hafa gaman
2. Hjólahjálmur er skylda, kjálkahjálmur er leyfilegur.
3. Brynja, hnéhlífar og aðrar öryggishlífar eru æskilegar en ekki skylda.
4. Mótorhjálp skal vera óbreytt frá framleiðanda og miðast því við 25km á klst. Óheimilt er með öllu að notast við "kubb" eða aðrar útfærslur á mótorhjálp en upphaflegar stillingar frá framleiðanda.
5. Leyfilegt er að hafa rafhlöður allt að 1000w
6. Ekki er leyfilegt að skipta um rafhlöðu á meðan keppni stendur.
7. Leyfilegt er að gera við hjól hvar sem er í brautinni svo lengi sem það hefur ekki áhrif á aðra keppendur. Keppendur skulu passa að fara vel til hliðar við viðgerðir í keppnisbraut. Keppanda er leyfilegt að fá aðstoð frá öðrum keppendum eða aðstoðarfólki. Brautarverðir mega ekki aðstoða keppendur við viðgerðir.
8. Ef keppandi slasast í brautinni ber öðrum keppendum að láta vita af því strax til mótshaldara eða starfsmanna í braut. Keppanda ber einnig skylda til að aðstoða ef keppandi slasast.
9. Mótshaldara er heimilt að víkja þeim úr keppni sem ekki virða reglur mótsins.
10. Keppendur eru allir á eigin ábyrgð.
Að keppni lokinni fá allir þátttökuverðlaun.
Verðlaunaafhending er að keppni lokinni á marksvæði áætlað kl 12:30
Úrdráttarverðlaun afhent þegar keppandi kemur í mark.
Grill og drykkir að keppni lokinni.
Hlökkum til að sjá ykkur
skráning er enn opin á www.netskraning.is/fjardarhjolid
kv. Fjarðarhjólið.
03/09/2026
02/09/2026
30/08/2026
09/08/2026
04/08/2026
21/07/2026
20/06/2026
17/02/2026