Yoga Líf

Yoga Líf

Share

Yoga Líf býður upp á fjölbreytt námskeið í Yoga og Pilatesi í notalegu andrúmslofti. Kennt Yoga og Pilates

30/06/2026

✨ Sumarið er til að njóta – og það er líka fullkominn tími til að huga að sjálfum sér. 💛

Júlí er fram undan og stundaskrá Yoga Lífs er óbreytt. Það er alltaf hægt að bætast í hópinn, hvort sem þú ert að koma aftur til okkar eða langar að prófa í fyrsta sinn. 🧘‍♀️

Við bjóðum fyrrverandi, núverandi og nýja iðkendur hjartanlega velkomna í hlýlegt og notalegt umhverfi þar sem vellíðan, hreyfing og núvitund fara saman.

💛 Komdu og gefðu þér tíma fyrir þig í sumar – við hlökkum til að taka á móti þér.

Nánari upplýsingar og skráning á yogalif.is 🌸

26/06/2026

✨ Við erum loksins búin að opna NAMA ✨

Við erum ótrúlega spennt að kynna okkar eigin vörulínu. Nýja NAMA línan er komin í loftið með mjúkum, vönduðum og tímalausum flíkum sem hreyfast með þér.
Til að fagna opnuninni færð þú 20% afslátt af allri vöru fyrstu vikuna með kóðanum:
NAMA
Við hjá NAMA sameinum þægindi og stíl í flíkum sem henta bæði hversdags og á hreyfingu.

Þið megið endilega skoða úrvalið á nama.is 🤍

Velkomin til NAMA.

YogaLif - Find Your Balance 02/06/2026

Yoga Líf býður upp á fjölbreytta tíma í allt sumar þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi – hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða hefur lengi verið á dýnunni 🧘‍♀️
Dagskráin er opin og sveigjanleg, svo þú getur mætt í þá tíma sem henta þér, eins oft og þú vilt 🥰
Við hlökkum til að taka á móti nýjum, núverandi og fyrrverandi iðkendum – það er alltaf pláss fyrir þig hjá okkur 💞🌷
Skráning og nánari upplýsingar fara fram á heimasíðunni okkar 🌸
https://yogalif.is/
Hlökkum innilega til að eiga með ykkur nærandi og góðar stundir í sumar ✨🌞

YogaLif - Find Your Balance Róleg og djúp teygjuæfing þar sem stellingum er haldið í lengri tíma. Hentar vel til að losa spennu og dýpka slökun.

18/05/2026

Kæru Yoga Lífs vinir 🌸

Morguntímarnir Yoga og Styrkur með Jóhönnu verða opnir núna síðustu tvær vikurnar í maí 🧘‍♀️ endilega nýtið ykkur þessa dásamlegu tíma, yndisleg leið til að hefja daginn 💞

Skráning í momo kerfinu 🌷

https://www.momoyoga.com/yogalif/register/

YogaLif - Find Your Balance 06/05/2026

Kæru Yoga Lífs vinir 🌸

Sumarið er að ganga í garð og við erum spennt að kynna sumardagskrá Yoga Lífs 🌞

Í allt sumar bjóðum við upp á fjölbreytta tíma þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi – hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða hefur lengi verið á dýnunni 🧘‍♀️

Dagskráin er opin og sveigjanleg, svo þú getur mætt í þá tíma sem henta þér, eins oft og þú vilt 🥰

Við hlökkum til að taka á móti nýjum, núverandi og fyrrverandi iðkendum – það er alltaf pláss fyrir þig hjá okkur 💞🌷

Skráning og nánari upplýsingar fara fram á heimasíðunni okkar 🌸

https://yogalif.is/

Hlökkum innilega til að eiga með ykkur nærandi og góðar stundir í sumar ✨🌞

YogaLif - Find Your Balance Róleg og djúp teygjuæfing þar sem stellingum er haldið í lengri tíma. Hentar vel til að losa spennu og dýpka slökun.

22/04/2026

Kæru Yoga Lífs vinir 🌷

Á morgun, sumardaginn fyrsta, verður óhefðbundin dagskrá hjá okkur í Yoga Líf 🌸
Auður mun leiða tvo opna tíma – annars vegar kl. 11:00 og hins vegar kl. 12:00. Tímarnir eru komnir inn í momo skráningakerfið okkar ☺️

Endilega takið á móti sumrinu með okkur á dýnunni 🌞❤️

Gleðilegt sumar, kæru vinir, og takk kærlega fyrir yndislegan vetur 🥰🧘‍♀️

Kærleiks- og sumarkveðjur,
Kennarar Yoga Lífs

14/04/2026

Kæru Yoga Lífs vinir

Það er enn hægt að bætast í hópinn á þetta frábæra námskeið hjá okkur sem hófst í morgun 🌸 yndisleg leið að hefja daginn💞🧘‍♀️

🌿 NÝTT HJÁ YOGA LÍF – MORGUNYOGA & STYRKUR 🌿

FRÍR PRUFUTÍMI 9.APRÍL

Langar þig að fara inn í sumarið sterk, orkumikil og í frábæru jafnvægi?

Við hjá Yogalíf kynnum glænýtt morgunnámskeið sem stendur yfir í 4 vikur á þriðju-og fimmtudögum kl. 07:30 – 08:30. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 14.apríl en við bjóðum upp á frían prufutíma 9.apríl.

Á námskeiðinu blöndum við saman yoga og styrk á skemmtilegan og áhrifaríkan hátt.
Við sameinum styrktaræfingar sem tóna líkamann og byggja upp sterkan kjarna við mjúkt orkugefandi yoga sem eykur jafnvægi, liðleika og kemur þér feskri út í daginn. Þú verður sterkari, liðugri og orkumeiri.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum þar sem æfingarnar eru aðlagaðar að hverjum og einum.
Gefðu sjálfri þér bestu sumargjöfina og byrjaðu daginn á besta mögulega hátt.

✨ Takmarkað pláss – skráðu þig núna og tryggðu þér dýnu!
Kennari námskeiðsins er Jóhanna Benediktsdóttir yogakennari.
Skráning á [email protected]

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Hlíðarsmári 17
Kópavogur
201