04/09/2026
Er dans eitthvað fyrir þitt barn?
Sjáðu hvort eitthvað hér eigi við 💖
Haustönn Danssporsins hefst mánudaginn 7. september - verður þitt barn með? 💃🏻
www.abler.io/shop/danssporid
Danssporið studio býður upp á fjölbreytta danstíma ásamt því að vera með keppnishóp.
04/09/2026
Er dans eitthvað fyrir þitt barn?
Sjáðu hvort eitthvað hér eigi við 💖
Haustönn Danssporsins hefst mánudaginn 7. september - verður þitt barn með? 💃🏻
www.abler.io/shop/danssporid
Næsti kafli hefst eftir helgi! 😱
Ert þú búin að tryggja pláss fyrir þitt barn?
Nokkur video frá Þverholti - vá hvað var gaman að rifja þau upp 💖
Nú gerum við ennþá fleiri dansa í Flugumýri 🤩
01/09/2026
Nú styttist heldur betur í að haustönnin hefjist í nýja rýminu okkar 💃🏻
Ef barnið þitt hefur áhuga á að dansa þá mælum við með að tryggja pláss strax 🥰
Pivot - almennir danstímar fyrir 3-14 ára.
Skráning hér: www.abler.io/shop/danssporid
Pirouette - Keppnishópur fyrir 4-16 ára.
Rafrænar prufur og nánari upplýsingar: www.danssporidstudio.is/pirouette
🗓️ Umsóknarfrestur er 3. september
Gefðu barninu þínu tækifæri til að dansa, þroskast og skína 🌟
💃🏻 Flugumýri 34, 270 Mosfellsbær
🗓️ 7. september - 6. desember
27/08/2026
Haustönnin nálgast og við erum orðin svo spennt! 🤩
Í haust verða 3 kennarar sem leiða hópana, þar á meðal 2 ný andlit sem við hlökkum mikið til að fá í hópinn 🥰
Á önninni fáum við einnig til okkar gestakennara.
26/08/2026
Þá er komið að Í Túninu Heima! 💛❤️💙💖
Á föstudaginn, 28. ágúst verða prufur fyrir Pirouette deild Danssporsins (keppnishópur). Sú deild er ætluð börnum á aldrinum 4-16 ára með brennandi áhuga á dansi og leiklist.
Allir velkomnir að skrá sig í prufur, líka þeir sem hafa ekki æft hjá Danssporinu áður!
Skráning fer fram í gegnum Abler: www.abler.io/shop/danssporid
Á laugardaginn, 29. ágúst á milli 12-14 ætlum við að hafa opið hús í nýja rýminu okkar.
Þá gefst öllum tækifæri til þess að sjá nýja dansstúdíóið okkar í Flugumýri 34.
Leynist barn á þínu heimili með brennandi áhuga á dansi og leiklist?
Þá mælum við með að skoða Pirouette deild Danssporsins (keppnishópur)!
Prufur fara fram föstudaginn 28. ágúst.
Allir velkomnir að skrá sig í prufur, líka þeir sem hafa ekki æft hjá Danssporinu áður!
Skráning á www.abler.io/shop/danssporid
Almennar upplýsingar: www.danssporidstudio.is/pirouette
23/08/2026
Dans er svo miklu meira en hreyfing við tónlist 💃
Hjá Danssporinu fá börn á aldrinum 3-16 ára tækifæri til að þróa danshæfileikana sína, kynnast mismunandi dansstílum og finna gleðina sem fylgir því að dansa 🥰
Við bjóðum upp á tvær deildir, Pivot og Pirouette, svo hver og einn geti fundið hóp sem hentar sínum áhuga, markmiðum og aldri.
Í gegnum dansinn eflum við sjálfstraust, líkamsvitund, sköpunargleði og samvinnu. Nemendur læra að treysta sér, vinna með öðrum og njóta þess að vera þeir sjálfir á dansgólfinu.
Hvort sem barnið þitt er að stíga sín fyrstu skref í dansi eða dreymir um að taka dansferilinn sinn lengra, þá eigum við pláss fyrir það hjá Danssporinu 💖
Haustönnin hefst 7. september. Vertu með!
Prufur fyrir Pirouette hóp fara fram 28. ágúst. 🤩
20/08/2026
Danssporið er með tvær deildir kallaðar Pivot og Pirouette.
Pivot deild er fyrir börn á aldrinum 3-14 ára. Unnið er með Jazz og Ballett æfingar í bland við aðra stíla. Pivot hentar vel fyrir þá sem hafa áhuga á að læra dans en vilja ekki keppa eða skuldbinda sig við keppnistengda hluti. Pivot hentar einnig fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir Pirouette hóp.
Pirouette er fyrir börn á aldrinum 4-16 ára með brennandi áhuga á dansi og leiklist - þá sem vilja taka dansferilinn sinn lengra, setja meiri metnað og æfa meira. Dansarar í Pirouette keppa einnig fyrir hönd Danssporsins.
Prufur fyrir hópinn fara fram 28. ágúst.
Auk dansins læra nemendur hvernig á að vinna með öðrum, efla sjálfstraustið sitt og auka líkamsvitund.
04/08/2026
Þá er skráning formlega hafin fyrir haustönn 2026!
Hlökkum ekkert smá mikið til að hitta alla aftur í nýju rými og kynnast nýjum andlitum 💃🏻
Skráning: www.abler.io/shop/danssporid