05/07/2026
Meira um ekta Valbeinn !
Flugan Valbeinn er hugverk , eign Reiðu Andarinnar og sé ég mig tilneyddan að skrifa þennan póst bara til þess að verja mitt vörumerki og mína vöru. Því miður hefur borið á að það er verið að selja fluguna nokkuð víða sem er ekki mín framleiðsla eða frá því fyrirtæki sem ég versla við sem er Atlantic Flies. Það sem er í umferð er bara ekki réttur Valbeinn. Það mega allir sem vilja selja fluguna mína bara einfaldlega hafa samband við mig Þorbjörn Helga eiganda og stofnada RÖ.
Flugur fyrir alla !
RÖ
30/06/2026
Valbeinn í vinnunni !.
Það er búið að vera brjálað að gera hjá Valla síðustu vikur enda búinn að standa sig gríðalega vel. Hér eru myndir af glöðum veiðimönnum sem hafa landað þeim silfraða á Vallann , enda er það að landa þeim silfraða ein besta tilfinning í heimi. Valbeinn er hannaður af Reiðu Öndinni og fæst eingöngu hjá RÖ og í nokkrum velvöldum Veiðibúðum. https://www.reidaondin.is/product/valbeinn-al-6cm/
Flugur fyrir alla !
RÖ
16/06/2026
Flottúbur.
Nú í byrjun tímabils þegar göngurnar ekki þéttar og fiskurinn jafnvel dreifður þá er ekkert betra leitartæki en flottúbur með löngum hárum . Reiða Öndin á margar gerðir og stærðir frá 4 cm-6-9 og 12 cm. Skoðið úrvalið á https://www.reidaondin.is/flugurnar/
Flugur fyrir alla !
RÖ
11/06/2026
Flugur vikunnar nýtt í netsölu.
Flugurnar Madeline Black og Valbeinn gull og silfur voru að koma í netsölu. MB er til í stærðum 14 og 16. Valli rauði gull og silfur er til í stærðinni 14. Skoðið úrvalið af flugum hjá RÖ .
https://www.reidaondin.is/flugurnar/
Flugur fyrir alla !
RÖ
10/06/2026
Lax-maður !
Nú er skemmtilegur tími allt komið á fullt, hver áin á fætur annarri að opna og mjög bjart framundan. Valbeinn er að standa sig vel og hér er Ingi Fannar með fallega hrygnu af Eyrinni í Norðurá á félaga Valbein.
Bingó í Fjallasal
RÖ
04/06/2026
Fluga vikunnar og allt komið á fullt.
Það er viðeigandi að birta mynd af andarútgáfunni af flugunni Stekkur Blá þar sem Norðurá opnaði í morgun. Hún er fyrst hnýtt af Michael Martinek 1988 fyrir John De Berger báðir þekktir fluguveiðimenn. Flugan er ein af þekktari laxaflugum sem tengist sérstaklega Norðurá. Flugan er nefnd eftir veiðistaðnum Stekk í ánni og hefur verið notuð mikið í björtu tæru vatni. Rö heyrði líka að flugan hefði gert einhverja rosalega veiði í Laxá Í Kjós þar sem Haraldur Eiríksson var í aðalhlutverki ásamt öðrum, þannig að þegar þið hittið Halla þá liggur það ljóst fyrir að rukka hann um söguna um Stekkur Blá .
Flugur fyrir alla !
RÖ
28/05/2026
Flugur vikunnar.
Hér eru fjórar flugur sem ég sjálfur myndi velja til að taka fyrstu rennslin í byrjun sumars og hafa reynst mér vel í dæmigerðu vorvatni á dauðarekinu. Þær eru Silver Wilkinson, Haugur Gull, Collie Dog og Rip. Minnist séstaklega þegar við hjónin vorum stödd snemma í júní á Eyrinni í Norðurá búin að prufa hefðbundna pakkann án þess að hreyfa fisk þar til SW fór undir og tveggja ára hrygna reddaði deginum . Svo er það Haugur Gull sem er sennilega með þeim sterkari þar sem ég hef verið að veiða.
Flugur fyrir alla !
RÖ
22/05/2026
Flugur vikunnar frábærar fimm !
Nú styttist óðum í laxveiðitímabilið, lónbúinn mættur og menn og konur að setja sig í stellingar. Þá er gott að huga að flugunum og hér eru fimm flugur sem reynst hafa mér og mínum vel í nýjum laxi þá sérstaklega þegar maður er að leita í byrjun að þeim silfraða. Þessar yfirborðsflugur skanna mikið svæði og tökurnar verða svo sýnilegar og magnaðar. Þetta eru Valbeinn, Collie Dog, Evening Dress, Sunray Hallow og Hreggur.
Flugur fyrir alla !
RÖ