31/08/2026
AGNES FRAMLENGIR
Agnes Jónudóttir hefur framlengt samning sinn við Hauka um eitt ár. Agnes er 180 cm framherji og hefur leikið með Haukum síðan 2021.
Tímabilið 24-25 lék Agnes um 13 mínútur í leik, var með 2,5 stig og 2 fráköst í leik og skilaði mikilvægu framlagi í Íslandsmeistaratitli liðsins um vorið.
Agnes tók sér frí frá körfubolta á siðasta tímabili þegar hún flutti erlendis en kom til liðsins í lok tímabilsins.
Viktor sagði þetta: “Það er ánægjulegt að endurheimta Agnesi í hópinn okkar en hún skilar mikilvægu hlutverki innan sem utan vallar”.
Haukar hlakka til að sjá Agnesi leika með Haukum í vetur.
Áfram Haukar💪🏀
25/08/2026
MILKA TIL HAUKA
Það er með mikilli ánægju að tilkynna að miðherjinn Dominykas Milka hefur gert 2ja ára samning um að spila með liði Hauka og tekur slaginn í fyrstu deildinni í vetur. Hann hefur leikið undanfarið með Njarðvík en þar áður með Keflavík og skilað mjög góðum tölum.
Það er í raun óþarfi að kynna kappann enda þekkt stærð í íslenskum körfubolta og er að hefja sitt 8.tímabil hér á landi. Það er því ljóst að með komu hans mun lið Hauka eflast til muna í baráttunni um sæti í Bónus.
Pétur sagði þetta: “Það er frábært að fá Milka til okkar. Hann færir liðinu styrk, gæði og reynslu sem okkur vantaði. Hann mun taka liðið á hærra stig engin spurning”.
Við bjóðum Milka velkominn til Hauka og hlökkum til samstarfsins í vetur.
Áfram Haukar💪❤️
20/08/2026
TAKK LOVÍSA!
Lovísa Björt Henningsdóttir, leikmaður Hauka og íslenska landsliðsins til fjölda ára hefur ákveðið að leggja frá sér skóna á hilluna frægu eftir langan og farsælan feril. Lovísa er uppalinn hjá Haukum og lék upp alla yngri flokka félagsins og byrjaði í mfl.félagsins 2010 þá 15 ára gömul.
Lovísa er margfaldur meistari með Haukum, hún varð einu sinni Íslandsmeistari, fimm sinnum bikarmeistari og tvisvar deildarmeistari og komst s*x sinnum í lokaúrslit. Lovísa hefur verið trygg sínu uppeldisfélagi en hún lék allan sinn feril hér á landi með Haukum.
Lovísa var fyrirliði Hauka til margra ára og þekkt fyrir að vera leiðtogi þess og góð fyrirmynd fyrir alla leikmenn, ekki síst unga og efnilega. Lovísa er mörgum hæfileikum gædd, ekki aðeins sem leikmaður, heldur líka sem mannseskja sem mun ávallt vera þekkt fyrir að leggja sig alla fram í því sem hún gerir.
Körfuknattleiksdeild Hauka stendur í mikilli þakkarskuld við Lovísu sem hefur ávallt látið hagsmuni liðsins og félagsins vera númer eitt. Samstarfið við hana hefur verið einstakt og verður hennar sárt saknað á vellinum og ekki síst í klefanum. Það væri hægt að halda áfram og rifja upp leiki, titla og ýmislegt annað en látum það bíða betri tíma.
Gangi þér vel Lovísa í næstu verkefnum ❤.
Áfram Haukar ❤🏀!
15/08/2026
Landsliðsverkefni sumarsins hjá okkar unga fólki er nú lokið eða lýkur í kvöld með frábærum árangri!
U15 ára landslið kvenna náði silfurverðlaunum á Nordic Open eftir að hafa unnið tvo leiki af þremur á mótinu. Við í Haukum eigum þar tvo fulltrúa, hana Luciönu Líf Björnsdóttur og Viktor Marinó Alexandersson sem var aðalþjálfari liðsins.
U16 ára landslið kvenna lauk keppni í 2.sæti eftir spennuþrunginn úrslitaleik í T3 hluta B-deildar á EuroBasket í Grikklandi á dögunum. Glæsilegur árangur þar. Við í Haukum eigum 3 fulltrúa í liðinu, þau Evu Bryndísi Ingadóttur, Hildi Emilíu Kristinsdóttur og Hákon Hjartarson sem var aðalþjálfari liðsins.
U18 ára landslið kvenna náði í 5. sæti B-deildar á EuroBasket móti í Tulcea í Rúneníu, frábær niðurstaða hjá góðu liði. Þar eigum við í Haukum tvo fulltrúa, þær Arnheiði Ísleif Ólafsdóttur og Ingu Leu Ingadóttur.
U16 ára landslið karla eru að spila í B-deild á EuroBasket móti í í Norður-Makedóníu. Þeir hafa þegar tryggt sér sæti í A-deildinni að ári en spila í kvöld kl. 19:00 úrslitaleikinn gegn Króatíu. Hægt er að horfa á leikinn hér: https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u16-eurobasket-2026-division-b/games/132129-ISL-CRO
Við eigum einn fulltrúa í þeim hóp, hann Sindra Logason - við hvetjum ykkur til þess að stilla inn kl 19:00 í kvöld og sjá strákana berjast um titilinn.
15/08/2026
Æfingatöflur fyrir komandi tímabil eru klárar & opnað hefur verið fyrir skráningu á 👉 https://www.abler.io/shop/haukar/korfubolti
🏀 Flokkar 10 ára og eldri hefja æfingar 24.ágúst 2026
🏀 Flokkar 9 ára og yngri hefja æfingar 1.september 2026
📌ATHUGIÐ að æfingatímar geta breyst fyrstu vikur haustsins.
07/08/2026
HAUKAR SEMJA VIÐ ELOISE PAVRETTE
Haukar hafa samið við franska leikmanninn Eloise Pavrette sem er 191 cm framherji/miðherji og er 23ja ára gömul. Eloise lék síðast í frönsku 2.deildinni þar sem hún skilaði um 7 stigum og 5 fráköstum að meðaltali í leik. Einnig hefur hún leikið í Þýskalandi og Ítalíu.
Viktor hafði þetta að segja: "Ég er mjög ánægður með að hafa samið við Eloise, hún kemur með hæfileika sem okkur vantar og er mikilvæg fyrir okkur".
Eloise sendi þessi skilaboð:"I’m super excited to be joining the Haukar team and can’t wait to meet you guys and looking forward to a great season see yall soon!”.
Haukar bjóða Eolise velkomna til Hauka og hlakka til samstarfsins í vetur.
Áfram Haukar!
29/07/2026
INGA LEA AFTUR HEIM TIL HAUKA
Inga Lea Ingadóttir hefur ákveðið að snúa aftur heim til Hauka og hefur skrifað undir samning til 2ja ára. Inga Lea ákvað í fyrra að færa sig til Njarðvíkur og var því í sigurliði þeirra sem vann Hauka í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í vor.
Inga Lea er uppalin í Haukum og er 17 ára 186 cm miðherji. Inga Lea hefur verið fastamaður í yngri landsliðum og tekur þátt í verkefnum U18 landsliðsins í sumar og er því mjög efnilegur leikmaður. Inga Lea bætir við meðalhæðina í lið Hauka og þá verður hún einnig hluti af hinu nýstofnaða U-liði félagsins í 1.deild.
Viktor hafði þetta að segja: "Það er afar kærkomið að endurheimta Ingu Leu til okkar en það er mikilvægt að halda uppöldum leikmönnum hjá liðinu. Hún er klárlega hluti af framtíðarplönum Hauka og er mjög efnilegur leikmaður".
Við bjóðum Ingu Leu velkomna heim aftur og hlökkum til að sjá hana aftur í rauðu í Ólafssal næstu árin.
Áfram Haukar, framtíðin er björt!
27/07/2026
ARNHEIÐUR ÁFRAM HJÁ HAUKUM
Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir hefur framlengt samning sinn við félagið til eins árs og verður því með liðinu næsta vetur. Arnheiður er ein af efnilegri leikmönnum landsins og hefur verið hluti af yngri landsliðum undanfarin ár. Arnheiður var valin í úrvalslið Norðurlanda nýverið eftir frábæra frammistöðu á Norðurlandamóti U18 nú fyrr í sumar.
Arnheiður, sem hefur leikið með Haukum nánast allan sinn feril, er 180 cm framherji og verður 17 ára í ár.
Viktor hafði þetta að segja: "Stefna félagsins er að hlúa vel að ungum og efnilegum leikmönnum og gefa þeim færi á að verða hluti af framtíð þess. Það er því frábært að halda Arnheiði hjá okkur næsta vetur, hún er mjög efnileg og er mikilvægt að hún fái tækifæri hjá okkur til að sanna sig."
Haukar stefna í fyrsta skipti fram U-liði í 1.deild og verður Arnheiður mikilvægur hluti af því verkefni sem er ætlað að styðja við afreksstarfið hjá félaginu. Þjálfari þess verður Hákon Hjartarson.
Við hlökkum til að sjá Arnheiði í Ólafssal næsta vetur.
Áfram Haukar, framtíðin er björt!
20/07/2026
U20 MEÐ SILFUR OG LEIKUR Í A DEILD
Íslenska U20 landslið karla í körfubolta tryggði sér silfur á Evrópumótinu í B-deild í Bratislava eftir hörkuleik gegn Úkraínu í úrslitaleik en lokatölur urðu 64–74 fyrir Úkraínu.
Haukar eiga fjóra fulltrúa í í liðinu, tvo leikmenn þá Frosta Valgarðsson og Kristófer Breka Björgvinsson. Þá er Gunnar Sverrisson yfirþjálfari í þjálfarateyminu og Alex Mar Bjarkarson er sjúkraþjálfari liðsins. Verðugir fulltrúar Hauka svo sannarlega.
Mikil liðsheild einkenndi liðið og margir stigu upp þegar á reyndi en Viktor Lúðvíksson leikmaður Stjörnunnar var valinn í úrvalslið mótsins. Þjálfari liðsins er Kjartan Atli Kjartansson.
Frosti og Kristófer Breki áttu góða leiki og stóðu sig mjög vel. Þeir félagar eru mikilvægir hlekkir í liði Hauka og verða í baráttunni næsta vetur í 1.deildinni.
Við óskum liðinu og okkar strákum til hamingju með frábæran árangur.
Áfram Haukar!