17/07/2026
Unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina, sjá upplýsingar hér:
https://www.keflavik.is/almennt/frettir/unglingalandsmot-umfi-2
https://www.umfi.is/vidburdir/unglingalandsmot/
Unglingalandsmót - Ungmennafélag Íslands
Unglingalandsmót UMFÍ er ein stærsta fjölskyldu- og íþróttahátíð landsins og hefur sameinað börn, ungmenni og fjölskyldur víðs vegar að af landinu frá árinu 1992. Á mótinu keppa þátttakendur á aldrinum 11–18 ára í fjölbreyttum íþróttagreinum yfir daginn, skapa nýjar m...
03/07/2026
Fràbærir fulltrúar Keflavíkur með landsliðinu 💙🏀💙 Áfram Ísland 🇮🇸
24/06/2026
Sundráð ÍRB leitar að þjálfara fyrir næsta sundtímabil fyrir yngri hópa félagsins!
Erum við að leita að þér? 😀
15/06/2026
Það verður nóg að gera í Taekwondo Keflavík í sumar :)
Nóg um að vera í Taekwondodeildinni
Í sumar verður nóg að gera hjá taekwondo deildinni. Við munum bjóða upp á Drekaævintýrið fyrir 6-11 ára (sjá nánari lýsingu á hlekknum) https://docs.google.com/document/d/1vTdrGRS1WTDZyfBWp-X0EeVonaUbC5JgGNXIyUb6Gv8/edit?usp=sharing Svo verða sumaræfingarnar á sínum stað ásamt...
10/06/2026
Það er með miklum trega sem Keflavík kveður Þorstein Ólafsson, fyrrum markvörð félagsins, sem fallinn er frá.
Þorsteinn stóð vaktina í marki Keflavíkur um árabil og var mikilvægur hluti af einu sterkasta tímabili í sögu félagsins. Hann var lykilmaður í gullaldarliði Keflavíkur sem vann Íslandsmeistaratitilinn þrisvar á fimm ára tímabili, 1969-73.
Á ferli sínum lék Þorsteinn m.a. með IFK Gautaborg í Svíþjóð, og var ávallt öflugur fulltrúi Keflavíkur og íslenskrar knattspyrnu. Hann á að baki 16 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Keflavík þakkar Þorsteini fyrir ómetanlegt framlag til félagsins í gegnum árin. Minning hans mun lifa áfram í sögu Keflavíkur og hjá öllum þeim sem fengu að kynnast honum.
Aðstandendum og vinum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur 🔵⚪️
09/06/2026
Vertu velkominn til okkar í Keflavík 💙
Leifur Steinn Àrnason kemur til Keflavíkur!
Barna og unglingaráð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur ráðið Leif Stein Àrnason til starfa í þjálfun fyrir veturinn 2026/2027.
Leifur mun þjálfa nokkra flokka hjá okkur í vetur:
7.-8. bekk karla
9.-10. bekk kvenna
11. flokk / 12. flokk / b-lið karla (Meira um það verkefni síðar)
"Við erum gríðarlega spennt fyrir því að fá Leif til starfa hjá okkur. Það er okkur mikill heiður að Leifur, sem hefur víðtæka reynslu að þjálfun vilji koma til Keflavíkur og þjálfa hjá okkur. Hann er mjög metnaðarfullur þjálfari. Okkur hlakkar til að vinna með honum í vetur." Sagði Garðar Örn ný kjörinn formaður BUR.
Tilkynnt verður um frekari þjálfara ráðningar fyrir næsta vetur á næstu dögum.
Áfram Keflavík
09/06/2026
Við leitum af yfirþjálfara Rafíþróttadeildar Keflavíkur - skemmtilegt og spennandi starf í boði
Yfirþjálfari Rafíþróttadeild Keflavíkur | Rafíþróttadeild Keflavíkur
Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, leitar að öflugum og metnaðarfullum yfirþjálfara til að leiða rafíþróttadeild félagsins. Rafíþróttir eru ört vaxandi íþróttagrein og hjá Keflavík bjóðum við upp á metnaðarfullt og faglegt starf þar sem áhersla er lögð á jákvæt...
05/06/2026
Við erum endalaust stolt af okkar iðkendum 💙