24/07/2026
Jæja!
Smá uppfærsla. Erum ekki búnir að vera aðgerðarlausir undanfarið og hefur ýmislegt verið gert.
Kom einhver alvöru hugur í mann þegar tímabilið fór af stað.
Framhásing er klár fyrir utan stífuvasa og stýristjakk.
Skipting er klár og búið að koma skiptir á sinn stað.
Búið er að stilla afturhásingunni á sinn stað svo hægt sé að græja stífuvasa.
Stýrisrótor kominn á sinn stað.
Þannig að þetta fer vonandi að standa í hjólin fljótlega.
Einnig er búið að kaupa flest af því sem fer í vélina.
Óska hér með eftir einhverjum styrktaraðila til að aðstoða við að klára bílinn svo hægt sé að mæta á Hellu næsta sumar 😁
01/05/2026
Hér hefur lítið gerst en erum að fara af stað aftur með smíðina á bílnum. Það er ennþá verið að safna saman dóti í bílinn.
Við hvetjum alla hinsvegar til að mæta á Hellu á morgun. Þetta verður algjör veisla😎
Þeir sem geta ómögulega komið þá getið þið horft a keppnina live á rúv 2 eða á youtube.
🏁 hérna er svo keppnisdagatalið fyrir sumarið 🏁
31/01/2025
Það var unnið aðeins í framendanum í gær og það er allt að smella saman 🤗
24/10/2024
Það hefur verið frekar rólegt en samt eitthvað smá búið að gerast.
Planið var að lagfæra framendann en enduðum á að skera hann af 😅 og er verið að smíða framenda sem verður aðeins breyttur frá því sem hann var 😅
Eins og það hafi ekki verið nóg að gera fyrir þá var nauðsynlegt að bæta við verkefni 😆🥴
Einnig var keyptur Kirkey álstóll til að hafa í bílnum 😎
Það verða teknar einhverjar vinnustundir í þessu og verður framendi og eitthvað meira vonandi klárt á næstunni 😊
18/11/2023
Þetta gerist hægt en kemur allt á endanum. Það er komin skipting sem verður notuði þetta.
Powerglide með 1.8 hlutfalli og verður ljónakassi aftan á henni 😎
Einnig eru mótorfestingar tilbúnar og hvalbaksplata næstum klár 😁
Það verða svo sérsmíðaðar hásingar að framan og aftan með ford 9" drifum. Það verður byrjað að smíða þær á næstunni.
Hugmyndin er að vera með 2025 en ef nást einhverjir styrktaraðilar í vetur sem eru tilbúnir að vera með okkur í liði þá erum við tilbúnir að bæta við vinnustundum í skúrnum og vera með á næsta ári.
Þannig að hér með óskum við eftir styrktaraðilum til að hjálpa okkur 🤞🤞🤞
25/10/2023
Það hefur verið frekar rólegt í skúrnum undanfarið. En það kom hins vegar pakki í vikunni og verður gaman að koma því saman.
En hásingar ættu að þola ýmislegt allavega 🙈😎
11/09/2023
Það var tekið smá vinnukvöld í þessum.
Búið er að staðsetja mótor þar sem hann á að vera. Þannig að núna verður hægt að smíða hvalbak og restina af mótorfestingum.
Ooooog allt hitt sem er eftir 🤣
Þetta gengur hægt en gengur samt í rétta átt. Ýmislegt sem vantar en það kemur með tímanum.
30/08/2023
Jæja kominn tími á smá uppfærslu.
En aðal atriðið er það að komin er vél í skúrinn svo núna verður hægt að fara staðsetja hana og þá er hægt að gera helling útfrá því. En þetta mun vera mátturinn og dýrðin 5.3 LM7. Sjáum svo hvað verður gert við hana. Turbo eða nítró. Það á eftir að koma í ljós.
Einnig eru komin einhver dekk svona til að byrja með. Koma ný dekk einhverntíman en það er ekki nærri því strax.