04/06/2022
🔥 L E I K D A G U R 🔥
⚽️ HAUKAR - HK
🔴 Lengjudeild kvenna
🏟 Ásvellir
⏰ Klukkan 13
🍔 Geggjaðir hamborgarar frá Kjötkompaní
🔴 MÆTUM SNEMMA, FYLLUM ÁSVELLI OG HVETJUM HAUKA TIL SIGURS 🔴
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from mflhaukarkvk, Professional Sports Team, Hafnarfjörður.
04/06/2022
🔥 L E I K D A G U R 🔥
⚽️ HAUKAR - HK
🔴 Lengjudeild kvenna
🏟 Ásvellir
⏰ Klukkan 13
🍔 Geggjaðir hamborgarar frá Kjötkompaní
🔴 MÆTUM SNEMMA, FYLLUM ÁSVELLI OG HVETJUM HAUKA TIL SIGURS 🔴
20/05/2022
⚽️ HAUKAR - FYLKIR
🔴 Lengjudeild kvenna
🏟 Ásvellir
⏰ Föstudaginn 20.maí kl 19:15
🍔 Geggjaðir hamborgarar
🔴 MÆTUM Í RAUÐU OG HVETJUM HAUKA TIL SIGURS 🔴
05/05/2022
Íslandsmótið hefst í dag🥳🔥
⚽️ HAUKAR - FH
🍔 Hamborgarar á grillinu
Sjáumst á vellinum ❤️
ÁFRAM HAUKAR
🎟 Miðasala í Stubb og við innganginn. Einnig er hægt að kaupa ársmiða á frábæru verði í Stubb. Frítt inn fyrir Hauka í horni, iðkendur og börn 17 ára og yngri.
29/04/2022
GEGGJAÐUR 3-0 sigur á Fylki í Mjólkurbikarnum💥⚽️💪🏼
29/04/2022
MJÓLKURBIKAR Í KVÖLD🤩 hlökkum til að sjá ykkur í Árbænum! Áfram Haukar❤️
06/03/2022
Mikaela Nótt hefur undanfarna viku æft á Marbella á Spáni með LSK kvinner ⚽️🥳 Í dag kom hún við sögu í æfingaleik gegn Stabæk og fór LSK með 2-1 sigur af hólmi 🤩
05/02/2022
Kaldur en skemmtilegur leikur í gær á móti Þór/KA. Leikurinn fór 1-1 og skoraði eftir flotta stoðsendingu frá 🤩
Næsti leikur er fyrsti í Lengjubikarnum á móti HK þann 24.feb. 🤠
24/11/2021
😍😍😍😍
Anna Rut, Guðrún Inga, Ragnheiður og Rut semja við knattspyrnudeild Hauka
Fjórir leikmenn í 3. flokki kvenna hafa skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka til næstu þriggja ára en þær hafa verið valdar í yngri landslið síðustu misserin og fengið tækifæri til að æfa með meistaraflokki kvenna. Um er að ræða leikmenn sem eru hluti af stórum og efnilegum 2006 og 2007 árgöngum í knattspyrnudeild Hauka.
Anna Rut Ingadóttir er fædd árið 2006 og spilar jafnan sem hafsent en hún spilaði sinn fyrsta leik í meistaraflokki á síðasta tímabili í Lengjudeildinni. Anna var í síðasta úrtaki U16 ára landsliðs kvenna.
Guðrún Inga Gunnarsdóttir er fædd árið 2006 og spilar jafnan sem hægri kantur. Hún var einnig í síðasta úrtaki U16 ára landsliðs kvenna og kom inn á í æfingaleik með meistaraflokki gegn KR á dögunum þar sem hún átti góðan leik.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir er fædd árið 2007 og spilar jafnan sem framherji. Hún hefur fengið sín fyrstu tækifæri á æfingum með meistaraflokki í haust og kom inn á í sínum fyrsta leik gegn KR á dögunum þar sem hún skoraði eitt mark í 3-1 sigri, enn aðeins 13 ára gömul. Ragnheiður var í síðasta úrtaki U16 ára landsliðs kvenna.
Rut Sigurðardóttir er fædd árið 2007 og spilar sem miðjumaður. Hún hefur einnig fengið sín fyrstu tækifæri með meistaraflokki í haust og var í síðasta úrtaki U15 ára landsliðs kvenna.
Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar samningum við þær Önnu, Guðrúnu, Ragnheiði og Rut.
Mynd fv. Rut, Ragnheiður, Anna og Guðrún
Ljósm. Hulda Margrét ljósmyndari / photography
13/11/2021
Emily Armstrong hefur undirritað nýjan samning við knattspyrnufélag Hauka og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni á næsta tímabili 😍🤝
Emily er 28 ára markmaður og lék með Haukum á síðasta tímabili þar sem hún stóð sig mjög vel en hún er frá Bandaríkjunum. Þá lék hún með ÍBV í Pepsídeildinni 2018 þannig að hún er orðin mikill Íslandsvinur. Hún hefur einnig leikið í Svíþjóð í næst efstu deild þar, WPSL deildinni í USA og efstu deild í Noregi.
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir segir þetta vera frábær tíðindi. ,,Emily er mjög góður markvörður og því lögðum við ríka áherslu á að semja aftur við hana og þá er hún frábær manneskja sem fellur vel inn í hópinn.“
Að sögn Jónu á að styrkja hópinn enn frekar. ,,Við erum að leita að leikmönnum í ákveðnar stöður og karakterum sem passa vel með okkar ungu og efnilegum leikmönnum enda er það okkar markmið að búa til öflugt og skemmtilegt lið.“
Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagna nýjum samningi við Emily.
Ljósm.
12/11/2021
❤️🔥❤️🔥❤️🔥
Emily Armstrong hefur undirritað nýjan samning við knattspyrnufélag Hauka og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni á næsta tímabili.