Sundlaug Laugum

Sundlaug Laugum

Share

Glæsileg 25 m laug með tveimur rúmgóðum heitum pottum og vaðlaug. Laugar í Þingeyjarsveit eru 40 km. frá Húsavík, 45 km. frá Akureyri og ca. 20 km.

frá Mývatnssveit.

30/08/2026

Sumarlok - þrifavika - vetraropnun

Á morgun, mánudaginn 31. ágúst, er síðasti dagur sumaropnunar íþróttamiðstöðvarinnar. Sumaropnunin tók gildi 01. júní líkt og verið hefur en opnun til og með 31. ágúst er viðhöfð í fyrsta sinn. Áður miðaðist opnunin við 3 fyrstu vikur ágústmánaðar.

Lokað verður frá og með 01. september nk. vegna þrifaviku fram til mánudagsins 07. september er íþróttamiðstöðin opnar að nýju og þá skv. vetraropnun, sem er svofelld:

Mánudagar t.o.m. fimmtudagar kl. 07:30-09:30 og 16:00-21:30
Föstudagar kl. 07:30-09:30 og 15:00-19:00
Laugardagar kl. 12:00-16:00
Sunnudagar Lokað

Photos from Sundlaug Laugum's post 07/08/2026

Íslenskt sumar er stutt með langar bjartar sumarnætur - rysjótt, blautt, kalt í norðanvindi, þurrt, hlýtt í sunnan þey og þar sem við erum stöðugt að bíða góða veðursins hverfur það með hraða vindsins, kaldur eða hlýr má einu gilda.

Í texta hins sænska Tomas Ledin, Sommaren är kort, segir í vondri þýðingu:

..
Sumarið er stutt
að mestu rignir það burt
en nú er það hér
svo njóttu þess
sólin skín í dag
haustið kemur brátt
það (sumarið) fer með hraða vindsins
svo hlustaðu á mig
sólin skín kannski bara í dag
..

Hvað sem öðru líður hefur sumarið verið framlengt svo sem greint var frá á umliðnu vori, að sumaropnun gildir til og með 31. ágúst nk. Þannig er 11 tíma opnun í boði uns kemur að vikulangri lokun vegna þrifa á sundlaugarsvæðinu og því sem því tilheyrir sem og húsnæði miðstöðvarinnar. Enduropnun miðast við mánudaginn 07. september kl. 07:30.

Photos from Sundlaug Laugum's post 26/06/2026

Sumarið er tíminn og þótt það sé alla vega koma dagar þar sem fegurð landins birtist í yndisleik sínum. Dagurinn í dag er einn þessara daga og staðfestist með meðfylgjandi 2 myndum. Um leið og við þökkum gestum okkar komuna á sumrinu hvetjum við íbúa og gesti Þingeyjarsveitar til að líta við - tekið verður vel á móti hverjum þeim líkt og við ávallt gerum.

28/05/2026

Sumarið heilsar!

Mánudaginn 01. júní tekur við sumaropnun. Þar með verður opið alla daga í 11.0 klukkustundir milli kl. 10:00 - 21:00. Það eru liðlega 1.000 klukkustundir á sumartímabilinu svo gestir þurfa ekki að örvænta! Að þessu sinni miðast sumaropnun við sumarmánuðina 3, frá og með 01. júní til og með 31. ágúst. Þrifavika að sumri verður þannig í fyrstu viku september.

Undantekning frá reglunni er ein, þ.e. annars konar opnun: Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður opið milli kl. 10:00 - 14:00. Eru íbúar Þingeyjarsveitar hvattir til þátttöku í hátíðarhöldunum hvar við fögnum afmæli lýðveldisins og heiðrum minningu Jóns Sigurðssonar. Er vert að geta þess að hátíðarhöldin verða í Mývatnssveit þetta árið, við Skjólbrekku nánar tiltekið.

Verið öll hjartanlega velkomin til laugar og ræktar sumarið 2026!

Photos from Sundlaug Laugum's post 17/05/2026

Skyndihjálp og þrifavika

Sundprófi og skyndihjálp starfsmanna íþróttamiðstöðvar/sundlaugar er lokið en ásamt starfsmönnum ÍML taka starfsmenn sundlaugarinnar á Grenivík og starfsmenn ÍMS í Mývatnssveit þátt í námskeiðinu. Þeir fyrrnefndu aukinheldur í sundprófinu.

Líkt og verið hefur til fjölda ára er þrifavika sundlaugarsvæðis og húsnæðis íþróttamiðstöðvar 4ðu vikuna í maí. Nú er að þeim tímamótum komið og sama hvað fólki kann að finnast um lokunina kemur hún öllum vel; það er óneitanlega ánægjulegri tilfinning að geta með fullvissu baðað sig í hreinni laug og pottum, gengið um ganga og klefa meðvitaður um hið sama. Svo því sé til haga haldið er framangreint markmið alla daga ársins en 2var á ári er ráðist í meiriháttar þrif sem, ekki síst á sundlauginni.

Sum sé, næstu dagar eru þrifadagar er mynda þrifaviku og eins hratt og tíminn virðist fljúga líður hún hratt og handan næstu helgar er allt sem fyrr, bara heldur hreinna.

10/05/2026

Ágætu gestir íþróttamiðstöðvar

Fimmtudagurinn 14. maí er síðasti opnunardagur fyrir þrifaviku 18.-22. maí. Fimmtudagur er uppstigningardagur og er opið kl. 12:00-16:00. Föstudaginn 15. er lokað vegna sundprófs og skyndihjálparnámskeiðs starfsmanna og laugardaginn 16. eru skólaslit Framhaldsskólans.

Staðan á sundlauginni við lok þrifaviku verður metin hvort opið verður laugardaginn 23. en annars miðast enduropnun við mánudaginn 25. og verður opið samkvæmt vetraropnun til mánaðamóta maí-júní.

Frá og með 01. júní og verður opið alla daga vikunnar til og með sunnudaginn 16. ágúst er næsta þrifavika tekur við. 11 vikur með 11 tíma opnun með einni undantekningu, 17. júní - þjóðhátíðardagur lýðveldisins, er opið kl. 12:00-16:00.

-forstöðumaður

30/04/2026

Fyrsti maí

Íþróttamiðstöðin verður opin á degi verkalýðsins 1. maí milli kl. 12:00 og 16:00. Sama opnun á laugardag annan maí.

20/04/2026

Sumarið heilsar!

Sjálfsagt á eftir að ganga á ýmsu í veðrinu næstu vikurnar, það er gömul saga og ný, en alltént mun íslensk þjóð fagna sumri næstkomandi fimmtudag, á sumardaginn fyrsta þann 23. apríl.

Í tilefni sumarfögnuðar er gestum íþróttamiðstöðvarinnar á Laugum boðinn aðgangur endurgjaldslaust þann dag! Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, kveðjum vetur og heilsum sumri með tilheyrandi gleði og gáska - velkomin!

Rétt er að geta þess að opnun á sumardaginn fyrsta er milli kl. 12:00-16:00.

06/04/2026

Vakin er athygli á eftirfarandi:

Breyting á opnuntartíma íþróttamiðstöðvar þær vikur sem eftir eru vetrar þannig:

Mán.-fim. kl. 07:30-09:30 / 15:00-21:30, þ.e. klukkustund fyrr en verið hefur.
Fös. kl. 07:30-09:30 / 13:00-19:00, þ.e. 2 klukkustundum fyrr en verið hefur.

Vísað er til samþykktar sveitarstjórnar hér að lútandi, sbr.:

Á 76. fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar sem haldinn var 25. mars var eftirfarandi bókað og samþykkt:

2603061 - Ungmennaráð - opnunartími íþróttahúss

Á 2. fundi ungmennaráðs Þingeyjarsveitar var eftirfarandi samþykkt undir lið 6.a. - Önnur mál:
"Nemendur Þingeyjarskóla óska eftir því að opnunartími íþróttahúss, sundlaugar
og ræktar á Laugum verði breytt í samræmi við komu skólabíla úr Þingeyjarskóla
á virkum dögum og einnig að um helgar verði opið lengur og sundlaugin opin
lengur fram á kvöldið.
Bókun fundar: Ungmennaráð styður þessar óskir. Samþykkt.

Sveitarstjórn þakkar ábendingu ungmennaráðs og samþykkir lengda opnun sundlaugar á Laugum á virkum dögum út þetta skólaár, í samræmi við framlagða kostnaðaráætlun. Þessi lenging á opnunartíma verði endurskoðuð fyrir næsta skólaár m.t.t. nýtingar.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Laugar?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Lautavegur 5
Laugar
650

Opening Hours

Monday 10:00 - 21:00
Tuesday 10:00 - 21:00
Wednesday 10:00 - 21:00
Thursday 10:00 - 21:00
Friday 10:00 - 21:00
Saturday 10:00 - 21:00
Sunday 10:00 - 21:00