Knattspyrnufélagið Haukar

Knattspyrnufélagið Haukar

Share

Knattspyrnufélagið Haukar Þann 12. Margir viðburðir verða á afmælisárinu og langar okkur að gefa þér innsýn í það helsta sem á döfinni verður. Föstudaginn 8.

apríl 1931 var Knattspyrnufélagið Haukar stofnað af þrettán strákum á aldrinum 11 til 17 ára og þegar árið 2011 gengur í garð er því tilefni til að fagna 80 ára afmælinu með glæsibrag. Iðkendur Hauka eru nú á þriðja þúsund í s*x deildum auk öflugs starfs í öldungaráði, stuðningsmannaklúbbnum Haukar í horni og skemmtilegu og vaxandi starfi í getraunleiknum 1x2. Í hverri viku fara um 5 – 7 þúsund ma

19/06/2026

Andlátsfrétt
Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann hefði verið jafnvígur í fótboltanum og handboltanum. Hann var líka nefndur sem einn af drengjunum hans Guðsveins, drengjum sem lögðu grunn að öflugu íþróttastarfi félagsins á árum áður. Auk þess að vera afar fjölhæfur íþróttamaður var Diddi mikill félagsmaður og sat m.a. í aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Hauka á árunum 1984-1990 og var varaformaður knattspyrnudeildar 1970-1972. Þá naut íþróttahreyfingin krafta hans á ýmsum sviðum í stjórnum og ráðum. Diddi var ætíð afar virkur þátttakandi í lífi og starfi Hauka auk þess að fylgjast vel með afkomendum sínum sem stunduðu íþróttir hjá félaginu.
Þá vilja Haukar þakka Didda sérstaklega fyrir þátttöku hans í Lávarðadeild Hauka, en þar lagði hann drjúga hönd að verki með félögum sínum við flutning á bílum fyrir félagið sem skapar félaginu drjúgar tekjur. Eitt af síðustu verkum Didda var einmitt ferð með félögum sínum fyrir skömmu þar sem glaðværð og vinnusemi einkenndi hópinn.
Didda er sárt saknað og við sendum Kristrúnu og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.
Knattspyrnufélagið Haukar þakkar Sigurði Jóakimssyni, Didda, drengskap, hlýtt viðmót og endalausan stuðning og væntumþykju við starf Hauka.

Blessuð sé minnig Sigurðar Jóakimssonar.

Knattspyrnufélagið Haukar

19/06/2026

Laugardaginn 13. jùní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.
Guðjón sat í stjórn handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags.

Við fráfall Guðjóns er stórt skarð höggvið í hóp öflugustu stuðningsmanna Hauka. Knattspyrnufélagið Haukar minnist Guðjóns með hlýju og þakklæti um leið og félagið sendir Herborgu og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Guðjóns Ágústs Sigurðarsonar.

Photos from Haukar Fótbolti's post 05/06/2026

Velkomin heim á Ásvelli ⚽️🔴

07/05/2026

Sumaríþróttaskóli Hauka 2026 - Skráning hafin!

Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007.
Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi.

Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum og hafa allir kennarar skólans mikla reynslu af þjálfun yngri barna.

Dagskrá skólans í sumar og allar nánari upplýsignar má finna á https://www.haukar.is/sumarithrottaskoli-hauka/

Skráningar:
Skráningar á öll námskeið fara fram í gegnum Abler, hægt er að ýta á viðkomandi vefsíðu til að flytja þig á réttan stað.
Skráningar opna 7.maí:
https://www.abler.io/shop/haukar/sumarskoli

Hagnýtar upplýsingar:
** Verð, 9.000 kr á námskeið og 15.000 kr fyrir allan daginn.
** Hádegismatur kostar 7.000 kr.
** Senda börn með nesti, kl 10.15-10.45/ kl 14.15-14.45 er borðað.
** Lokað 21.júlí-4.ágúst.
** Aðeins námskeið í boði fyrir hádegi 6.júlí-17.júlí
** Öll námskeið eru vikunámskeið

Haukar - Félagið mitt

23/04/2026

Gleðilegt sumar!
Kæru Haukafélagar, kæru Hafnfirðingar, gleðilegt sumar.
Þann 12. apríl síðastliðinn fagnaði Knattspyrnufélagið Haukar 95 ára afmæli félagsins. Nú, nokkrum dögum síðar fögnum við komu sumarsins á sumardeginum fyrsta. Veturinn sem nú er að baki hefur verið erilsamur og um margt árangursríkur í öllu starfi félagsins. Meistaraflokkur karla í handbolta fagnaði bikarmeistaratitli 2026 og stelpurnar í mfl. kvenna leika nú í spennandi undanúrslitum. Meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik leikur einnig í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitil þessa dagana auk þess að hampa deildarmeistaratitli 2026. Sannarlega góður árangur hjá þessum liðum. Þá eru spennandi tímar framundan í knattspyrnudeildinni og nýja knatthúsið hefur heldur betur verið lyftistöng fyrir knattspyrnudeildina. Barna- og unglingastarf deildanna er í miklum blóma sem og starfið í karatedeild og skákdeild. Nú styttist í hvítasunnuhlaup skokkhópsins, utanvegahlaups, sem hefur verið afar vinsælt og fjölsótt. Ekki má heldur gleyma að nefna að eldri borgarar eru duglegir að hittast hér á Ásvöllum, ganga sér til heilsubótar um nágrennið og setjast síðan niður að göngu lokinni í spjall og kaffisopa.
Kæru vinir.
Megi sumarið færa okkur öllum margar gleðiríkar stundir í sól og sumaryl.

Áfram Haukar.
Magnús Gunnarsson,
formaður Knattspyrnufélagsins Hauka.

Photos from Knattspyrnufélagið Haukar's post 14/04/2026

Glatt á hjalla á 95 ára afmæli Hauka.
Haukar fögnuðu afmælinu með félagsmönnum og góðum gestum á afmælisdegi félagsins á sunnudaginn. Fánar félagsins blöktu við hún og íslenski fáninn undirstrikaði hátíðleika dagsins. Erilsamt var á þessum góða degi og ekki var slegið af með æfingar hjá deildunum frekar en fyrri daginn. Þegar líða tók á dag streymdi fólk að til að horfa á íslenska landsliðið í handknattleik, „stelpurnar okkar“ keppa við lið Portugal um sæti á Evrópumóti landsliða. Ísland vann þar góðan sigur og verður spennandi að fylgjast með liðinu á komandi Evrópumóti landsliða. HSÍ færði félaginu blómvönd í tilefni dagsins og um leið þakklæti fyrir ánægjulegt samstarf.
Góður afmælisdagur að baki.
Áfram Haukar.

Photos from Knattspyrnufélagið Haukar's post 11/04/2026

Knattspyrnufélagið Haukar 95 ára 12. apríl 2026.
Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við 95 ára afmæli félagsins okkar. Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og 15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar. Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum í sögu félagsins.
Við erum stolt af félaginu okkar. Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og félagsstarf og aðstaða okkar hér á Ásvöllum er ein sú glæsilegasta á landinu. Það sýnir sig líka þessar vikurnar þar sem íþróttafólkið okkar leikur í úrslitaviðureignum í handbolta og körfubolta. Aðrar deildir félagsins standa styrkum fótum og eflast með hverju ári. Þá er tilkoma Knatthúss Hauka, eins glæsilegasta knatthúss landsins, gríðarleg lyftistöng fyrir allt starf knattspyrnudeildar.
Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum iðar af lífi frá morgni til kvölds og samhliða því að fagna þessum merka áfanga í sögu félagsins er rétt að geta þess að kvennalandslið Íslands í handknattleik leikur mikilvægan leik við landslið Portúgal kl. 16:00 hér á Ásvöllum.
Kæru Haukafélagar, kæru Hafnfirðingar, fögnum á afmælisdegi þróttmiklu íþróttastarfi Knattspyrnufélagsins Hauka. Framtíðin er björt.
Áfram Haukar!
Magnús Gunnarsson,
Formaður Knattspyrnufélagsins Hauka.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address

Ásvellir 1
Hafnarfjörður
221