Hestamannafélagið Ljúfur

Hestamannafélagið Ljúfur

Share

Hestamannafélagið Ljúfur var stofnað 13.janúar 1961 og tilheyrir Hveragerði og Ölfusi

10/07/2026

✨ Setningarathöfn Landsmóts fór fram í gær og þar átti Hestamannafélagið Ljúfur glæsilega fulltrúa. 💙

Ljúfur átti átta knapa í setningarathöfninni:

🐎 Ragnhildur formaður – fánaberi félagsins
🐎 Hrafnhildur – barnaflokkur
🐎 Sigurrós Lilja – B-flokkur áhugamanna
🐎 Elída – B-flokkur áhugamanna
🐎 Emma – B-flokkur
🐎 Aníta Liv – unglingaflokkur
🐎 Katla Björk – unglingaflokkur

Einnig er gaman að segja frá því að Hestamannafélagið Sleipnir fékk Sigrúnu Björk að láni, en hún keppti í A- og B-flokki ungmenna. 💙🐴

Photos from Hestamannafélagið Ljúfur's post 07/07/2026

Frábærum keppnisdegi á Landsmóti 2026 er nú lokið og þvílíkan dag sem fulltrúar Hestamannafélagsins Ljúfs áttu!

Í dag kepptu fulltrúar félagsins í barnaflokki, unglingaflokki, áhugamannaflokki, A-flokki ungmenna, B-flokki ungmenna og A- og B-flokki gæðinga. Hver og einn knapi og hestur lagði sitt af mörkum og sýndi glæsilega reiðmennsku og mikinn metnað.

Við erum ákaflega stolt af öllum okkar fulltrúum:

🐴 Barnaflokkur
• Hrafnhildur á Bylgju frá Hvoli II
• Ragna Margrét á Trölla frá Vetleifsholti 2

🐴 Unglingaflokkur
• Talía á Væntingu frá Auðholtshjáleigu
• Katla Björk á Hlín frá Hvammi
• Aníta Liv á Glóð frá Hveragerði

🐴 Áhugamannaflokkur
• Sigurrós Lilja á Hróki frá Hafragili
• Elída á Mára frá Hvoli II

🐴 A-flokkur ungmenna
• Sigrún Björk á Elvu frá Staðarhofi
• Elsa Tham á Kötlu frá Kjarri

🐴 B-flokkur
• Emma á Eydísi frá Kolsholti 3 og Ösp frá Áskoti
• Pernilla á Glæði frá Langholti

🐴 A-flokkur
• Dagbjört Skúladóttir á Dröfn frá Dimmuborg
• Helga Una á Hildi frá Fákshólum

Sérstakar hamingjuóskir sendum við Helgu Unu og Hildi frá Fákshólum, sem tryggðu sér sæti í milliriðli A-flokks. Við óskum þeim innilega góðs gengis í framhaldinu!

Við þökkum öllum knöpum, hestaeigendum, ræktendum, aðstandendum og stuðningsfólki fyrir frábæran dag. Það er sannarlega ánægjulegt að sjá svo marga glæsilega fulltrúa Ljúfs á Landsmóti 2026.

Áfram Ljúfur! 💙🐴

Photos from Hestamannafélagið Ljúfur's post 07/07/2026

Nú er keppni í A-flokki lokið á Landsmóti 2026.

Við erum afar stolt af fulltrúum Hestamannafélagsins Ljúfs sem stóðu sig glæsilega í keppninni.

Dagbjört Skúladóttir keppti á Dröfn frá Dimmuborg og Helga Una keppti á Hildi frá Fákshólum.

Sérstakar hamingjuóskir til Helgu Unu og Hildar, sem tryggðu sér sæti í milliriðli. Við óskum þeim góðs gengis í framhaldinu!

Við óskum knöpum, eigendum og ræktendum innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu og þökkum þeim fyrir að vera Ljúfi til mikils sóma á Landsmótinu.

Photos from Hestamannafélagið Ljúfur's post 06/07/2026

Nú er keppni í A-flokki ungmenna lokið á Landsmóti 2026.

Við erum afar stolt af fulltrúum Hestamannafélagsins Ljúfs sem stóðu sig glæsilega í keppninni.

Sigrún Björk keppti á Elvu frá Staðarhofi og Elsa Tham keppti á Kötlu frá Kjarri.

Við óskum knöpum, eigendum og ræktendum innilega til hamingju með frammistöðuna og þökkum þeim fyrir að vera Ljúfi til mikils sóma á Landsmótinu.

Photos from Hestamannafélagið Ljúfur's post 06/07/2026

Nú er keppni í B-flokki lokið á Landsmóti 2026.

Við erum afar stolt af þeim glæsilegu hestum sem kepptu fyrir hönd Hestamannafélagsins Ljúfs.

Emma sýndi Eydísi frá Kolsholti 3 og Ösp frá Áskoti, en Pernilla sýndi Glæði frá Langholti.

Við óskum knöpum, eigendum og ræktendum innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu og þökkum þeim fyrir að vera Ljúfi til mikils sóma á Landsmótinu.

Photos from Hestamannafélagið Ljúfur's post 06/07/2026

Sérstakri forkeppni í B-flokki ungmenna lauk í dag.

Við erum einstaklega stolt af þeim Sunnevu Sif og Sigrúnu Björk sem kepptu fyrir hönd Hestamannafélagsins Ljúfs og stóðu sig glæsilega í keppninni.

Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum þeim fyrir að vera félaginu til mikils sóma á Landsmóti 2026.

Photos from Hestamannafélagið Ljúfur's post 05/07/2026

Sérstakri forkeppni í áhugamannaflokki lauk í dag.

Við erum afar stolt af þeim Sigurrós Lilju og Elidu Christian sem tóku þátt fyrir hönd Hestamannafélagsins Ljúfs og stóðu sig glæsilega í keppninni.

Við óskum þeim innilega til hamingju með frammistöðuna og þökkum þeim fyrir að vera félaginu til mikils sóma á Landsmóti 2026.

Photos from Hestamannafélagið Ljúfur's post 05/07/2026

Sérstakri forkeppni í unglingaflokk lauk í dag.
Við getum verið ákaflega stolt af þeim Talíu, Kötlu Bjök og Anítu Liv sem stóðu sig mjög vel í sinni keppni.
Við óskum þeim til hamingju með sinn árangurinn.

Photos from Hestamannafélagið Ljúfur's post 05/07/2026

Nú er sérstakri forkeppni í Barnaflokk lokið á Landsmóti 2026 og stóðu þær Hrafnhildur og Ragna Margrét sig með stakri prýði og voru félaginu til sóma.

Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn í dag.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hveragerdi?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Vorsabæjarvöllum 13
Hveragerdi
810