11/08/2026
Alvöru veisla framundan! Er allt klárt?
Það styttist í frábæra keppnishelgi og nú er um að gera að gera allt klárt fyrir helgina. Hjá okkur færðu dekk og mýs frá Plews Tyres, hjálma frá 6D Helmets og Shot Race Gear, gleraugu frá Shot, galla og hanska frá Shot, aukahluti og varahluti í margar gerðir hjóla og olíur frá Motul 🏁
Á föstudaginn lokum við kl 13:00 til að leggja af stað norður, hlökkum til að sjá alla 🏆
Sannkölluð torfæruhjólaveisla verður dagana 15.-16. ágúst næstkomandi á svæði KKA á Akureyri.
Á laugadeginum fer fram fjórða og síðasta umferð Íslandsmótsins í motocross 🏁🏁
Að lokinni verðlauna afhendingu dagsins verða veitt verðlaun til Íslandsmeistara fyrir árið 2026.🏆
Skráning motocross - https://msisport.is/keppni/154
Á sunnudeginum fer fram þriðja umferð Íslandsmótsins Enduro fyrir alla þar sem allir eiga finna flokk við sitt hæfi.
Skráning Enduro - https://msisport.is/keppni/164
Frábær helgi sem enginn torfæruhjóla áhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara..
https://msisport.is/frettir/torfaeruhjolaveisla---motocross-og-enduro-dagana-15-16-agust-a-akureyri
16/06/2026
Skemmtilegur afhendingardagur! 🚲🔥
Afhendingar á Crussis sendingunni hefur gengið vonum framar og í dag var gaman að afhenda tvö ný og glæsileg hjól til nýrra eigenda. En Um er að ræða í þetta skiptið Crussis e-Full 10.11 Pro rafmagnshjólin, sem hafa vakið verðskuldaða athygli að undanförnu en þau eru með Panasonic systemi í stað Avinox eins og hin hjólin frá Crussis.
Nýja Panasonic línan frá Crussis hefur fengið frábærar viðtökur hjá íslenskum hjólreiðamönnum – enda framúrskarandi tæki hér á ferð sem sameinar ótrúlegan kraft, endingu og hágæða íhluti sem sjást jafnan aðeins á dýrustu hjólunum á markaðnum.
Helstu tækniupplýsingar:
Mótor: Panasonic GXM (100 Nm tog – gífurlegur kraftur í brekkum!)
Rafhlaða: LG Li-Ion 715 Wh / 19,88 Ah (Allt að 170 km drægi)
Demparar: RockShox ZEB ULTIMATE Air 160 mm að framan og RockShox Super Deluxe Select að aftan
Gírkerfi: SRAM GX Eagle AXS T-Type, 12 gíra rafmagns gírkerfi
Bremsur: SRAM Maven Bronze vökvabremsur (200 mm diskar)
Dekk: Maxxis Assegai (framan) og Minion DHR II (aftan) 29x2.50
Hnakkur og dropper post : Fizik Terra Ridon hnakkur og X-Fusion Manic (dropper)
Það er óhætt að segja að þessi búnaður sé á hæsta gæðaflokki. Verðið á þessum pakka er hreinlega ótrúlegt: Aðeins 845.000 kr.!
Athugið: Vegna mikillar eftirspurnar eigum við aðeins 1 stykki eftir í stærð Large í bili. Það er meira væntanlegt á næstunni, en ef þú vilt tryggja þér hjól strax mælum við með að hafa hraðar hendur.
Kíktu við hjá okkur eða sendu okkur skilaboð til að fá nánari upplýsingar! 👇
Rött - skemmuvegur 32 kópavogi, sími 537-1333. [email protected]
12/06/2026
Crussis með Avinox er mætt – Viðtökurnar fara fram úr björtustu vonum!
Við erum í skýjunum! Fyrsta sendingin af þessum mögnuðu rafhjólum er loksins lent á klakanum. Hjólin fara beint til sinna nýju eigenda og við viljum nota tækifærið og þakka ykkur innilega fyrir ótrúlegar viðtökur og það mikla traust sem þið hafið sýnt okkur.
Það er greinilegt að áhuginn á Crussis með Avinox mótorkerfinu er gríðarlegur. Það kemur okkur svo sem ekki á óvart, enda er þetta algjör draumablanda af öflugri hönnun og nýjustu tækni – og það á virkilega frábæru verði sem gerir þessi gæði að einstaklega góðum kosti. Við gætum ekki verið stoltari af því að sjá þessi hjól fara á götuna og stígana.
✨ Júlí-sendingin langt komin
Vegna þessara frábæru viðtaka og flotta verðs er næsta sending (væntanleg í júlí) nánast uppseld og en við fengum þær góðu fréttir að örfá eintök bættust við Júlí sendinguna sem eru þá laus 🏁💪
👁️ Kíktu við og skoðaðu gripina:
Þau hjól sem á eftir að sækja úr fyrstu sendingunni verða til sýnis í verslun okkar í örfáa daga áður en þau fara til sinna eigenda.
Ef þig langar að sjá Crussis með Avinox í eigin persónu og skoða úrvalið áður en júlí-sendingin verður aftur uppseld þá er tilvalið að kíkja við hjá okkur í Skemmuveg 32.
Við tökum vel á móti þér með kaffi á könnunni og spjall um hjólin! 🚲☕️
28/05/2026
Ath ! Opnunartími á morgun ! 08:00-12:30!
Kæru viðskiptavinir vegna enduro mótsins á Flúðum þá verður opið á morgun frá kl 08:00-12:30, til þess að ná dagskránni á morgun og setja upp pittinn okkar. Við mælum með að mæta á leikdaginn á morgun og hafa gaman með öllum 🏁 Ef ykkur vantar dekkjaþjónustu fyrir keppnina mælum við með að mæta eins snemma og hægt er uppí búð 💪
21/05/2026
🏔️ Ný kynslóð mætt: Crussis e-Full 10.11-PRO (2026)
Við kynnum nýjustu viðbótina í Crussis fjölskylduna – e-Full 10.11-PRO. Þetta er hjól fyrir þá sem þekkja gæði og gera kröfu um bestu mögulegu íhluti sem völ er á í dag.
Þótt hjólið sé nýtt í línunni, þá deilir það sama hágæða undirvagni og dýrustu „PRO“ týpurnar okkar. Hér er ekkert til sparað þegar kemur að fjöðrun, drifbúnaði og hemlum. Hjólið deilir sömu frábæru hönnun og Avinox hjóla lína frá Crussis nema þessi týpa er með Panasonic GXM drifrásinni í staðin fyrir Avinox.
Hágæða „PRO“ uppsetning:
SRAM GX Eagle AXS T-Type: Framtíðin í gírskiptingum. Þráðlaus nákvæmni og „Hangerless“ hönnun sem þolir meira hnjask en nokkur önnur skipting. Hún skiptir mjúklega jafnvel undir hámarks álagi í miðri brekku.
RockShox ZEB Ultimate (160 mm): Þetta er flaggskipið frá RockShox. Með 38 mm göflum fyrir hámarksstífni og ButterCups tækni sem eyðir titringi, færðu stjórn og mýkt sem þekkist ekki í venjulegum dempurum.
SRAM Maven Bronze: Nýjustu og öflugustu bremsurnar frá SRAM. Þær eru hannaðar til að skila gríðarlegum stöðvunarkrafti í löngum og tæknilegum niðurleiðum án þess að ofhitna.
Panasonic GXM (100 Nm): Aflmikill mótor sem skilar einu mesta togi á markaðnum. Hann gefur þér þann kraft sem til þarf til að takast á við íslenskar aðstæður af öryggi.
Hannað fyrir kröfuharða
Hjólið er byggt á sterku álgrind með 715 Wh LG rafhlöðu sem tryggir langa daga á fjallinu. Samsetningin á þessum íhlutum gerir þetta að einu öflugasta hjóli síns flokks, þar sem tæknilegir yfirburðir og ending fara saman.
📢 Forsala hafin – Væntanlegt um miðjan júní
Við fáum örfá eintök í þessari fyrstu sendingu og búist er við að þau seljist hratt upp miðað við þessa íhlutauppsetningu og frábæra verðs.
Verð: 845.000 kr.
Þetta er einstakt tækifæri til að eignast „PRO“ búnað á verði sem á sér enga hliðstæðu. Tryggðu þér eintak í forsölu og vertu klár í sumarið.
👉 Skoðaðu tæknilýsinguna og pantaðu hér: https://rott.is/vorur/crussis-e-full-10-11-pro-panasonic-715wh/