Fimleikafélagið Björk

Fimleikafélagið Björk

Share

Þetta er opinber heimsíða fyrir Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði.
Á þessari síðu koma

01/07/2026

Fimleikafélagið Björk 75 ára! 💙

Fimleikafélagið Björk var stofnað 1.júlí 1951 í Hafnarfirði. Tildrög stofnunarinnar var að hópur stúlkna á táningsaldri hóf að æfa fimleika undir leiðsögn Þorgerðar M. Gísladóttur íþróttakennara, haustið 1949. Þorgerður var jafnframt fyrsti formaður félagsins.

Félagið sendir hlýju og þakkarkveðjur til alls starfsfólks, iðkenda, og sjálfboðaliða sem hafa síðastliðin 75 ár verður partur af sögu félagsins. Við horfum björtum augum til næstu 75 ára með öllu Bjarkarfólki nær og fjær.

Afmælinu var fagnað með hátíðarkvöldi í Flensborg þann 6.júní.sl. Þar mætti fjöldi manns og áttum við saman góða stund þar sem gamlir og góðir tímar voru rifjaðir upp og hluti af því frábæra fólki sem hefur staðið við félagið á einn eða annan hátt fékk viðurkenningu og Hafsteinn Þórðarson var gerður að heiðursfélaga. Við þökkum öllum þeim sem fögnuðu með okkur fyrir ánægjulega kvöldstund ✨

Við fögnum þessum merka afmælis áfanga, þökkum brautryðjendum fyrri ára fyrir allt sitt starf, hlökkum til framtíðarinnar með komandi kynslóðum og stöndum saman, enda væri ekkert félag án þjálfara, sjálfboðaliða og að sjálfsögðu okkar flottu iðkenda, til hamingju með daginn öllsömul 💙

Meðfylgjandi er brot af myndbandi sem gert var í tilefni afmælisins og verður birt í fullri lengd síðar í sumar.

https://www.youtube.com/watch?v=Jhcxa1UBiRU

Leo Anthony og Ingibjörg Erla kepptu á sterkum alþjóðlegum stigamótum. 24/06/2026

Leo Anthony og Ingibjörg Erla kepptu á sterkum alþjóðlegum stigamótum 😍

Við óskum Leo og Ingibjörgu til hamngju með árangurinn og erum stolt af afreksíþróttafólkinu okkar! Frétt inn á heimasíðu félagsins!

Áfram Björk! 💙

Leo Anthony og Ingibjörg Erla kepptu á sterkum alþjóðlegum stigamótum. Nýliðna helgi fóru Leo Anthony Speight og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir til Bosníu til að keppa á tveimur fyrna sterkum alþjóðlegum stigamótum sem gilda til stiga á heims- og Ólympíulistum World Tekwondo. Á laugardag var komið að fyrra móti ferðarinnar European Club Championship ...

🎉 Dregið hefur verið í happdrætti Fimleikafélagsins Björk! 🎉 23/06/2026

🎉 Dregið hefur verið í happdrætti Fimleikafélagsins Björk! 🎉

Við viljum þakka öllum sem keyptu miða og studdu félagið. 💙

Nú hefur verið dregið úr öllum seldum miðum og vinningaskrá er birt hér fyrir neðan. Við óskum öllum vinningshöfum innilega til hamingju! 🥳

Vinningshafar geta sótt vinninga sína á skrifstofu félagsins frá og með morgundeginum.

Takk kærlega fyrir stuðninginn

🎉 Dregið hefur verið í happdrætti Fimleikafélagsins Björk! 🎉 Við viljum þakka öllum sem keyptu miða og studdu félagið. 💙Nú hefur verið dregið úr öllum seldum miðum og vinningaskrá er birt hér fyrir neðan. Við óskum öllum vinningshöfum innilega til hamingju! 🥳Vinningshafar geta sótt vinninga sína á skrifstofu félagsins frá og með...

09/06/2026

Kæru vinir, gestir, velunnarar og Bjarkarfólkið okkar!

Við viljum senda ykkur innilegar þakkir fyrir einstaka helgi sem við áttum saman í Björk💙

Fimleikafélagið Björk verður 75 ára þann 1.júlí ár, en sl. helgi var öllu tjaldað til með pompi og prakt í tilefni þess. Vorsýningar ársins voru 5 talsins og skein Hollywood þema sýninganna í gegn með glimmeri, glamúr og rauða dreglinum!
Enn á ný sýndu iðkendur félagsins hvað dugnaður, þjálfun og gleði geta skapað þegar allir leggjast á eitt. Það var virkilega ánægjulegt að sjá fjölskyldur, vini og velunnara fylla salina og taka þátt í þessari árlegu uppskeruhátíð félagsins.

Þakkir til allra þjálfara félagsins, iðkenda og sjálfboðaliða sem gerðu helgina ógleymalega. Rúmlega 1.100 áhorfendur mættu á vorsýningar helgarinnar sem er áhorfendamet í húsinu okkar. Félagið skapaði bæjarhátíð í Haukahrauninu með hoppuköstulum, andlitsmálningu, Blaðrarinn mætti á svæðið, Skátafélagið, poppvél, candy-floss og pylsutjald á heimsmælikvarða.
Svona viðburðir verða einfaldlega ekki til nema vegna fólksins sem stendur að baki þeim.

Þakkir til allra gesta sem mættu á 75 ára afmælishátíðina í Flensborg á laugardeginum og þökkum við viðurkenningahöfum fyrir þeirra framlag til félagsins í gegnum árin. Alls voru veitt 17 starfsmerki, 17 Silfulauf, 4 Gulllauf og ein Heiðursviðurkenning.

Heiðursfélagi 2026 er Hafsteinn Þórðarson. Framlag Hafsteins til félagsins yfir 3 áratugi er okkur ómetanlegt og erum við honum afar þakklát.
Í tilefni af afmælinu lét félagið gera sérstakt myndband um sögu Bjarkar. Á meðan við vinnum að útgáfu lengri útgáfu síðar á árinu viljum við benda ykkur á stuttan kynningarstiklu sem var frumsýnd á afmælishátíðinni:

Sjá myndband - https://www.youtube.com/watch?v=Jhcxa1UBiRU

Við erum ótrúlega þakklát fyrir stuðninginn og þátttökuna.
Það sem stendur uppi er samheldnin sem var áþreifanleg alla helgina og gleðin sem skein úr augum iðkenda okkar! Þegar stór verkefni eru fram undan sjáum við hvað við eigum marga góða að og hversu sterk tengsl hafa myndast innan félagsins í gegnum árin. Það er sannarlega eitthvað til að vera stolt af.
Takk fyrir að gera þessa helgi svona sérstaka!

Áfram Björk! 💙

Photos from Fimleikafélagið Björk's post 08/06/2026

Vorsýning 2026 💙

Photos from Fimleikafélagið Björk's post 08/06/2026

75 ár afmælissýning Björk fór fram um helgina 💙

Það var mikil gleði í Björk um helgina þar sem fram fór 5 frábærar sýningar stútfullar af hugrökkum, kraftmiklum, metnaðarfullum og mest af öllu glöðum iðkendum félagsins. Þau sýndu fyrir framan ríflega 1.100 manns afrakstur síðustu vikna.

Við þökkum öllum sem komu og fögnuðu með okkur, öllum flottu iðkendunum okkar, sjálfboðaliðum og fólkinu okkar sem stendur úti á gólfinu og þjálfar þessa flottu iðkendur alla daga ársins ✨ ÁFRAM BJÖRK ✨

Fimleikafélagið Björk 06/06/2026

Kæru vinir, Bjarkarfólk nær og fjær og aðrir góðir gestir -

nú fer að verða hver er síðastur að tryggja sér miða á 75 ára afmælishátíð félagsins sem fer fram í Flensborg kl. 18:00 í kvöld, laugardag 6.júní.
Miða er hægt að kaupa hér: www.fbjork.is 😍

Dagskráin er frábær - ræður, heiðursviðurkenningar, lifandi tónlist og frábærar veitingar frá Kokkarnir veisluþjónusta.

Allir gestir fá fordrykk við mætingu ✨

Hlökkum til að sjá sem flesta fagna þessum áfanga með Fimleikafélaginu Björk! 💙

Fimleikafélagið Björk

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Haukahraun 1
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00