06/08/2026
Ertu 60 ára eða eldri og langar að hreyfa þig í góðum félagsskap?
Frísk í FH í hefst 19. ágúst. Við bjóðum upp á skipulagðar styrktaræfingar tvisvar í viku undir leiðsögn þjálfara þar sem áhersla er lögð á betri heilsu, aukinn styrk í skemmtilegum félagsskap.
💙 Skráðu þig í dag – slóð á skráningu er hér fyrir neðan.
https://www.abler.io/shop/fh/frisk
15/06/2026
Skráning fyrir haustönn 2026 er hafin! 😀
Frísk í FH er hreyfingarúrræði fyrir einstaklinga 60 ára og eldri og er þjónustan byggð í kringum hópþjálfun undir handleiðslu menntaðra þjálfara. Þjálfarar og stjórnendur verkefnisins eru öll menntaðir íþróttafræðingar frá Háskólanum í Reykjavík. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol, liðleika- og jafnvægisæfingar og er þjálfunin sniðin að þörfum og getu hvers þátttakanda.
Markmið Frísk í FH er að efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu þátttakenda og skapa tækifæri fyrir eldra fólk til að stunda reglulega hreyfingu í góðum félagsskap 🤍🖤
Við hvetjum áhugasama til að skrá sig sem fyrst, þar sem hóparnir fyllast jafnan fljótt 😀😀😀
Æfingar fara fram á miðvikudögum og föstudögum í líkamsræktarsal FH í Kaplakrika.
Hópur 1 - 08:45
Hópur 2 - 09:30
Hópur 3 - 10:15
Ef óskað er eftir aðstoð við skráningu eða ef spurningar vakna er hægt að hafa samband á netfangið [email protected]
Forskráning fer fram á Abler:
FH | Frísk í FH
Finndu námskeið í vefverslun FH. Keyrt áfram af Abler
09/01/2026
🏃♀️ Hreyfing, heilsa og félagsskapur fyrir 60+
Við eigum nokkur laus pláss á námskeiðið okkar á vorönn 2026.
📩 Hafðu samband og fáðu að kíkja á prufuæfingu eða skráðu þig hér: https://www.abler.io/shop/fh/frisk
12/11/2025
🌿 Frábær mæting og ánægja með fræðslu um næringu 🌿
Við viljum færa öllum sem mættu á fræðslufyrirlesturinn um næringu í Hraunseli innilegar þakkir fyrir komuna og frábæra þátttöku!
Fyrirlesturinn fór fram fimmtudaginn 23. október og var haldinn af Agnesi Þóru Árnadóttur, næringarfræðingi (BSc í næringarfræði, MSc í íþróttanæringarfræði).
Agnes fór yfir mikilvægi góðrar næringar fyrir heilsu, orku og vellíðan og deildi fjölmörgum hagnýtum ráðleggingum sem þátttakendur geta nýtt í daglegu lífi.
Það var frábær mæting og mikil ánægja með fyrirlesturinn – gestir tóku virkan þátt, spurðu spurninga og sköpuðu líflega og skemmtilega stemningu.
Við þökkum Agnesi Þóru kærlega fyrir fræðandi og hvetjandi erindi – og öllum sem mættu fyrir áhugann og góða samveru.
Fræðslufyrirlesturinn var haldinn í samstarfi við Frísk í FH, Hafnarfjarðarbæ og Félag eldri borgara í Hafnarfirði (FEBH).
📸 Sjá mynd frá viðburðinum hér að neðan📸
20/10/2025
🌿 Fræðslufyrirlestur um næringu 🌿
Við bjóðum íbúa Hafnarfjarðar, 60 ára og eldri, velkomna á fræðslufyrirlestur um næringu með Agnesi Þóru Árnadóttur, næringarfræðingi (BSc í næringarfræði, MSc í íþróttanæringarfræði).
📍 Hraunseli, Flatahrauni 3, 220 Hafnarfjörður
📅 Fimmtudaginn 23. október
🕐 Kl. 13:00
Á fyrirlestrinum verður farið yfir mikilvægi góðrar næringar fyrir heilsu, orku og vellíðan, og þátttakendur fá hagnýtar ráðleggingar sem auðvelt er að nýta í daglegu lífi.
Eitt af markmiðum okkar er að stuðla að auknu heilsulæsi þátttakenda og annarra íbúa Hafnarfjarðar – því þekking á eigin heilsu og næringu er lykillinn að betri lífsgæðum.
Fræðslufyrirlesturinn er haldinn í samstarfi við Frísk í FH, Hafnarfjarðarbæ og Félag eldri borgara í Hafnarfirði (FEBH).
✨ Við hvetjum alla til að mæta, hlusta, spyrja spurninga og taka þátt í fræðandi og skemmtilegri samveru.
25/07/2025
Skráning er hafin fyrir haustönn 2025.
Villt þú vera hluti af skemmtilegum hóp og æfa undir handleiðslu fagmenntaðs þjálfara? Þá gæti Frísk í FH verið eitthvað fyrir þig.
Frísk í FH er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri. Starfsemi Frísk í FH er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2x í viku, fyrir hádegi á miðviku- og föstudögum.
Haustönn stendur yfir frá 18. ágúst- 19. des 2025.
Skráning fer fram hér: https://www.abler.io/shop/fh/frisk?country=IS
Ef þig vantar aðstoð við skráningu ekki hika við að hafa samband hér eða í gegnum netfangið [email protected]
03/02/2025
Hefur þú áhuga á að vera hluti af skemmtilegum æfingarhóp fyrir einstaklinga 60 ára og eldri?
Við eigum en nokkur laus pláss í hópnum okkar sem æfir klukkan 08:45 á miðvikudögum og föstudögum. Við hvetjum alla áhugasama um að hafa samband en velkomið er að prófa æfingu.
Hægt er að hafa samband hér á facebook eða á netfangið [email protected]
Frísk í FH er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu FH. Starfsemin er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á að stuna líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara.
02/01/2025
Villt þú vera hluti af skemmtilegum æfingahóp fyrir einstaklinga 60 ára og eldri?
Frísk í FH er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu FH
Starfsemi Frísk í FH er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara.
Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2X í viku, fyrir hádegi á miðvikudögum og föstudögum kl 08:45, 09:30 eða 10:15.
Vorönn stendur yfir frá 8.janúar - 6.júní 2025 og fyrir þá sem vilja tryggja sér pláss þá höfum við opnað fyrir skráningu hér https://www.abler.io/shop/fh/frisk
Hægt verður að koma og prófa æfingar fyrstu vikuna í janúar en gott væri að fá að vita af því með því að senda okkur póst á [email protected] eða hér á facebooksíðu verkefnisins.
Annars viljum við óska öllum gleðilegrar hátíðar og hlökkum til að hefja næstu önn af krafti á nýju ári.
Hlökkum til að sjá ykkur 😀
27/12/2024
Villt þú vera hluti af skemmtilegum æfingahóp fyrir einstaklinga 60 ára og eldri?
Frísk í FH er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu FH
Starfsemi Frísk í FH er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara.
Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2X í viku, fyrir hádegi á miðvikudögum og föstudögum kl 08:45, 09:30 eða 10:15.
Vorönn stendur yfir frá 8.janúar - 6.júní 2025 og fyrir þá sem vilja tryggja sér pláss þá höfum við opnað fyrir skráningu hér https://www.abler.io/shop/fh/frisk
Hægt verður að koma og prófa æfingar fyrstu vikuna í janúar en gott væri að fá að vita af því með því að senda okkur póst á [email protected] eða hér á facebooksíðu verkefnisins.
Annars viljum við óska öllum gleðilegrar hátíðar og hlökkum til að hefja næstu önn af krafti á nýju ári.
Hlökkum til að sjá ykkur 😀
Abler | Shop
13/08/2024
Kynningarfundur klukkan 13:00 á morgunn í veilsusalnum Sjónarhóli í Kaplakrika. Ef þú villt skrá þig fyrir fundinn er það hægt hér: https://www.abler.io/shop/fh/frisk
Hlökkum til að sjá ykkur :)