30/08/2026
Coach Vikar - Vikar Sigurjónsson
Lífsstíll
Líkamsrækt og ljósastofa
30/08/2026
19/08/2026
LJÓSANÆTURHLAUPIÐ 2026
ATH! NÝJAR HLAUPALEIÐIR OG NÝR RÁSSTAÐUR!
Rásmark er hjá Stapalaug, Dalsbraut 11, 260 Reykjanesbæ, (Innri Njarðvík)
ENDILEGA DEILIÐ🩷
SKRÁNING ER Í FULLUM GANGI.
Vegalengdir fyrir ALLA Fjölskylduna + Góður málsstaður.
Ljósanæturhlaupið fer fram miðvikudaginn 2. september kl 18.30.
500 kr. af hverri skráningu renna í MINNINGARSJÓÐ ÖLLA.
Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.
Ljósanæturhlaupið er árlegur viðburður sem fram fer í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Framkvæmd hlaupsins er í höndum Vikars Sigurjónssonar.
Hlaupið er um götur Reykjanesbæjar.
Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel hlaupaleiðir áður en hlaupið er af stað.
Hægt er að skoða kort af leiðunum á skráningarsíðu hlaupsins, á facebook síðu “Vikar Sigurjónsson” og við rásmark.
Keppt er í eftirtöldum vegalengdum: 3,5 km, 7 km og 10 km.
Flögu tímamæling verður notuð í Ljósanæturhlaupinu í öllum vegalengdum.
Ljósanæturhlaupið er tilvalið fyrir alla fjölskylduna og hægt að finna vegalendir við allra hæfi.
Rásmark og endamark verða við Stapalaug, Dalsbraut 11, 260 Reykjanesbæ.
Búnings-og sturtuaðstaða er í Stapalaug, Reykjanesbær býður þátttakendum í sund að hlaupi loknu.
Dagskrá og tímasetningar:
Ræsing í 10 km kl 18:30
Ræsing í 7 km kl 18:35
Ræsing í 3,5 km kl 18:40
Verðlaunaafhending verður um kl. 19:50
Verðlaun.
Hlaupið er aldursflokkaskipt í 7 og 10 km. og eru verðlaun fyrir besta árangur í öllum flokkum í 7 km og 10 km. Í 3,5 km. eru veitt verðlaun fyrir 15 ára og yngri og 16 ára og eldri.
Glæsileg útdráttarverðlaun sem dregin verða úr nöfnum allra þátttakenda.
Þátttökugjald
3,5 km: 2.000 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 1.500 fyrir 14 ára og yngri.
7 km og 10 km: 3.000 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 2.000 fyrir 14 ára og yngri.
Athugið að skráningargjald hækkar um 1.000 fyrir alla flokka ef skráð er eftir kl 23.59 Mánudaginn 31. Ágúst
Skráning.
Við hvetjum alla til að tryggja sér skráningu á
netskraning.is (http://netskraning.is/) til að forðast óþarfa stress.
Afhending keppnisgagna hefst kl 17 á hlaupadegi.
Umsjón:
Vikar Sigurjónsson sími 899-0501
02/09/2025
Nokkrar myndir úr LJÓSANÆTURHLAUPINU 2024💜
Ætlar þú að vera með í ár?
Skráning á NETSKRANING.is
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Telephone
Website
Address
Vatnsnesvegur 12
Keflavík
230
Opening Hours
| Monday | 05:45 - 21:45 |
| Tuesday | 05:45 - 21:45 |
| Wednesday | 05:45 - 21:45 |
| Thursday | 05:45 - 21:45 |
| Friday | 05:45 - 21:00 |
| Saturday | 09:00 - 18:00 |
| Sunday | 10:00 - 18:00 |