21/06/2026
Jónsmessumóti lokið í flottu veðri og stemmingu.
Úrslit:
1. sæti á -5
Kjartan H. Einarsson, Jón Birgir Gunnarsson, Karl Johan Brune og Bragi Finnbogason.
2. sæti á -3
Þórður Dagsson, Arnar Svansson, Heiða Björk Norðdahl og Óskar Hrafn Ólafsson.
3. sæti á -1
Brynjar Ingólfsson, Magnús Sigurgeirsson, Jóhanna M Sveinsdóttir og Ingunn Sigurrós Bragadóttir.
18/06/2026
Minnum á Jónsmessumótið næsta laugardag 20. júní.
Nokkur sæti laus.
Mæting í síðasta lagi kl. 18:00 og ræst út af öllum teigum kl. 18:30.
Frábær veðurspá og hvetjum við ykkur til að fagna miðsumarstímanum með blómum eða einhverju skemmtilegu sprelli.
08/06/2026
Opna Vera Design mótið verður haldið laugardaginn 27. júní nk.
á Setbergsvelli.
Tveir forgjafarflokkar:
A-forgj. 01-24
B-forgj. 25-36
Glæsileg verðlaun frá Vera Design verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum, ásamt nándarverðlaunum á par 3 brautum.
Lovaiceland gefur teiggjafir.
Skráning í mótið hefst 12. júní.
Flottur matseðill í skálanum að leik loknum.
05/06/2026
Minnum á Glenmuir klúbbapeysurnar og bolina, merktu afmælisglösin og handklæðin, ásamt ýmsum nauðsynlegum golfvörum. Verð við myndirnar.
Allt til í litlu golfbúðinni okkar.
22/06/2025
Jónsmessumóti lokið í blautu veðri, en allir hressir og mikið gaman. Matur og dans í lokin.
-1. sæti:
Þorsteinn Erik Geirsson, Yngvi Bjarnason, Sigríður St. Sigurðardóttir og Gunnar Sigurðsson.
-2. sæti eftir bráðabana:
Þórður Dagsson, Eysteinn Einarsson, Sigurbjörn Þorsteinsson og Eyjólfur Kristjánsson.
-3. sæti:
Arnfríður I. Grétarsdóttir, Steingrímur Ólason, Heiðrún H. Gestsdóttir, Hákon Pétursson og Guðný Ósk Hauksdóttir.
Innilega til hamingju öll.
26/06/2024
Minnum félaga á merkta klúbbfatnaðinn sem er til sölu í ræsisskálanum.
Peysurnar sem eru frá hinu vinsæla merki Glenmuir eru úr 100% lambsull og kosta
kr. 15.900 og bolirnir frá Puma, hvítir og blágráir kosta kr. 7.600. Einnig fást merkt der sem kosta kr. 2.700.
12/07/2023
Vinsamlegast skiljið toppana af þessum eftir hjá Siggu í skálanum. Gerum átak í að hreinsa þá af vellinum því þeir eru útum allt.