Knattspyrnudeild Aftureldingar

Knattspyrnudeild Aftureldingar

Share

Knattspyrnudeild Ungmennafélagsins Aftureldingar í Mosfellsbæ

31/08/2026

KÆRU MOSFELLINGAR - MIÐASALAN ER HAFIN! 🏆

Úrslitaleikur Mjólkurbikarsins fer fram föstudaginn 11.september næstkomandi á Laugardalsvelli. Þar mætast Afturelding og Breiðablik kl 19:00! ⚽️

Vegleg upphitun hjá MiniGarðurinn frá kl 14:00! Nánar um það síðar 🥁 Nú er það miðasalan!

Miðaverð:
17 ára og eldri - 3000 kr (hækkar í 3500 kr eftir 4.sept)
16 ára og yngri - 1000 kr

Miðasala fer fram inn á www.midasala.ksi.is

Tryggið ykkur miða sem fyrst! Fyllum völlinn og hvetjum strákana okkar til sigurs! 🔴⚫️

Áfram Afturelding ⚡️

29/08/2026

KOMNIR Í BESTU DEILDINA 🏆🏆🏆

29/08/2026

KOMNIR Í BESTU🏆🏆🏆

29/08/2026

LENGJUDEILDARMEISTARAR 2026!!! 🏆

29/08/2026

LEIKDAGUR Í MOSFELLSBÆ!! ⚽️

Afturelding tekur á móti Vestri á Malbikstöðinni að Varmá í dag, laugardaginn 29.ágúst , kl.14:00 📢 Okkar menn sitja á toppi deildarinnar fyrir leikinn og með sigri getur Afturelding tryggt sér sæti í Bestu deildinni á næsta ári! ⚒️

Stuðningurinn í sumar hefur verið frábær og vonandi sjáum við sem flesta Mosfellinga mæta á völlinn áfram og styðja strákana í þeirri baráttu sem framundan er⚡️

Fyrir leik verður upphitun í Hlégarði hjá Kjúllamönnum frá kl 11:30! ,,Kjúllinn" er skemmtilegur hluti af bæjarhátíðinni Í Túninu Heima og hefur fest sig rækilega í sessi síðustu ár sem miðpunktur stemningar í bænum!

● Laugardagur 29.ágúst 🗓
● Malbikstöðin að Varmá 🏟
● Kick off 14:00 ⚽️
● Lukkudýrið Ísfuglinn mætir á svæðið🐔
● Kjúllamenn sjá um fjörið fyrir og eftir leik 🎉
● Krónuskotið á sínum stað! ☄️
● Bestu borgarar landsins til sölu🍔
● Megastore-ið opið með fullt af nýjum vörum 🧣

Áfram Afturelding! 🔴⚫️

28/08/2026

MOSFELLINGAR ATH 📢

Kjúllinn tekur vel á móti ykkur á morgun frá kl 11:30 og svo sjáumst við á vellinum kl 14:00 ⚡️

ÁFRAM AFTURELDING 🔴⚫️

27/08/2026
27/08/2026

SIGUR Í LAUGARDALNUM! 🙌

Öruggur 0-4 sigur í Þróttheimum í dag! 💪

Hafdís braut ísinn á 28. mínútu þegar hún skoraði eftir laglega fyrirgjöf frá Mögðu og kom stelpunum okkar í 0-1. Aðeins átta mínútum síðar tvöfaldaði Sigrún forystuna með glæsilegu marki af löngu færi, hennar annað mark fyrir meistaraflokk! ⚽️⚽️

Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks bætti Adna svo við þriðja markinu. Inga átti þá frábært hlaup áður en hún lagði boltann fyrir Ödnu, sem kláraði færið af öryggi. Staðan í hálfleik var því 0-3.

Stelpurnar mættu af krafti inn í seinni hálfleikinn og héldu áfram að skapa sér góð færi. Á 67. mínútu rak Maria svo naglann í kistuna þegar hún skoraði af stuttu færi og kom okkur í 0-4, sem urðu lokatölur leiksins! 🔥

Takk kærlega fyrir stuðninginn í dag! ❤️🖤

Næsti leikur er gegn Augnablik á Fífuvelli 4. september kl. 19:15.

Áfram Afturelding! ❤️🖤

Photos from Knattspyrnudeild Aftureldingar's post 27/08/2026

STÓRLEIKUR Á LAUGARDAGINN!! ⚽️

Afturelding tekur á móti Vestri á Malbikstöðinni að Varmá á laugardaginn, 29.ágúst , kl.14:00 📢 Okkar menn sitja á toppi deildarinnar fyrir leikinn og með sigri getur Afturelding tryggt sér sæti í Bestu deildinni á næsta ári! ⚒️

Stuðningurinn í sumar hefur verið frábær og vonandi sjáum við sem flesta Mosfellinga mæta á völlinn áfram og styðja strákana í þeirri baráttu sem framundan er⚡️

Fyrir leik verður upphitun í Hlégarði hjá Kjúllamönnum! ,,Kjúllinn" er skemmtilegur hluti af bæjarhátíðinni Í Túninu Heima og hefur fest sig rækilega í sessi síðustu ár sem miðpunktur stemningar í bænum!

● Laugardagur 29.ágúst 🗓
● Malbikstöðin að Varmá 🏟
● Kick off 14:00 ⚽️
● Lukkudýrið Ísfuglinn mætir á svæðið🐔
● Kjúllamenn sjá um fjörið fyrir og eftir leik 🎉
● Krónuskotið á sínum stað! ☄️
● Bestu borgarar landsins til sölu🍔
● Megastore-ið opið með fullt af nýjum vörum 🧣

Áfram Afturelding! 🔴⚫️

27/08/2026

LEIKDAGUR!!⚡️

Afturelding heimsækir KÞ í dag, 27. ágúst, kl.19:00 í Þróttheimum!

Þetta er 4. umferð B-úrslita í 2. deild kvk ⚒️

Stuðningurinn í sumar hefur verið frábær og vonandi sjáum við sem flesta Mosfellinga í Laugardalnum í kvöld!

Áfram Afturelding! ❤️🖤

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Mosfellsbær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Íþróttamiðstöðin Að Varmá
Mosfellsbær
270