Golfklúbbur Suðurnesja

Golfklúbbur Suðurnesja

Share

Golfklúbbur Suðurnesja

14/07/2026

Góðan daginn kæru félagar.

Miðvikudagsfjörið verður ekki sem slíkt þennan miðvikudaginn því GS konur verða á flakki en við hvetjum alla að skrá sig í golf á morgun, prófa eitthvað nýtt t.d. Greensome og eiga góðan dag saman í Leirunni.
Greensome er spilað þannig að tveir eru saman í liði. Báðir slá teighögg, velja annan boltann og slá svo til skiptis eftir það með boltanum sem var valinn. Þetta er skemmtilegur leikur þar sem maður kemur meðspilaranum alltaf í skemmtilegar aðstæður en þarf ekki að hafa áhyggjur af næsta höggi því meðspilarinn sér um það.

Björgvin og Rut klúbbmeistarar GS 2026 13/07/2026

🏆 Björgvin og Rut klúbbmeistarar GS 2026 🏆

Meistaramóti Golfklúbbs Suðurnesja 2026 lauk á laugardag eftir glæsilega mótsviku þar sem 152 kylfingar tóku þátt í 11 keppnisflokkum – fjölmennasta Meistaramóti í sögu GS.

Í meistaraflokki karla varð Björgvin Sigmundsson klúbbmeistari í annað sinn eftir magnaða lokabaráttu þar sem aðeins einu höggi munaði á honum og Róberti Smára Jónssyni.

Í meistaraflokki kvenna tryggði Rut Þorsteinsdóttir sér sinn fimmta klúbbmeistaratitil og bættist þar með í hóp Karenar Sævarsdóttur og Karenar Guðnadóttur sem hafa einnig unnið titilinn fimm sinnum.

Spennan var víða mikil en úrslit í 1. flokki karla, 65+ höggleik karla og opnum punktaflokki karla réðust á síðasta pútti mótsins og í 2. flokki karla þurfti þriggja manna bráðabana.

Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þökkum öllum keppendum, sjálfboðaliðum, starfsfólki, styrktaraðilum og áhorfendum fyrir frábæra mótsviku. 👏⛳

👉 Sjá nánari umfjöllun, úrslit í öllum flokkum og nándarverðlaunahafa í fréttinni.

Björgvin og Rut klúbbmeistarar GS 2026 Meistaramóti Golfklúbbs Suðurnesja 2026 lauk á laugardag eftir glæsilega mótsviku þar sem 152 kylfingar tóku þátt í ellefu flokkum. Það er metþátttaka og fjölmennasta Meistaramót í sögu Golfklúbbs Suðurnesja.Allir flokkar fengu að upplifa bæði shotgun-ræsingu og hefðbundna ...

02/07/2026

⛳️ Síðasti dagur til að skrá sig í Meistaramót GS

Skráningarfrestur í Meistaramót Golfklúbbs Suðurnesja rennur út á miðnætti í kvöld.

Þau sem ætla að taka þátt þurfa að ganga frá skráningu fyrir þann tíma.

Eftir að skráningarfresti lýkur verður ekki hægt að bæta við keppendum.

Við hlökkum til að sjá ykkur í Leirunni í fjölmennasta móti ársins hjá GS! ⛳️

01/07/2026

Stigamót GS #3 – úrslit ⛳️

Stigamót GS #3 fór fram í gær. Veðrið setti klárlega svip á þátttökuna, en þeir kylfingar sem létu veðrið ekki stoppa sig fengu krefjandi golfhring í Leirunni.

Punktakeppni
1. Guðni Hörðdal Jónasson – 38 punktar
2. Sigurrós Hrólfsdóttir – 37 punktar
3. Svandís Þorsteinsdóttir – 36 punktar

Höggleikur
Sigurður Stefánsson sigraði höggleikinn á 74 höggum. Hann og Pétur Þór Jaidee luku báðir leik á 74 höggum, en örn Sigurðar á 15. holu og betra skor á síðustu s*x holunum tryggðu honum sigurinn.

Nándarverðlaun
Guðni Hörðdal Jónasson var næstur holu á 16. holu.

Staðan eftir þrjú af s*x stigamótum
Karlar
1. Arnmundur Sigurðsson 103 punktar eftir þrjú mót
2. Sveinn Björnsson 102 punktar eftir þrjú mót
3. Aron Ingi Valtýsson 100 punktar eftir þrjú mót
Konur
1. Sigurrós Hrólfsdóttir 103 punktar eftir þrjú mót
2. Svandís Þorsteinsdóttir 96 punktar eftir þrjú mót
3. Karitas Sigurvinsdóttir 79 punktar eftir tvö mót

Athugið að bestu fjögur úrslit af s*x stigamótum telja til lokastöðu og því er enn mikil spenna fram undan.

Verðlaunahafar geta sótt vinninga sína í golfverslun GS.

Nú tekur Meistaramót GS við. Alls hafa 93 félagsmenn þegar skráð sig. Skráning stendur yfir í Golfbox og lýkur á miðnætti aðfaranótt 3. júlí.

Næsta stigamót GS fer síðan fram þriðjudaginn 4. ágúst.

Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt.

25/06/2026

⛳ Meistaramót GS 2026 – skráning er í gangi!

Golfhátíð sumarsins í Leirunni fer fram dagana 7.–11. júlí á Hólmsvelli.

Keppt verður í fjölmörgum flokkum og við hvetjum alla félagsmenn til að taka þátt – hvort sem markmiðið er að berjast um titla, bæta eigið golf eða njóta frábærrar stemningar með öðrum GS-ingum.

Skráning lýkur miðvikudaginn 2. júlí á miðnætti.

Ræst verður út með shot-gun fyrirkomulagi þriðjudag-miðvikudag-fimmtudag kl. 10:00 og 16:00. Ræst verður út með rúllandi ræsingu föstudag og laugardag.

🔗 Hlekkur á skráningu í Golfbox er í fyrstu athugasemd.

24/06/2026

Fjóla Margrét valin í kvennalandslið Íslands 🇮🇸⛳

Golfklúbbur Suðurnesja óskar Fjólu Margréti innilega til hamingju með valið í kvennalandslið Íslands.

Evrópumót kvenna fer fram á Írlandi dagana 7.–11. júlí, en fyrir mótið fer landsliðið í æfingaferð til Woodhall Spa í Englandi, heimavallar enska landsliðsins í golfi.

Fjóla hefur átt sterkt tímabil hingað til. Um síðustu helgi hafnaði hún í 4. sæti á Íslandsmótinu í holukeppni eftir að hafa komist alla leið í undanúrslit. Þá er hún einnig í 3. sæti á stigalistanum eftir fyrstu stigamót sumarsins.

Sem ríkjandi Íslandsmeistari og stigameistari unglinga hefur Fjóla lagt mikla vinnu í æfingar undanfarna mánuði og varið ófáum klukkustundum á æfingasvæðinu og púttflötinni í Leirunni.

Meðfylgjandi mynd var tekin um síðustu helgi á Íslandsmótinu í holukeppni.

Það er einnig ánægjulegt að þjálfari kvennalandsliðsins er Logi Sigurðsson úr GS og á klúbburinn því tvo fulltrúa í landsliðsverkefninu.

Í haust tekur Fjóla næsta skref á ferlinum þegar hún heldur vestur um haf, hefur nám og spila háskólagolf fyrir University of Idaho í Bandaríkjunum.

Við erum stolt af Fjólu og óskum henni, Loga og kvennalandsliðinu góðs gengis í komandi verkefnum. 💙

21/06/2026

Lokadagur í Leirunni ⛳🏆

Í dag ræðst hver verður Íslandsmeistari í holukeppni karla 2026.

Fjórir kylfingar eru eftir í baráttunni um titilinn:
Aron Emil Gunnarsson (GOS) mætir Guðmundi Ágústi Kristjánssyni (GR) og Veigar Heiðarsson (GA) mætir Birgi Birni Magnússon (GK).

Aðstæður eru eins og best verður á kosið, veðrið leikur við keppendur og Hólmsvöllur skartar sínu fegursta.

Fjóla Margrét er einnig komin af stað í Oddinum og hægt er að fylgjast með henni í fyrstu athugasemd.

20/06/2026

Fjóla Margrét í undanúrslit! ⛳💪

Fjóla Margrét lék frábært golf í dag og vann báða leiki sína með sannfærandi hætti á Íslandsmóti kvenna í holukeppni.

Hún vann fyrst 5/4 í 16 manna úrslitum og síðan 7/5 í 8 manna úrslitum.

Með sigrunum tryggði Fjóla Margrét sér sæti í undanúrslitum þar sem hún mætir Heiðu Rakel Rafnsdóttur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar á morgun.

Við óskum Fjólu Margréti góðs gengis í undanúrslitunum.

Áfram Fjóla! 💙

Photos from Golfklúbbur Suðurnesja's post 20/06/2026

Íslandsmótið í holukeppni

Fjóla Margrét hefur leik kl. 9.00 í 16 manna úrslitum en hún leikur á Urriðavelli hjá GO.

16 manna úrslitin hefjast hjá okkur í Leirunni núna kl. 8.00 og munu margir af bestu leikmönnum landsins kljást nú í morgunsárið.
Leikið verður svo aftur eftir hádegi í 8 manna úrslitum og er áætlaðir rástímar frá kl. 13.11 eftir hádegi.

Við hvetjum alla klúbbmeðlimi að kíkja annaðhvort á Urriðavöll og styðja Fjólu okkar.
Einnig hvetjum við ykkur að kíkja út í Leiru, fá sér gott að borða og sjá bestu leikmenn landsins spila völlinn okkar í Landsmótsbúningi.

19/06/2026

Íslandsmótið í holukeppni 2026 fer fram dagana 19.–21. júní.

Karlaflokkur mótsins verður leikinn á Hólmsvelli í Leiru en kvennaflokkurinn á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.

Golfklúbbur Suðurnesja á fimm fulltrúa á mótinu í ár. Í karlaflokki keppa Snorri Rafn William Davíðsson, Gunnar Þór Ásgeirsson, Pétur Þór Jaidee og Ingi Rafn William Davíðsson. Í kvennaflokki keppir Fjóla Margrét Viðarsdóttir.

Mótið hefst á föstudag með 36 holu höggleik. Að honum loknum komast 16 efstu kylfingarnir í hvorum flokki áfram í holukeppnina þar sem leikið verður um Íslandsmeistaratitlana.

Hólmsvöllur er í frábæru ástandi fyrir mótið og erum við stolt af því að taka á móti bestu kylfingum landsins í Leirunni. Við kunnum vallarstarfsmönnum okkar og fjölmörgum sjálfboðaliðum bestu þakkir fyrir þeirra framlag við undirbúning mótsins.

Við óskum öllum keppendum góðs gengis og hlökkum til spennandi keppni um helgina.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Keflavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Garðskagavegur
Keflavík
250