Golfklúbbur Hveragerðis

Golfklúbbur Hveragerðis

Share

Gufudalsvöllur er staðsettur í dalnum inn af Hveragerði, völlurinn er einn besti níu holu völlur landsins í einungis 30 mínútna fjarlægð frá Höfuðborginni.

Fjölbreyttur völlur í fallegu umhverfi. Vertu velkominn í golf í sumar. Klúbburinn rekur veitingasölu í Gufudal.
Þar er hægt að fá heimabakað bakkelsi og ýmiskonar veitingar.

29/08/2026

Opna-TA Sport verður haldið sunnudaginn 6. september, mótið er 18 holu Texas Scramble.

Leikform 18 holu 2ja manna Texas Scramble þar sem hámarksforgjöf karla er 24 og kvenna 28. Samanlögð vallarforgjöf deilt með 5, forgjöf liðanna, verður handvirkt reiknuð á staðnum. Því ber að taka forgjöf við skráningu á Golf.is með fyrirvara. EKKI er gefin hærri forgjöf en sem nemur vallarforgjöf lægri keppanda.

Rástímar frá kl. 08:00-10:00 og 13:00-15:00

Skráning opnar 27/8 kl. 12:00 og lýkur 5/9 kl. 20:00

Verðlaun:

1. Verðlaun kr. 80.000,- á mann Gjafabréf hjá T.A. Sport Travel

2. Verðlaun kr. 50.000,- á mann Gjafabréf hjá T.A. Sport travel

3. Verðlaun kr. 25.000,- á mann Gjafabréf hjá T.A. Sport travel

Nándarverðlaun á 7./16. holu og 9./18. holu ein verðlaun- 20.000,- Gjafabréf hjá T.A. Sport Travel á hvora holu.

Aðeins kylfingar með gilda forgjöf geta unnið til forgjafarverðlauna.

Rástímar frá 08:00-10:00 og 13:00-15:00

Photos from Golfklúbbur Hveragerðis's post 29/08/2026

Lokamót Örninn Golfverslun var haldið í dag,rúmlega helmingur þeirra sem hafa mætt í mótin í sumar tótu þátt í lokamótinu í blíðskapar veðri og var skorið eftir því.
Efstu fjórir á stigalistanum fengu verðlaun frá Örninn Golfverslun.

1. sæti: Guðlaug Jónsdóttir 278,5 stig
2. sæti: Elvar Örn Rúnarsson 253 stig
3. sæti: Guðmundur Erlingsson. 237 stig
4. sæti: Sigurður Eigilsson 229 stig

Rúmlega 40 kylfingar tóku þátt í mótunum í sumar og þökkum við þeim fyrir þáttökuna, þá þökkum við Örninn Golfverslun fyrir stuðninginn.

Mótanefnd GHG
https://www.facebook.com/orninn.golfverslun

22/08/2026

Sveit GHG í karlaflokki 50 ára og eldri tók þátt í Íslandsmóti golfklúbba 3. deild á heimavelli 20-22 ágúst. Sveitin sigraði allar þrjár viðureignirnar í riðlakeppninni 3-0, en þær voru við Golfklúbb Vatnsleysustrandar, Golfklúbb Hornafjarðar og Golfklúbb Húsavíkur. Sveitin sigraði svo Golfklúbb Ísafjarðar í undanúrslitum 2,5-0,5. Í úrslitaleik tapaði sveitin fyrir Golfklúbb Kiðjabergs 2-1 í hörku spennandi viðureign, þar sem tveir leikir voru jafnir og einn tapaðist.
Úrslitin voru þessi:
1 Golfklúbbur Kiðjabergs
2 Golfklúbbur Hveragerðis
3 Golfklúbbur Hornafjarðar
4 Golfklúbbur Ísafjarðar
5 Golfklúbbur Húsavíkur
6 Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
7 Golfklúbburinn Þverá Hellishólum

21/08/2026

Karlalið GHG 50+ leikur til úrslita á morgun um sigur í Íslandsmóti Golfklúbba 50+ 3. deild við Golfklúbb Kiðjabergs, liðið er búið að spila fjóra leiki og vinna þá alla.

20/08/2026

Hér er hægt að fylgjast með Íslandsmóti Golfklúbba 3. deild 50+

docs.google.com

19/08/2026

Vil minna félagsmenn á að það er verið að halda Íslandsmót golfklúbba hjá okkur, og á meðan það er í gangi eigum við að fá 50% afslátt af flatargjaldi hjá öllum klúbbum. Æfingar hjá krökkum falla einnig niður.

Photos from Golfklúbbur Hveragerðis's post 18/08/2026

Framkvæmdir hafnar við nýtt vökvunarkerfi á Gufudalsvelli.

16/08/2026

Karlasveit GHG var að spila í Íslandsmóti Golfklúbba 3. deild um helgina á Húsavík og enduðu í fjórða sæti, töpuðu í bráðabana á 19 holu í leiknum um þriðja sætið, Sigurður og Theodór voru að taka þátt í fyrsta sinn og stóðu sig mjög vel. Flottur árangur hjá þeim öllum. Katlavöllur flottur og allt utanumhald hjá GH til sóma, takk fyrir okkur.

11/08/2026

Kristjan Valdimarsson gerði sér lítið fyrir og skellti í holu í höggi á sjöundu holu. Notaði hann 4 járn til verksins. Óskum honum innilega til hamingju með þetta.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hveragerdi?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Gufudalur
Hveragerdi
810

Opening Hours

Monday 10:00 - 21:00
Tuesday 10:00 - 21:00
Wednesday 10:00 - 21:00
Thursday 10:00 - 21:00
Friday 10:00 - 21:00
Saturday 09:00 - 16:00
Sunday 09:00 - 16:00