Breiðablik

Breiðablik

Share

Opinber Facebook síða Ungmennafélagsins Breiðabliks. Nýjustu fréttir, myndir og myndbönd. - Allt félagið á einum stað

Sumarnámskeið Breiðabliks í fullu fjöri - Breiðablik 16/06/2026

Sumarnámskeið Breiðabliks í fullu fjöri

Sumarnámskeið Breiðabliks hafa farið afar vel af stað og hefur þátttaka verið mjög góð frá upphafi. Börnin hafa tekið virkan þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem áhersla er lögð á hreyfingu, leik, og ekki síst að hafa gaman.

Á námskeiðunum er farið yfir helstu undirstöðuatriði hverrar íþróttar undir leiðsögn reynslumikilla þjálfara og starfsfólks. Dagskráin hefur gengið einstaklega vel og markmiðið er ávallt að skapa jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem öll börn fá tækifæri til að njóta sín.

Sérstaklega ánægjulegt er að segja frá því að metþátttaka er í skráningu á mat þessa vikuna. Þrátt fyrir mikinn fjölda hefur skipulag gengið vel og allir þátttakendur fengið góðan og næringarríkan mat á hverjum degi.

Fram undan eru margar skemmtilegar vikur og hvetjum við foreldra og forráðamenn til að kynna sér fjölbreytt framboð sumarnámskeiða Breiðabliks, skráning er opin í allt sumar.

Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu má finna á sumarnámskeiðasíðu Breiðabliks:
https://breidablik.is/um-okkur/sumarnamskeid/

Við hlökkum til að taka á móti sem flestum börnum í sumar fullt af hreyfingu, gleði og góðum minningum.

Sumarnámskeið Breiðabliks í fullu fjöri - Breiðablik Sumarnámskeið Breiðabliks hafa farið afar vel af stað og hefur þátttaka verið mjög góð frá upphafi. Börnin hafa tekið virkan þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem áhersla er lögð á […]

Sumarnámskeið Breiðabliks - Breiðablik 29/05/2026

Sumarnámskeið Breiðabliks eru komin í sölu! 🌼
Íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 7-10 ára í Smáranum. Verð frá 8.900 kr
Sjá nánar hér:

Sumarnámskeið Breiðabliks - Breiðablik Í sumar býður Breiðablik upp á íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 7 til 10 ára í Smáranum og Fagralundi, ásamt því að bjóða upp á rafíþróttanámskeið í Arena (Smáratorgi) fyrir 7 til 15 ára, sundnámskeið í Kópavogs- og Salalaug fyrir 4 til 10 ára börn og Þríþ...

Samlokukort 20/05/2026

Samlokukortin vinsælu eru nú komin í sölu í vefverslun Breiðabliks!🥪

Ath! Það getur tekið allt að 2 virka daga fyrir kortið að vera komið í afgreiðsluna.

Kaupa hér:

Samlokukort 10 skipta samlokukort. Með hverri samloku fylgir drykkur. ATH - getur tekið allt að 2 virka daga fyrir samlokukortið að vera komið í afgreiðslu.

08/05/2026

Sumarnámskeið í Fagralundi

Vegna mikillar eftirspurnar höfum við ákveðið að halda áfram með ævintýranámskeið fyrir hádegi í Fagralundi ásamt knattspyrnunámskeiði eftir hádegi vikur 1, 2, 3, 4, 7 og 8.

Athugið að ef skráning nær ekki lágmarksfjölda gæti þurft að færa einstaka námskeið yfir í Smárann.

Nánari upplýsingar má finna á: https://breidablik.is/um-okkur/sumarnamskeid/

Sumarnámskeið Breiðabliks - Breiðablik 04/05/2026

Sumarnámskeið Breiðabliks eru komin í sölu! 🌼
Íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 7-10 ára í Smáranum. Verð frá 8.900 kr
Sjá nánar hér:

Sumarnámskeið Breiðabliks - Breiðablik Í sumar býður Breiðablik upp á íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 7 til 10 ára í Smáranum, og ásamt því að bjóða uppá Rafíþróttanámskeið í Arena (Smáratorgi) fyrir 7 til 15 ára og sundnámskeið í Kópavogs– og Salalaug fyrir 4 til 10 ára börn.

03/05/2026

Minnum á aðalfund félagsins sem fram fer á þriðjudaginn n.k. 🍀

Sumarnámskeið Breiðabliks - Breiðablik 27/04/2026

Sumarnámskeið Breiðabliks eru komin í sölu! 🌼

Íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 7-10 ára í Smáranum

Sumarnámskeið Breiðabliks - Breiðablik Í sumar býður Breiðablik upp á íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 7 til 10 ára í Smáranum, og ásamt því að bjóða uppá Rafíþróttanámskeið í Arena (Smáratorgi) fyrir 7 til 15 ára og sundnámskeið í Kópavogs– og Salalaug fyrir 4 til 10 ára börn.

22/04/2026

Breiðablik hefur ráðið Hafþór Hauk Steinþórsson sem íþrótta- og verkefnastjóra félagsins. Hafþór er með Bsc í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík og tvíþætta meistaragráðu í íþróttastjórnun, vísindum og þjálfun frá Háskólanum í Reykjavík og Molde University College.

Hann kemur til okkar frá endurhæfingarstöðinni Kjarki þar sem hann hefur starfað sem íþróttafræðingur undanfarið. Hafþór hefur mikla reynslu af þjálfun og vinnu með börnum og ungmennum.

Við bjóðum Hafþór innilega velkominn til starfa!

21/04/2026

Aðalfundur Breiðabliks fer fram í veislusal félagsins 5.maí 💚

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Dalsmári 5
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 07:00 - 23:00
Tuesday 07:00 - 23:00
Wednesday 07:00 - 17:00
Thursday 07:00 - 23:00
Friday 07:00 - 23:00
Saturday 07:00 - 19:30
Sunday 07:00 - 22:00