30/06/2026
https://www.hveragerdi.is/is/stjornkerfi/utgefid-efni/frettir/laus-storf/laust-starf-i-sunlauginni-i-laugaskardi
Erum við að leita að þér? :)
Laust starf í Sundlauginni í Laugaskarði
Sundlaugin í Laugaskarði auglýsir eftir kvenkyns starfsmanni við Sundlaugina í Laugaskarði. Um er að ræða 100% starf.
11/06/2026
Það verður heilmikið um að vera í Sundlauginni Laugaskarði á þjóðhátíðardegi Íslendinga þann 17. júní.
Sundlaugin er opin kl. 09-19 og verður Wibit þrautabrautin sett upp í hádeginu.
Kl. 10.00 Opnun sýningar um sögu Laugaskarðs á neðri hæð.
Kl. 11.00 Laugaspaug í umsjá sunddeildar Hamars í anda fyrri tíma
Kl. 12.00 Wibit þrautabrautin sett upp
Kl. 17.00 Sundlaugarpartý með DJ Atla Kanil
Gleðilega þjóðhátíð! 🇮🇸
09/06/2026
Ný sýning um sögu sundlaugarinnar í Laugaskarði verður opnuð á 17. júní kl. 10:00.
Sýningin tekur mið af því að segja söguna í stuttu máli, bæði á íslensku og ensku, stutt ljósmyndum sem valdar hafa verið til að ramma söguna inn þannig að bæði íslensku- og enskumælandi gestir geti skoðað sýninguna og náð að skilja söguna á nokkrum mínútum.
Sýningin er sett upp í tilefni 80 ára afmælis bæjarins og mun vera stöðug sýning á neðri hæð sundlaugarbyggingarinnar. Ljósmyndirnar á sýningunni eru eftir ýmsa höfunda en sýninguna hannaði Guðrún Arndís Tryggvadóttir.
24/04/2026
Lokum kl 20:00 í kvöld v/sundlaugarpartýs Ungmennaráðs ☺️
24/04/2026
Lokum í dag kl 20 v/ sundlaugarpartýs
Ungmennaráðs 🤗
21/04/2026
Verið velkomin í Laugaskarð á sumardaginn fyrsta. ☀️
18/04/2026
Lokum í dag kl 16:30 vegna árshátíðar Hveragerðisbæjar !!!