21/09/2026
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks og Atlas verktakar hafa framlengt samstarf sitt og verður Atlas áfram aðalstyrktaraðili deildarinnar.
Samstarfið á sér langa sögu. Einar P. & Kó. var öflugur styrktaraðili körfuknattleiksdeildar Breiðabliks allt frá árinu 2014. Árið 2024 sameinuðust Atlas Verktakar og Einar P. & Kó. og hefur samstarfið við körfuknattleiksdeildina haldið áfram undir merkjum Atlas Verktaka.
Samstarfið við fyrirtækið og fólkið að baki því spannar því nú meira en áratug og hefur stuðningurinn skipt miklu máli fyrir uppbyggingu körfuknattleiksstarfs Breiðabliks í Kópavogi.
Atlas verktakar hafa verið einn mikilvægasti bakhjarl deildarinnar undanfarin ár og með framlengingu samstarfsins staðfestir fyrirtækið áframhaldandi stuðning við það öfluga starf sem unnið er innan deildarinnar.
Stuðningurinn gerir körfuknattleiksdeildinni kleift að halda áfram að byggja upp öflugt körfuboltastarf fyrir iðkendur á öllum aldri, efla barna- og unglingastarfið og skapa sterkt umhverfi í kringum meistaraflokka félagsins.
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að eiga sterka og trausta samstarfsaðila sem hafa trú á því starfi sem við erum að vinna. Samstarfið við Atlas Verktaka er sérstaklega dýrmætt vegna þeirrar löngu sögu sem liggur að baki og nær allt aftur til ársins 2014 með Einari P. & Kó. Það er ekki sjálfgefið að fyrirtæki standi svo lengi og tryggilega við bakið á íþróttastarfi og við erum afar þakklát fyrir það traust sem okkur hefur verið sýnt í gegnum árin,“ segir Heimir Snær Jónsson fyrir hönd körfuknattleiksdeildar Breiðabliks.
„Við erum mjög ánægð með að halda þessari vegferð áfram með Atlas Verktökum. Langtímasamstarf af þessu tagi skapar mikilvægan stöðugleika og gefur okkur aukinn kraft til að halda áfram að byggja starfið upp og horfa metnaðarfull fram á veginn.“
Atlas Verktakar verða áfram áberandi samstarfsaðili körfuknattleiksdeildar Breiðabliks og mikilvægur hluti af þeirri uppbyggingu sem fram undan er.
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks þakkar Atlas Verktökum kærlega fyrir traustið og stuðninginn í gegnum árin og við hlökkum áframhaldandi samstarfs.