Íþróttafélagið Skyttur

Íþróttafélagið Skyttur

Share

Íþróttafélagið Skyttur starfar innan vébanda HSK og er varnarþing þess Rangárvallarsýsla. Skotíþróttafélag Rangæinga

Félagið stundar skotíþróttir, pílu og bogfimi og býður uppá aðtöðu fyrir þessar greinar.

17/06/2026

Lokað verður á Geitasandi á morgun 18. Júní á milli kl 9 og 15 vegna æfinga.

15/06/2026

Vegna námskeiðs er kúluvöllur á Geitasandi lokaður í dag og á morgun 15. og 16. júní milli kl 9 og 15.
Hægt verður þó að skrá sig í skotpróf vegna hreindýraveiða

22/05/2026

Minnum félagsmenn á sumarþjálfaranámið í þjálfaramenntun ÍSÍ en hægt er að taka sérgreinahluta hjá ISSF - International Shooting Sport Federation fyrir skotíþróttir og hjá Bogfimisamband Íslands - BFSÍ - Archery Iceland í bogfimi.
Félagið stykir þá sem koma að þjálfun hjá okkur eða hafa áhuga á því.

🎓 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 8. júní næstkomandi.

Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.

📝 Skráning:
Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi
Nemendur velja viðeigandi námskeið og ganga frá greiðslu í heimabanka.
Nýir notendur í Abler þurfa að stofna aðgang undir „Nýr notandi.“ Upplýsingar um verð er að finna þarna við skráningu í Abler.

ℹ️ Allar nánari upplýsingar veitir:

Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviðið ÍSÍ
📞 Sími; 514-4000 / 863-1399
✉️ Netfang: [email protected]

12/05/2026

Skotvöllurinn Geitasandi verður lokaður miðvikudag og fimmtudag 13. - 14. maí frá 8-18 báða daga vegna námskeiðs.

04/05/2026

Píla þessa vikuna!
Langar þig að prófa Pílu? Komdu og vertu með! 🎯
Stakur tími kostar 1.500 kr, en fyrir þá sem vilja taka þetta skrefinu lengra er hægt að gerast meðlimur hjá okkur – ársgjaldið er aðeins 15.000 kr.
👇 Skráðu þig hér 👇
https://www.abler.io/shop/skyttur/pila

Hægt er að fygljast með á pílugrúppunni á facebook líka her:
https://www.facebook.com/groups/938957101830345

Photos from Íþróttafélagið Skyttur's post 02/05/2026

Íslandsmeistaramót í loftskammbyssu var haldið í dag í Egilshöll.

Þrír keppendur mættur frá Skyttum. Stefán Ragnarsson, Bjarki Rúnarsson og Elín Kristín Ellertsdóttir.

Elín varð Íslandsmeistari í stúlknaflokki í loftskammbyssu.

Stefán Ragnarsson varð Íslandsmeistari í byrjendaflokki í loftskammbyssu.

Bjarki hafnaði í 4. sæti í 3. flokki

Þetta er því frábær árangur að landa tveimur Íslandsmeistaratitlum á Íslandsmóti.

Við óskum okkar keppendum til hamingju með frábæran árangur.

https://skyttur.is/frettir/2026/tvo-gull-islandsmeistaramoti

Photos from Íþróttafélagið Skyttur's post 12/04/2026

Vel heppnað opið innanlandsmót í loftgreinunm var haldið af Íþróttafélaginu Skyttum á Hvolsvelli 11. apríl og var það haldið í Íþróttamiðstöðin Hvolsvelli

23 keppendur voru skráðir á mótið frá fjórum íþróttafélögum. Mótið heppnaðist vel í alla staði.

Í fyrsta sæti í fullorðinsflokki í loftskammbyssu var Rúnar Helgi Sigmarsson frá Skyttum en hann bæði varð efstur í undanúrslitum með 542 stig og vann úrslit á sannfærandi hátt eftir mjög spennandi keppni. Maria Lagou frá Skotíþróttafélagi Kópavogs var í 2. sæti ( 524 í undanúrslitum) og Bjarki Sigfússon í því þriðja frá sama félagi ( 528 í undanúrslitum).

Í unglingaflokki í loftskammbyssu var Elín Kristín Ellertsdóttir frá Skyttum í 1. sæti með 454 stig

Í loftriffli í fullorðinsflokki hreppti Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir 1. sætið frá Skotgrund Skotfélag Snæfellsness með 560,5 stig og var Rakel Rún Karlsdóttir frá Skyttum í 2. sæti. með 515,0 stig

Í unglingaflokki í loftriffli var Brynjar Máni Hafsteinsson í 1. sæti. Þetta var hans fyrsta mót og skaut hann 513,4 stig

Í flokki hreyfihamlaðra (SH1-P1) í loftskammbyssu varð Elís Hugi Dagsson í 1. sæti með 522 stig. Hann varð jafnframt í öðru sæti í úrslitakeppninni.

Keppt var í liðakeppni í loftskammbyssu en þar vann A-lið Skotíþróttafélags Kópavogs, en í því liði voru Bjarki Sigufússon, Maria Lagou og Adam Ingi Höybye Franksson.

Í öðru sæti hafnaði lið Skotdeild Keflavíkur, en það samanstóð af bræðrunum Bjarna og Bjarka Sigurðssyni og svo Paula Gunnlaugsson Fric.

Í þriðja sæti var svo B-lið Skotíþróttafélags Kópavogs, en í því liði voru Jóhann Jónsson, Tatjana Jatsuk og Laura Sofia Valero Vargas.

Við erum mjög stolt af þessu móti en þetta mót hefði ekki orðið að veruleika nema með fórnfýsi sjálfboðaliða okkar og hjálp frá Skotíþróttafélag Kópavogs og Rangárþing eystra, og erum við virkilega þakklát þeim við að hjálpa okkur að koma þessu í framkvæmd.

Við höfum núna fengið mikla reynslu og komið okkur upp búnaði til að getað haldið áfram að bjóða uppá mót í Rangárvallarsýslu í loftgreinum.
Megalink Electronic Scoring Systems

Megalink Live 11/04/2026

Opið innanlandsmót er í gangi núna í Íþróttahúsinu á Hvolsvelli.
Hægt er að fylgjast með “live” hér á hlekknum fyrir.þ neðan en einnig má kíkja við og fylgjast með á staðnum :)

Megalink Live Megalink Live Results

10/03/2026

Vegurinn uppá skotsvæði er illa farinn eftir leysingar og því torfært eins og er. Við munum láta gera við veginn eins fljótt og auðið er.
Stjórnin

Silfur og brons um helgina í skammbyssugreinum 10/02/2026

Silfur og brons um helgina í skammbyssugreinum

Silfur og brons um helgina í skammbyssugreinum Um síðustu helgi sendu Skyttur lið á landsmót í staðlaðri skammbyssu og sport skammbyssu. Í staðlaðri skammbyssu sem var haldið í Egilshöll 07.febrúar hafnaði lið Skyttna í 2. sæti í liðakeppni. Í sport skammbyssu sem var haldið í Digranesi 08. febrúar hafnaði lið Skyttna ...

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hella?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Geitasandi
Hella
851

Opening Hours

Monday 08:00 - 23:00
Tuesday 08:00 - 23:00
Wednesday 08:00 - 23:00
Thursday 08:00 - 23:00
Friday 08:00 - 23:00
Saturday 08:00 - 23:00
Sunday 08:00 - 23:00