Greenfit

Greenfit

Share

Hjá Greenfit starfar hópur fólks sem hefur gríðarlegan áhuga og þekkingu á heilsutengdum málum.

08/06/2026

💼 Vantar þig vinnuaðstöðu, fundarherbergi eða rými fyrir viðburð?

Við bjóðum upp á fjölhæfa aðstöðu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og hópa.

Þú getur meðal annars:

💻 Leigt skrifborð eða vinnuaðstöðu fyrir daginn eða lengri tíma
🤝 Tekið á móti viðskiptavinum eða samstarfsfólki á fundum
🎤 Haldið fyrirlestra, námskeið eða vinnustofur
👥 Nýtt rýmið fyrir fyrirtækjaviðburði og teymisfundi
🧘 Haldið heilsutengda viðburði, æfingar eða aðra hópastarfsemi

Aðstaðan býður upp á:

• Bjart og rúmgott vinnuumhverfi
• Skrifborð og setuaðstöðu
• Skjá fyrir kynningar og fundi
• Fullbúið eldhús
• Sveigjanlegt rými sem hægt er að aðlaga að mismunandi þörfum

Hvort sem þú ert sjálfstætt starfandi einstaklingur sem vantar góða vinnuaðstöðu, fyrirtæki sem þarf fundaraðstöðu eða ert að skipuleggja viðburð, þá gæti þetta verið lausnin fyrir þig.

📩 Nánari upplýsingar og fyrirspurnir: [email protected]

29/05/2026

Stal breytingaskeiðið orkunni þinni?

Hormón hafa mikil áhrif á líf okkar og líðan. Blóðsykurstjórnun og insúlínnæmi eru lykilatriði í að endurheimta orkuna.
Skelltu þér með á 7 daga námskeið í blóðsykursstjórnun.
Síðasta námskeið fyrir sumarfrí hefst 1.júní 🌞
https://greenfit.is/namskeid

Greenfit Hjá Greenfit starfar hópur fólks sem hefur gríðarlegan áhuga og þekkingu á heilsutengdum málum.

Photos from Greenfit's post 27/05/2026

📈 Við hjá Greenfit hjálpum fyrirtækjum að efla heilsu starfsfólks með einföldu, áhrifaríku og skemmtilegu ferli.

Þegar starfsfólk fær innsýn í eigin heilsu getur það stuðlað að:

🌟 Betri starfsánægju og færri veikindafjarvistum�🌟 Bættri framleiðni og meiri orku í vinnuumhverfinu�🌟 Sterkara vörumerki

Ferlið er einfalt og tekur aðeins um 15 mínútur á mann – engin truflun á vinnudegi.

✔️ Við komum á staðinn með öll tæki og búnað�✔️ Einstaklingsniðurstöður fyrir starfsfólk
✔️ Nafnlaus heildaryfirsýn fyrir fyrirtækið�✔️ Ráðgjöf og stuðningur fyrir bæði fyrirtækið og starfsfólk

Fyrirtæki sem fjárfesta í heilsu starfsfólks geta séð raunverulegan árangur. Olís hefur til að mynda unnið markvisst með Greenfit að heilsueflingu starfsfólks og sér mælanlegan árangur og jákvæðar breytingar milli ára.

🗣️ Einnig hægt að bóka heilsueflandi fyrirlestra á vinnustaðinn.
✉️ Fyrirspurnir: [email protected]

Hvernig er að vera langbestur á Íslandi? - RÚV.is 24/05/2026

Hvernig verður maður langbestur á Íslandi?

Því getur Siggi okkar í Greenfit auðveldlega svarað enda langbesti þríþrautarmaður landsins ár eftir ár! Mælum með þessu skemmtilega spjalli við hann ;)

Í Greenfit getum við hjálpað þér að kafa dýpra og ná markvissum árangri:
⚡️ efnaskipti
🫁 súrefnisupptaka
🔥 fitubrennsla
📈 raunveruleg frammistaða líkamans
Þegar markmiðið er að vera bestur, þá dugar ekki að „halda“ að eitthvað virki. Þá eru það gögnin sem tala. 🚴‍♂️🏊‍♂️🏃‍♂️
Spurningin er kannski frekar:
Hvað myndu mælingarnar segja um ÞIG? 😉

Hvernig er að vera langbestur á Íslandi? - RÚV.is Þríþrautarkappinn Sigurður Örn Ragnarsson hefur unnið allt sem hægt er að vinna á Íslandi síðustu ár. Hvernig er tilfinningin að vera sá besti í sínu fagi? Hverjar eru næstu áskoranir?

13/05/2026

☀️ SUMARTILBOÐ ☀️

Líkamssamsetningarmæling fylgir FRÍTT með álagsmælingu fram að verslunarmannahelgi.

Í álagsmælingunni færðu meðal annars:
* Nákvæma mælingu á VO₂ max
* Skýr álagssvæði og rétta þjálfunarákefð
* Mat á orkunotkun á æfingum
* Innsýn í afköst hjarta, lungna og úthaldskerfis
* Mat á endurheimt og tækifærum til bætinga

🙌 Og nú fylgir líka SECA líkamssamsetningarmæling FRÍTT með. Þar færðu meðal annars mælingu á vöðvamassa, fituprósentu, kviðfitu og vökvastöðu — og getur fylgst með árangrinum svart á hvítu yfir tíma.

💥 Verð: 29.900kr í stað 38.900 kr

Photos from Greenfit's post 06/05/2026

❄️ Hér getur þú lesið þig til um kuldameðferðina okkar.

❄️ Meðferðaraðild veitir þér aðgang að öllum meðferðum okkar á 29.900 á mánuði.

Photos from Greenfit's post 20/04/2026

♦️ Hér getur þú lesið þig til um rauðljósameðferðina okkar.

♦️ Meðferðaraðild veitir þér aðgang að öllum meðferðum okkar á 29.900 á mánuði.

Photos from Greenfit's post 15/04/2026

🔹 Hér getur þú lesið þig til um súrefnismeðferðina okkar.

🔹 Meðferðaraðild veitir þér aðgang að öllum meðferðum okkar á 29.900 á mánuði.

Photos from Greenfit's post 13/04/2026

🌿 Hér er yfirlit yfir þær mælingar sem við bjóðum upp á. Flettu í gegnum myndirnar til þess að sjá hvað gæti hentað þér!

🧑🏽‍💻 Hægt er að bóka á heimasíðu okkar - greenfit.is eða noona.is

📲 Ekki hika við að hringja í síma 547-7077 eða senda okkur fyrirspurnir á [email protected]!

08/04/2026

Áttu það til að byrja af krafti… en detta svo úr rútínu?

👉 Í hegðunarvísindum er vel þekkt að viljastyrkur er takmörkuð auðlind – varanlegur árangur byggist á skýrri kortlagningu, vanaþróun og utanumhaldi.

Vissir þú að:

💡 Dópamín er lykilboðefni hvatningar – það hækkar þegar þú átt von á umbun eða tekur eftir framförum og knýr þig áfram

💡 Stuðningur og utanumhald geta tvöfaldað líkurnar á að þú haldir áfram

💡 Flestar ákvarðanir dagsins eru sjálfvirkar og mótast af umhverfinu þínu

💡 Sjálfstjórn þreytist yfir daginn – þess vegna verður erfiðara að halda rútínu seinni part dags

💡 Áhugahvöt sveiflast – rútína og kerfi halda hegðun stöðugri

💡 Venjur myndast þegar hegðun verður sjálfvirk – og það gerist með litlum skrefum, ekki átökum

💡 Sjálfsmildi styður við varanlegar breytingar – hörð sjálfsgagnrýni gerir það síður

📱 Bókaðu tíma á greenfit.is eða í Noona appinu

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Dalvegur 16b
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00