01/07/2026
Mælum með þessum viðburði ☀️🚴🏻♂️
Krakkaþraut HFR 1. júlí☀️
Hjólaferðir á spennandi staði! Fjallahjólanámskeið fyrir alla!
01/07/2026
Mælum með þessum viðburði ☀️🚴🏻♂️
Krakkaþraut HFR 1. júlí☀️
Skemmtilegustu hjólamótin 💛
14/06/2026
Komdu þér af stað á fjallahjólinu fyrir sumarið! Þvílíkt frelsi að geta hjólað í náttúrunni og leikið sér á hjólinu öruggur og glaður!
Við hefjum leikinn á fimmtudaginn - laus pláss.
09/06/2026
Ath. örfá pláss laus! Sumarhjólanámskeiðin okkar fyrir krakka 7-12 ára hefjast á mánudaginn í næstu viku 15. júní og það eru nokkur pláss laus á námskeiðið í Norðlingaholti/Heiðmörk fyrir hjólakrakka sem vilja læra og leika úti á hjólinu (Öskjo er fullt).
Hér er hlekkur á skráningu (námskeið 2 er í Nolló í næstu viku) 🙂
Hjólaskólinn | Sumarhjólanámskeið 2026 fyrir 7-12 ára börn Tindur hjólreiðafélag og Hjólaskólinn kynna:Sumarhjólanámskeið í náttúrunni fyrir börn 7-12 ára (2014 - 2019)Markmið námskeiðanna er að skapa hjólagleði...
07/06/2026
Framhaldsnámskeið í fjallahjólreiðum hefst á miðvikudaginn 10. júní kl 18 í Vífilstaðahlíð- nokkur pláss laus!
Seinna kvöldið er svo 18. júní í Öskjó.
Þetta verður fjör!
Skráning á [email protected]
01/06/2026
Ef þið eruð á móti byggðinni sem á að koma í grennd við Hvaleyrarvatn, þá getið þið skrifað undir hér. Vonum að þessi náttúruperla verði ekki eyðilögð!
Ísland.is Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.
28/05/2026
Hjólaskólinn, Krónan og hjólafélagið Fönn halda KRÓNUHJÓLAMÓT fyrir hressa krakka fyrr austan 13. júní 🥳
Skráning er hér:
Krónan, Hjólafélagið Fönn og Hjólaskólinn kynna Krónuhjólamótið í Neskaupstað - hjólamót fyrir káta krakka á aldrinum 2-12 ára 💛🙏
Allir velkomnir!
Mæting er í fyrir utan íþróttaheimilið í Neskaupsstað laugardaginn 13. júní. Fyrsta start verður kl. 10:30 fyrir yngstu krakkana á sparkhjólunum og svo taka eldri flokkar við eftir það.
ATH: Hjálpardekk og rafmagnsknúin hjól eru ekki leyfð.
Krónan styrkir mótið og mun gefa öllum þátttakendum verðlaunapeninga auk þess sem allir þátttakendur fá glæsilega gjöf að keppni lokinni. Krónuhjólið verður á staðnum með ávexti fyrir alla 💛
BMX brós mæta á svæðið og hefst sýningin þeirra um kl. 11 á bílastæðinu við íþróttaheimilið. Við hvetjum alla til að missa ekki af þessari skemmtilegu sýningu!
Skráningargjald eru kr. 2500 á barn og hægt er að skrá sig og greiða hér 👉 https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSckId7N6DfsFmqMtfusSFTK6zifCqgFZafg8NGmydwbKAZoBg/viewform