15/07/2026
Feykir frá Stóra-Vatnsskarði tekur á móti hryssum á Kvistum í Ölfusi í húsnotkun út sumarið. Feykir er með mjög sterkar ættir á bak við sig, faðir er heiðursverðlaunahesturinn Þráinn frá Flagbjarnarholti og móðir hinni magnaða Kylja frá Stóra-Vatnsskarði sem er undan Lukku frá Stóra-Vatnsskarði og Kiljan frá Steinnesi. Feykir heldur til Þýskalands í haust. Feykir er vel skapaður með 8.76 fyrir sköpulag og hlaut 8.48 fyrir hæfileika 4 vetra gamall. Flugrúmur alhliðahestur, skreflangur með mikla vekurð og trausta lund. Folöldin og tryppin undan honum eru áberandi stór og framfalleg ☺️
Benni Kvistum - 8989151
14/07/2026
Landsmótssigurvegari í A-flokki og heimsmethafinn Sindri frá Hjarðartúni er kominn heim og tekur á móti hryssum í Hjarðartúni. Verð fyrir fengna hryssu 280 þús +vsk, allt innifalið. Upplýsingar í síma 8833660 eða [email protected]
12/04/2026
Gæðingurinn og slaktaumatöltarinn Frosti frá Hjarðartúni (A.E. 8.70) hefur verið seldur og heldur á vit nýrra ævintýra. Áður en nýir eigendur, Frey fjölskyldan, bjóða hann velkominn til Sviss í haust verður spennandi að sjá hann á keppnisbrautinni með Arnhildi í sumar. Þessi gæðingur mun líka sinna hryssum í Hjarðartúni þangað hann fer utan í september.
The stallion and the loose rein tölt expert Frosti frá Hjarðartúni (A.E. 8.70) has been sold and is heading toward new adventures. Before his new owners family Frey welcome him to Switzerland this autumn, it will be exciting to see him on the competition track with Arnhildur this summer. This exceptional horse will also serve mares at Hjarðartún until he travels abroad in September.
Der Hengst und T2-Tölter Frosti frá Hjarðartúni (A.E. 8,70) wurde verkauft und begibt sich auf neue Abenteuer. Bevor seine neuen Besitzer, Familie Frey, ihn im Herbst in der Schweiz willkommen heißen, sind wir gespannt, ihn im Sommer mit Arnhildur auf der Turnierbahn zu sehen. Dieser besondere Hengst wird außerdem bis zu seiner Ausreise im September Stuten in Hjarðartún decken.
23/02/2026
Yfirburðir Hjarðartúns í fyrstu mótum Meistaradeildar Líflands | Eidfaxi.is
Meistaradeild Líflands hefur allt til brunns að bera sem prýðir öfluga og spennandi keppnisdeild. Knapar tefla fram sínum bestu hestum og markmiðið er skýrt ...
25/01/2026
Aðalheiður og Hjarðartún efst á stigalistum | Eidfaxi.is
Fyrstu keppni í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum lauk í gær með sigri Aðalheiðar Önnu Guðjónsdóttur og Flóvents frá Breiðstöðum. Uppboðssætið telur í ...
16/07/2025
Sindri, Frosti og Feykir sinna hryssum á húsi næstu vikurnar í Hjarðartúni🌟
Sindri, Frosti og Feykir will be covering mares by hand the next weeks 😊
⭐️ Sindri frá Hjarðartúni
⭐️ Frosti frá Hjarðartúni
⭐️ Feykir frá Stóra-Vatnsskarði
Síminn hjá okkur er 8833660 😊
Our phone number is +3548833660
20/05/2025
.sigurds and our Fàkur did a great job at V1 Youth Class with the score of 7.07 and winning 👏🥇
We are really exited to whatch these guys together this summer ☀️
Matti og Fàkur okkar með 7.07 og unnu þar með V1 ungmennaflokkinn á WR íþróttamóti Sleipnis 👏 geggjaðir félagarnir og erum við mjög spennt að fylgjast með framhaldinu hjá þeim💥
sigurds
01/05/2025
Sindri, Frosti og Feykir taka á móti hryssum í Hjarðartúni í allt sumar 🍀
⭐️ Sindri frá Hjarðartúni
Sindri býr yfir miklu rými, fjaðurmagni og einstöku geðslagi. Hann sló heimsmet í hæfileikum á Landsmóti 2022 með 9.38 í einkunn og 8.99 í aðaleinkunn.
10 fyrir Brokk, Skeið og Samstarfsvilja
9.5 fyrir Tölt og Fegurð í reið
Verð 275.000 + vsk
⭐️ Frosti frá Hjarðartúni
Frosti er hæst dæmi sonur Skýrs frá Skálakoti með 8.70 í aðaleinkunn. Móðir hans er Hrund frá Ragnheiðarstöðum sem var eftirminnileg hryssa með 9.5 fyrir fegurð í reið. Einstaklega geðgóður hestur sem komin er í fremstu röð í slaktaumatölti. Fyrstu afkvæmi Frosta eru komin á tamningaraldur, þau eru geðprúð með mikinn fótaburð.
Verð 220.000 + vsk
⭐️ Feykir frá Stóra-Vatnsskarði
Feykir var hæsti dæmdi 4 vetra stóðhesturinn í fyrra með 8.71 í byggingu og 8.48 í hæfileikaeinkunn, með 9ur fyrir Háls/herðar/bóga, Skeið og Samstarfsvilja.
Faðir er Þráinn frá Flagbjarnarholti og móðir er Kylja frá Stóra-Vatnsskarði, Kiljansdóttir með 8.88 fyrir hæfileika.
Verð 220.000 + vsk
Allt innifalið í verði á folatolli fyrir utan sérstakar meðferðir hryssna hjá dýralækni. Við óskum eftir að hryssur komi nálægt gangmáli en við erum liðleg ef komið er langt að og við óviðráðanlegar aðstæður ☺️
Pantanir í gegn um samfélagsmiðlana okkar eða í síma/sms
Hjarðartún 8833660
Arnhildur 8661382
Welcome to contact us on our social media or by phone or textmessage ☺️
Hjarðartún +3548833660
Arnhildur +354 866 1382
25/04/2025
Tveir villikettir í KS deildinni voru Hjarðartúnshestarnir okkar Tónn og Frosti en Tónn landaði 3.sætinu með einkunnina 8.17 og Frosti okkar endaði í 1.sæti með einkunnina 8.50!
Mikið erum við glöð með þessa meistara 😍❤️🙏
2 wild cats in the KS league tonight from our breeding! Tónn from Hjarðartún, owner and rider is , placed 3rd tonight with the score of 8.17 and our Frosti got 1 place with the score of 8,50!!
We are so proud of these two and their riders!!🙏🤝