07/09/2026
Sequssuna Zeeb leikmaður 2.flokks Hauka var á dögunum í fyrsta sinn kallaður í A-landsliðshóp Grænlands 🇬🇱
Þeir eru staddir í æfingaferð í Tyrklandi og spiluðu sinn fyrsta leik gegn Tyrkneska liðinu Antalya 1863 FK sem þeir sigruðu örugglega 8-1.
Sequssuna Zeeb kom þar við sögu og skoraði eitt marka liðsins ⚽️
05/09/2026
Síðasti heimaleikurinn í sumar hjá strákunum lauk með bikar afhendingu 🏆 ein umferð er eftir af tímabilinu (Kári vs Haukar) og eftir það tekur við undanúrslit í Gatorade-bikarnum þar sem liðið mætir Kormáki/Hvöt á Blönduósvelli 15. september❗️
Eftir viku spila stelpurnar sinn síðasta leik í deildinni og það á Birtu-vellinum gegn Tindastól, 14:00. Allir að mæta á völlinn og styðja við okkar lið í lokaleik tímabilsins 2026❗️
📸 Hulda Margrét