Keflavík Karfa - Yngri Flokkar

Keflavík Karfa - Yngri Flokkar

Share

Komdu í körfu!🏀💙

29/08/2026

1-2 bekkur byrjar að æfa 1. september! Þekkir þú einhvern sem vill prófa? Endilega sendu okkur línu💙🏀

24/08/2026

Æfingar hefjast á næstu dögum🏀💙

24/08/2026

Komdu í körfu! 🏀💙

23/08/2026

🏀💙 Æfingartafla vetrarins er klár!🙌🏻

Nú styttist í að boltinn fari aftur að skoppa og við getum ekki beðið eftir að byrja! 💪🏻

Æfingar hefjast að mestu samkvæmt æfingatöflu 25. ágúst.
🌅 Morgunæfingar hefjast 31. ágúst
🏀 1.–2. bekkur byrjar 1. september
💙 Leikskólabörn byrja 12. september

Við hlökkum til að sjá ykkur öll aftur á körfuboltavellinum!
Áfram Keflavík🏀💙

21/08/2026

Nýr búningur fyrir yngri flokka Keflavíkur!

Með æfingagjöldunum í ár fylgir nýtt búningasett frá Macron.
Treyja, stuttbuxur og Keflavíkur sokkar.

Hvernig nálgast ég búning?
1. Skráir iðkanda í flokk á abler og greiðir æfingagjöld.
2. Mætir í Víkurbása, Njarðarbraut 9 Reykjanesbæ
3. Mátar búning og stuttbuxur, lætur vita hvaða stærð þú vilt, hvaða nafn þú vilt á búninginn og númer sem þér var úthlutað frá Keflavík (1. Bekkur og nýir iðkendur verður úthlutað númeri frá BUR)
4. Víkurbásar tilkynnir þér hvenær búningurinn verður tilbúin, þú sækir til þeirra.

Í víkurbásum verður rafrænt skjal þar sem merkt verður við hvern og einn iðkanda. Í skjalinu verða númer iðkenda líka.

Í Víkurbásum er einnig hægt að fá allskonar Keflavíkur vörur sem við hvetjum alla til að kíkja á.

Hlökkum til vetrarins!
Áfram Keflavík
💙🏀

11/08/2026

Nýr yfirþjálfari yngriflokka Keflavíkur!

Jón Guðmundsson hefur verið ráðinn nýr yfirþjálfari yfir Barna og unglingastarfi Keflavíkur í körfubolta. Hann mun hefja strax störf í að þróa og móta körfuboltann í Keflavík fyrir núverandi iðkendur, þjálfara og komandi kynslóðir.

Jón þekkir vel starfið í Keflavík enda verið þjálfari í félaginu í tugi ára. Við erum virkilega glöð með að fá Jón til starfa hjá okkur og hlökkum til vetrarins.

Velkominn til starfa Jón 💙

Photos from Keflavík Karfa - Yngri Flokkar's post 06/07/2026

Krakkarnir okkar ì Finnlandi 💙

Photos from Keflavík Karfa - Yngri Flokkar's post 04/07/2026

Keflavík og Víðir samstarf

Barna og unglingaràð Keflavíkur körfubolta og Knattspyrnufélagið Víðir í Garði hafa undirritað samkomulag um að Keflavík leiki undir merkjum Víðis í elstu flokkum drengja.

11. flokkur karla verður Keflavík/Víðir
12. flokkur karla verður Keflavík/Víðir
Mfl. (B-lið) verður Víðir

Með þessu samstarfi gefum við iðkendum okkar tækifæri á því að verða lengur í körfubolta, tækifæri á að þróa sinn leik og fá spilatíma, reynslu að spila meistaraflokks bolta og gefum ungum leikmönnum tækifæri á að vaxa og dafna sem leikmenn áður en þeir fá tækifæri með mfl. Keflavíkur.

Markmið félagsins er að koma Víðir í 1.deild karla og gefa þar okkar ungu leikmönnum tækifæri á að þróa sinn leik í mfl. og undirbúa þá fyrir Bónus deildina. Þar fá ungir leikmenn tækifæri á að verða betri og etja kappi við alvöru andstæðinga sem flýtir fyrir þeirra möguleika að koma inn í mfl. Keflavík.

Með samstarfinu getum við Venslað s*x leikmönnum á milli mfl. Keflavíkur og Víðis. Geta þessir s*x leikmenn spilað fyrir bæði lið.
Allir leikmenn í 11. og 12. flokk geta spilað fyrir Víðir mfl.

Vonandi mun þetta á endanum skila okkur fleiri leikmönnum í mfl. Keflavíkur og landslið Íslands á komandi árum.

Þjálfari: Leifur Steinn Arnason
Aðstoðar þjálfari: Elvar Snær Guðjónsson

Við hlökkum til samstarfsins

Photos from Keflavík Karfa - Yngri Flokkar's post 03/07/2026

Það fóru 10 leikmenn frá okkur erlendis í gær til að keppa fyrir hönd Íslands í Norðurlandamóti U16 og EM U20.

7 stelpur og 3 drengir 💙

Við erum ekkert eðlilega stolt af krökkunum okkar sem hafa lagt gríðarlega vinnu og metnað til að komast á þennan stað.

Við óskum ykkur góðs gengis í Finnlandi og Litháen 💙

Hanna Gróa Halldórsdóttir (U20)

Björk Karlsdóttir
Elva Björg Ragnarsdóttir
Heiðrún Lind Sævarsdóttir
Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir
Lísbet Lóa Sigfúsdóttir
Oddný Hulda Einarsdóttir

Arnar Freyr Elvarsson
Davíð Breki Antonsson
Sigurður Karl Guðnason

09/06/2026

Leifur Steinn Àrnason kemur til Keflavíkur!

Barna og unglingaráð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur ráðið Leif Stein Àrnason til starfa í þjálfun fyrir veturinn 2026/2027.

Leifur mun þjálfa nokkra flokka hjá okkur í vetur:
7.-8. bekk karla
9.-10. bekk kvenna
11. flokk / 12. flokk / b-lið karla (Meira um það verkefni síðar)

"Við erum gríðarlega spennt fyrir því að fá Leif til starfa hjá okkur. Það er okkur mikill heiður að Leifur, sem hefur víðtæka reynslu að þjálfun vilji koma til Keflavíkur og þjálfa hjá okkur. Hann er mjög metnaðarfullur þjálfari. Okkur hlakkar til að vinna með honum í vetur." Sagði Garðar Örn ný kjörinn formaður BUR.

Tilkynnt verður um frekari þjálfara ráðningar fyrir næsta vetur á næstu dögum.

Áfram Keflavík

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Keflavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Keflavík