Skriðsundsnámskeiðið hefst á morgun! Bara 4 sæti laus 🙂💪
Skriðsundsnámskeið Dodda
Skriðsundsnámskeið
Hefur þig alltaf langað til að læra skriðsund? Skriðsundsnámskeið þar sem markmiðið er að þú náir að synda viðstöðulaust þægilegt sund.
Ertu kannski einn af þeim sem virðast sökkva í hvert skipti sem þeir reyna að synda? Átt jafnvel í erfiðleikum með að synda eina ferð án þess að stoppa?
Þá hef ég kannski lausn fyrir þig. Lögð er áhersla á flot og að sundmaðurinn komist í gegnum vatnið með eins lítilli mótstöðu og hægt er, þannig að sem mest af orkunni fari í að synda áfram en ekki í að halda sér á floti. Staðreyndir:
·
10/04/2026
Seinasta skriðsundsnámskeiðið fyrir sumarfrí hefst 21.apríl! frábært tækifæri fyrir þá sem vilja annað hvort bæta tæknina fyrir sumarið eða vilja bara líta vel út í sumarfríinu :)
Námskeiðið er frábær leið til að læra skriðsund, hvort sem þú ert algjör byrjandi eða kannt eitthvað fyrir þér. Ég byggi það á aðferð sem hefur verið í þróun í um 35 ár og gerir æfingaferlið mun einfaldara og skilvirkara.
Að ná afslöppun í sundinu og njóta þess að synda í stað þess að sundið sé einhver kvöð eða eitthvað nærri óyfirstíganlegt er markmiðið mitt með þessu námskeiði.
Svo er auðvitað frábært að hoppa í pottinn eða í infra rauðu gufuna eftir tímann og slaka á í góðum hópi.
Námskeiðið er í Lágafellslaug og er á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl 20-21 og er 8 skipti samtals.
Námskeiðið kostar 27.000 kr. og að sjálfsögðu er aðgangur að lauginni innifalinn í verðinu.
Hægt er að skrá sig eða fá frekari upplýsingar á [email protected] eða með því að senda skilaboð í gegnum Facebook...
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Mosfellsbær