29/08/2026
Hvað gerist þegar 100 konur koma saman í eina kvöldstund? 💗
Það verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.
😹 Edda Björgvins
🌱 Beta Reynis
✨ Halldóra Skúla
🎵 Hrund Scheving
🫶 HeilsuErla
📅 10. október á Spírunni
Settu daginn í dagatalið!
Miðasala opnar innan skamms!
Hverri ætlar þú að bjóða með þér? 👇🏼
29/08/2026
Hvað gerist þegar 100 konur koma saman í eina kvöldstund? 💗
Það verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.
😹 Edda Björgvins
🌱 Beta Reynis
✨ Halldóra Skúladóttir
🎵 Hrund Scheving
🫶 HeilsuErla
📅 10. október
Settu daginn í dagatalið!
Miðasala opnar innan skamms!
Hverri ætlar þú að bjóða með þér? 👇🏼
28/08/2026
Nokkrir molar úr einlægu viðtali við Hlyn Kristinn Rúnarsson í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum um fíkn, aðstandendur, heilsu, fordóma, skömm og vonina að ná bata.
Hlustaðu á viðtalið í heild sinni á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu.
25/08/2026
4 Hljóðbrot úr viðtali við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega.
Hlustaðu á viðtalið í heild sinni í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu.
Á Konur í íþróttum má svo finna fjölda faglegra fræðslumyndbanda sem ég hvet ykkur til að skoða nánar.
22/08/2026
Nokkrur molar úr viðtali við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega.
Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfingar henta á breytingarskeiði og fleira.
Á Konur í íþróttum má finna fjölda faglegra fræðslumyndbanda sem ég hvet ykkur til að skoða nánar.
21/08/2026
Það er von!
Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm.
Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki upp samkennd og skilning en kannski fyrst og fremst minnki fordóma.
Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
💙 Heilsuhillan HeilsuErla mælir með Nutrilenk .
🌱 Spíran Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 Virkja Töfrandi nám í markþjálfun
💗 Þ í N F E G U R Ð Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 Erla Guðmundsdóttir Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
21/08/2026
Málstofan Kraftur kvenna í gær var vel sótt og upplýsingarnar sem fram komu í pallborði afar áhugaverðar.
Málstofuna alla er hægt að sjá hér: https://vimeo.com/event/6125975/e9b099b236?fl=ls&fe=ws
Að málstofunni stóðu Háskólinn í Reykjavík, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ og UMFÍ - Ungmennafélag Íslands
18/08/2026
ATH! skráning á viðburðinn er nauðsynleg: https://forms.cloud.microsoft/e/FKNMZJWkPG
Háskólinn í Reykjavík, í samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ, býður til málstofu þar sem ný fyrirlestraröð, Kraftur kvenna (e.Fuelling Females), verður formlega kynnt.
Málstofan verður í stofu V101, fimmtudaginn 20. ágúst frá 16:00 - 17:30. Boðið verður upp á létta veitingar eftir og er skráning því nauðsynleg.
Markmið verkefnisins er að efla konur í hreyfingu og íþróttum með því að miðla gagnreyndri og hagnýtri þekkingu um næringu, heilsu og lífeðlisfræði kvenna.
Viðburðurinn er ætlaður öllum sem hafa áhuga á hreyfingu og heilsu – hvort sem um er að ræða íþróttakonur, þjálfara, fagfólk eða konur sem stunda hreyfingu sér til heilsubótar.
Dagskrá | 16:00–17:30
Kynning á Fuelling Females og opnun vefsíðu verkefnisins:
Christofer Curtis, íþróttanæringarfræðingur og dósent við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.
Fræðsluerindi: Næring íþróttakvenna
Christofer Curtis fjallar um næringu íþróttakvenna og hvernig rétt næring getur stutt við heilsu, vellíðan og frammistöðu.
Pallborðsumræður: Næring kvenna á hreyfingu – hvað getum við lært af reynsluboltum?
Silja Úlfarsdóttir stýrir pallborðsumræðum þar sem reynsla úr afreksíþróttum, næringarfræði, þjálfun og almennri heilsurækt verður í forgrunni.
Í pallborði sitja:
Sara Sigmundsdóttir – atvinnukona í CrossFit
Eygló Fanndal – Íþróttamaður ársins
Ágústa Edda Björnsdóttir – margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum
Agnes Þóra Árnadóttir – fyrrverandi knattspyrnukona og næringarfræðingur
Erla Guðmundsdóttir – íþróttafræðingur, heilsumarkþjálfi og stjórnandi hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum
17:30 | Skál fyrir Fuelling Females
Að málstofunni lokinni verður skálað fyrir verkefninu. Boðið verður upp á létta drykki og veitingar og gestum gefst tækifæri til að hittast, spjalla og ræða efni málstofunnar.
Skráning er nauðsynleg.