04/07/2026
Úbbs þessi staður var víst upptekinn en þa er það bara að finna annan❤️ mér datt í hug hvort við gætum ekki bara verið þar sem hola 1 á frisbígolfvellinum er? Er þá lengst til hægri ef þið standið fyrir framan Kjarvalsstaði 🌞
04/07/2026
Jæææja 🌞 ég er komin á Klambratún 💃 fyrir aftan Kjarvalsstaði er þessi fíni dansstaður 💃❤️💃 hlakka til að sjá ykkur
03/07/2026
Góða kvöldið elsku bestu 💃💃💃 vonandi komast einhverjir að dansa á morgun ❤️ spáin er ennþá flott og því datt mér í hug hvort kl.12 á Klambratúni væri ekki kjörið? Endilega bjóðið vin/um með 💃❤️💃 Hlakka til að sjá ykkur 🌞
29/06/2026
Jæææja góðan daginn öll sömul 💃🌞
Zumbatímarnir mínir í Hörðuvallaskóla eru komnir í sumarfrí þar til í ágúst 🌞 Ég var aftur á móti búin að viðra þá hugmynd um að dansa úti einhvern sólríkan daginn 🌞
Það er ansi mikil rigning í kortunum en mér sýnist þó að það eigi að hanga þurrt og jafnvel vera smá sól á laugardaginn næsta þann 4.júlí😍 væruð þið til í að kommenta undir þennan póst ef þið hefðuð áhuga á að dansa þá?
11/06/2026
Hæhæ🌞
Heilsan er með mér í liði í dag svo við dönsum gleðina í gang í dag í Hörðuvallaskóla kl.17.15 💃
Átt ÞÚ nokkuð eftir að skrá ÞIG???
Zumba fitness með Ingu júní 2026
Tímarnir eru alla þriðjudaga og fimmtudaga kl.17.15 í sal Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Merktu við alla þá tíma sem þú ætlar að mæta í. Ef þú kemst ekki í tíma sem þú hefur skráð þig í vinsamlegast láttu vita með því að senda skilaboð á FB - Zumba fitness með Ingu ...
09/06/2026
Hæhæ elsku bestu ❤️
Ég lenti í því að fara óvart inn í myglað húsnæði um helgina (ég er með bráðamygluofnæmi) og er búin að vera veik síðan þá😪 ég hélt að ég væri orðin nógu hress til að kenna í dag en ég held að ég verði að vera skynsöm og hvíla í dag😵💫
Sjáumst vonandi sem flest hress á fimmtudaginn ❤️
04/06/2026
Hæ hó og jibbí jei það er kominn Júní 💃
Ætlar ÞÚ nokkuð að missa af danspartý af bestu gerð? Sé ykkur vonandi sem flest í Hörðuvallaskóla kl.17.15 í dag 💃
Hérna er hlekkur fyrir skráningu júnímánaðar
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfoodgE1Fkl8bxQKYDagdyHnkpA7iqikrQ8X9TA4MKLt4kgOg/viewform?usp=publish-editor
Zumba fer í frí EFTIR tímann fimmtudaginn 18.júní en ég geri ráð fyrir að byrja aftur vikuna 10.-14. ágúst 💃
Ég er með það í athugun hvort ég gæti fengið salinn frekar á mánudögum og miðvikudögum í haust en læt vita þegar ég veit meira um það 💃
Ef tækifæri verða til þess að dansa úti í sólinni í sumar er aldrei að vita nema ég smelli í popup tíma en þá borgar sig að fara inn á síðuna öðru hverju þar sem fólk virðist ekki alltaf fá tilkynningu frá fb þegar ég set inn pósta😵💫
Zumba fitness með Ingu júní 2026
Tímarnir eru alla þriðjudaga og fimmtudaga kl.17.15 í sal Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Merktu við alla þá tíma sem þú ætlar að mæta í. Ef þú kemst ekki í tíma sem þú hefur skráð þig í vinsamlegast láttu vita með því að senda skilaboð á FB - Zumba fitness með Ingu ...
02/06/2026
Zumba útkall 😍😍😍
Ætlar ÞÚ nokkuð að missa af zumba á eftir í Hörðuvallaskóla kl.17.15???
Öll velkomin eina sem þarf að hafa með sér er góða skapið 😍💃😍
Hlakka til að sjá ykkur 💃
01/06/2026
Góða kvöldið gleðipinnar 💃 þá er ég búin að hrista af mér þessa leiðindapest og get ekki beðið eftir því að dansa með ykkur á morgun 💃 ég á eftir að græja nýjan skráningarhlekk fyrir júní en endilega réttið.upp hönd hér undir ef þið ætlið ekki að missa af besta danspartýinu💃💃💃