Grefillinn

Grefillinn

Share

Grefillinn is an epic cycling race hosted by the Cycling division of Breiðablik.

Photos from Grefillinn's post 19/06/2026

Við viljum færa öllum okkar frábæru samstarfsaðilum innilegar þakkir fyrir stuðninginn við Grefilinn 2026 🙏🚴‍♂️❤️
,
, , , , , , , Esja Gæðafæði , .is, , mata.is , ,
Sánagusa við Borgarnes
Náttúruböð

Photos from Grefillinn's post 16/06/2026

Hér koma svo frábærar myndir úr endamarkinu frá 📷 Magnús Valgeir Gíslason. Hér er linkur á allar myndirnar frá honum 🤩https://flic.kr/s/aHBqjCWNy6

Photos from Grefillinn's post 15/06/2026

Grefillinn 2026
Grefillinn malarkeppnin var haldin í blíðskaparveðri í Borgarfirði (fyrir utan mótvindinn á Kaldadal) laugardaginn 13. júní 2026. Þegar rættist hressilega úr spánni jókst fjöldi keppenda talsvert og voru hátt í 180 manns skráðir til leiks.
Þeim fjölgar sem vilja prófa malarkeppni og því nýtur 48 km leiðin aukinna vinsælda. Óli Vilmundarson Breiðablik sigraði þá vegalengd nokkuð örugglega og Sigrún Gréta Helgadóttir Víkingi sömuleiðis.
Vegna sauðburðar þurfti að breyta örlítið lengri leiðunum sem varð til þess að þær styttust um 3 km. Í karlaflokki í 107 km var Ingvar Ómarsson Breiðablik öruggur sigurvegari. Liðsfélagarnir úr HFR þeir Baldur Þorkelsson og Einar Valur Bjarnason öttu kappi um 2. sætið en Baldur rétt hafði það. Engin önnur en hlauparinn mikli Andrea Kolbeinsdóttir sigraði kvennaflokkinn, Júlía Oddsdóttir Breiðablik varð önnur og Kristín Edda Sveinsdóttir HFR í þriðja sæti.
Í 204 km vegalengdinni eru þrír keppnisflokkar: Elite, 44 ára og yngri og 45+. Einn var skráður í elite-flokkinn og var það Eryk Julian Majorowski. Flokkinn 18-44 ára sigraði Arnar Geir Rúnarsson en í 45+ var meiri samkeppni. Þann flokk sigraði Sigurður Hansen Tindi mjög örugglega og baráttan um 2. sætið var hörð en Ármann Gylfason HFR náði því og varð Guðfinnur Heiðar Hilmarsson Tindi í því 3. Ása Guðný Ásgeirsdóttir og Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir, báðar í HFR, hjóluðu saman allan tímann og fóru leikar þannig að Ása varð fyrst og Kolbrún önnur. Þriðja sætinu náði Kristrún Lilja Daðadóttir Breiðablik.
Öll úrslit eru á https://timataka.net/grefillinn2026/
Hjólreiðadeild Breiðabliks þakkar öllum keppendum og viðhengjum þeirra fyrir komuna í Logaland. Sjálfboðaliðum er sérstaklega þakkað fyrir þeirra framlag, án þeirra væri keppnin ekki haldin.
Sjáumst vonandi öll aftur að ári.
Hér eru svo myndir sem okkar hæfileikaríki ljósmyndari tók 📷 Magnús Stefán Sigurðsson og það er hægt að nálgast þær allar á eftirfarandi link þar sem öll okkar myndasöfn eru.
https://flic.kr/s/aHBqjCWGvx

14/06/2026

Hér eru óskilamunir frá Greflinum, átt þú eitthvað af þessu?👇

12/06/2026

Kæru keppendur
1. ATH! Vinsamlega leggið á bílastæðin við Logaland eða inni á tjaldstæðinu ef ekki er pláss þarf að leggja við malargryfjunni um 1 km fyrir neðan Logaland. Ekki leggja útí kanti á veginum eða við afleggjara að bæjunum því það er svo lítið pláss svo bændurnir komast ekki að með vinnuvélarnar sínar.
2. Fyrir tæpum 2 vikum settum við inn lítillega breyttar leiðir inn á grefillinn.is, þær sem komu í tölvupóstinum í síðustu viku eru réttar. Þannig ef þið eruð með leiðirnar frá því í fyrra skuluð þið sækja nýjar. 110 km og 207 km styttast um tæplega 3 km (verða þá 107 km og 204 km) en þær eru aðgengilegar á Grefillinn.is í Strava og Komoot. Þeim var breytt í samráði við bændur á svæðinu vegna sauðburðar. Í stað vaðsins hjá Sigmundarstöðum verður farið yfir Þverá við bæinn Grjót.
3. Keppendur í 110 og 207 km fara tvisvar um sömu gatnamótin sem geta valdið ruglingi ef kappið er of mikið. Eftir 25 km á að beygja til hægri en eftir 60 km skal haldið beint áfram.
4. Mótsstjóri afhendir gögn hér í Logalandi til ca 22:00 í kvöld og svo í fyrramálið fyrir ræsingu en verið tímanlega.
5. Tjaldstæðið við Logaland er án endurgjalds.
6. Ræsing í 207 km kl. 7:00, ræsing í 110 km er kl. 10:00 og í 48 km kl. 11:00.
7. Verðlaunaafhending verður upp úr kl. 17 í Logalandi og fram að því getur fólk baðað sig í Krauma eða hent sér í sundlaugina á Kleppjárnsreykjum sem er opin til kl. 18 en það er frítt í sund.
8. Eftir keppning eru grillaðir hamborgarar, bjór og drykkir við Logaland
9. Það er spáð svaka góðu veðri, munið eftir sólarvörninni 😎
Gangi ykkur vel á morgun og farið varlega 🥰
Með bestu kveðju, Bjarni Óli s 771 6800 og Hrefna s 862 7669

11/06/2026

Afhending keppnisgagna er byrjuð í Smáranum frá kl.15-18. Spennandi vörur frá sem eru með NOW vítamínin og Muna vörurnar 🤩einnig eru vörur frá sem eru með Done próteindrykinn og Giffla 😋

Photos from Grefillinn's post 11/06/2026

Það var góð stemning í samhjólinu sem Grefillinn stóð fyrir í gær. Við byrjuðum í Smáranum og enduðum í grilluðum pylsum frá 🌭 og drykkjum frá 🥤

15/05/2026

Skráning í Grefilinn 2026 lýkur í kvöld 15.maí kl 23:59. Veldu þína áskorun og komdu með í ævintýrið •48 km•110 km•207 km• Skráning á grefillinn.is 🥳

09/05/2026

Skráning í Grefilinn framlengd til 15. maí!
Við höfum ákveðið að framlengja skráningu í Grefilinn til föstudagsins 15. maí.
Þetta er því síðasta tækifærið til að tryggja sér sæti í ævintýrinu í Borgarfirðinum 13. júní 💥
Skráning fer fram hér: https://grefillinn.is/

26/04/2026

Skráning í Grefilinn lýkur 10 maí! 🗓
Hvaða leið velur þú? 🚲
Skráning á grefillinn.is 🔗

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Dalsmári 5
Kópavogur
201