HK

HK

Share

Handknattleiksfélag Kópavogs
Gleði - Virðing - Metnaður
Stofnað 26. janúar 1970
#liðfólksins

28/08/2026

Skák fyrir börn og ungmenni♟️

HK hefur nú skákstarf fyrir börn og ungmenni undir leiðsögn Benedikts Briem, öflugs skákmanns með 2239 ELO-stig.

Markmiðið er að skapa skemmtilegt og uppbyggilegt umhverfi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að læra skák, bæta sig og njóta þess að tefla með öðrum. Kennslan verður sniðin að aldri og getu þátttakenda og hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í skák og þeim sem þegar hafa reynslu.

Æfingatímar

Hópur 1 – börn fædd 2019–2020
Þriðjudagar og miðvikudagar kl. 14:00–15:00
Verð: 15.000 kr. á önn

Hópur 2 – börn og ungmenni fædd 2014–2018
Miðvikudagar og föstudagar kl. 15:00–16:00
Verð: 15.000 kr. á önn

📍 Allar æfingar fara fram í Veislusalnum.

📅 Æfingar hefjast þriðjudaginn 1. september.

Leiðbeinandi – Benedikt Briem

Benedikt Briem hefur mikla reynslu af skák og er með 2239 ELO-stig. Undir hans leiðsögn fá iðkendur að kynnast undirstöðuatriðum skákarinnar, þjálfa rökhugsun og einbeitingu og þróa færni sína við skákborðið.

Við hlökkum til að taka á móti nýjum skákiðkendum hjá HK! ♟️

Skráning er hafin á Abler og eru fyrstu tvær vikurnar fríar og því kjörið tækifæri að máta sig við skákina 👏🏼

Akstur frístundabílsins 28/08/2026

🚌❤️

Akstur frístundabílsins Undanfarin ár hafa Breiðablik, Gerpla og HK í sameiningu boðið yngstu iðkendum sínum, í 1.-4. bekk, upp á frístundaakstur með stuðningi frá Kópavogsbæ.

26/08/2026
26/08/2026

HK tekur vel á móti þér ❤️

HK Handknattleiksfélag Kópavogs
Gleði - Virðing - Metnaður
Stofnað 26. janúar 1970

25/08/2026

Umsjónarmaður íþróttaskóla HK

HK leitar að öflugum og áhugasömum einstaklingi til að leiða íþróttaskóla HK, sem er fyrir börn á aldrinum 18 mánaða – 5 ára og haldinn á sunnudagsmorgnum í íþróttahúsinu Kórnum.

Helstu verkefni
Leiðbeina börnum í leik og starfi skólans
Skipuleggja faglegt starf íþróttaskólans
Samskipti við foreldra, starfsfólk HK og aðra

Hæfniskröfur
18 ára aldur eða eldri
Menntun sem nýtist í starfi (t.d. íþrótta- eða uppeldisfræði) er kostur
Reynsla af starfi með börnum og íþróttastarfi
Frumkvæði, gleði og sjálfstæði í starfi
Hreint sakavottorð og góð íslenskukunnátta
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun september. Laun samkvæmt samkomulagi.

Umsókn/fyrirspurnir sendist á [email protected]

Ný æfingatafla Handknattleiksdeildar HK 25/08/2026

🤾🏼‍♂️🤾🏽‍♀️

Ný æfingatafla Handknattleiksdeildar HK Ný æfingatafla handknattleiksdeildar HK fyrir veturinn 2026–2027 liggur nú fyrir. Þar má finna yfirlit yfir fyrirhugaða æfingatíma flokka deildarinnar fyrir komandi vetur.

24/08/2026

Stefnt er á HK Open næstu helgi í Þorlákshöfn.

Dagsetningin hittir því miður illa á leikjadagskrá hjá mfl., 2.fl. og 3.fl., en þar eru margir af okkar HK-golfurum.

Við þurfum því að sjá aðeins meiri þátttöku til að geta haldið mótið. Við hvetjum alla sem ætla að vera með að skrá sig fyrir hádegi á þriðjudag, svo hægt sé að taka endanlega ákvörðun um mótshaldið.

ATH : Ef skráningin tekur ekki við sér fram að því neyðumst við því miður til að fella HK Open niður í ár.

skráning hér: https://forms.gle/gVUWHHeQMkwsWEFn9

HK Handknattleiksfélag Kópavogs
Gleði - Virðing - Metnaður
Stofnað 26. janúar 1970

22/08/2026

Leikdagur! ⚽️✔️

Húsið opnar 11:30! 🕦
Enski bar fólksins 🍻🥤
Tilboð fram að leik!

Næsti leikur hjá strákunum okkar verður í Kórnum & við viljum sjá alvöru stemningu frá ykkur! Hvetjum þá til sigurs!! ⚽️🙌🏼

Áfram HK!

Miðasala: https://stubb.is/events/oOL4zb

Æfingatafla knattspyrnudeildar vetur 2026-2027 21/08/2026

⚽️🙌🏼

Æfingatafla knattspyrnudeildar vetur 2026-2027 Ný æfingatafla knattspyrnudeildar HK fyrir veturinn 2026–2027 liggur nú fyrir. Þar má finna yfirlit yfir fyrirhugaða æfingatíma flokka deildarinnar fyrir komandi vetur.

16/08/2026

Save the date 🤞🏼

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Vallakór 12
Kópavogur

Opening Hours

Monday 08:00 - 22:00
Tuesday 08:00 - 22:00
Wednesday 08:00 - 22:00
Thursday 08:00 - 22:00
Friday 08:00 - 22:00
Saturday 08:00 - 20:00
Sunday 08:00 - 22:00