Race Control

Race Control

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Race Control, Sports, Hafnarfjörður.

21/08/2026

Tímatökubúnaður frá Race Control er notaður í Rally Reykjavík. Á árinu hefur búnaðurinn verið notaður í öllum rallykeppnum til prófunar og aðlögunar en staðfestir tímar keppnanna hafa verið teknir með klukku. Búnaðurinn hefur reynst vel þrátt fyrir að sérleiðir séu margar á skuggasvæðum fyrir fjarskipti. Rásmark, endamark og millitímar eru mældir með sýndarhliðum.

16/08/2026

Kvartmíluklúbburinn notar mylaps tímatökukerfi á hringakstursbrautinni og það er notað á íslandsmóti í kappakstri sunnudaginn 16. ágúst. Einnig er keppt í Porsche Cup sem er bikarmót og verður tímatökubúnaður Race Control notaður í þeirri keppni. Race Control kerfið mælir tíma með sýndarhliðum og telur hringi í keppninni en getur auk þesss mælt: millitíma í braut, innkeyrslu í pitt, útkeyrslu úr pitti, innkeyrslu í Parc Ferme og útkeyrslu úr Parc Ferme.

Torfæra - Kappakstur 13/08/2026

Motul torfæran á Akureyri laugardaginn 15. ágúst
Stigin eru skráð í Race Control kerfinu og birtast jafnóðum á þessum tengli

Torfæra - Kappakstur Höfundarréttur © 2026 aðstandendur vefsins og þeir sem leggja til efni hverju sinni. Ljósmyndir (nema annað sé tekið fram) © B&B Kristinsson - Allur réttur áskilinn.

Photos from Race Control's post 01/08/2026

Dagatal AKÍS byggir á Race Control kerfinu

https://racecontrol.is/publish/nationalcalendar/list...

Þegar farið inn á dagatal AKÍS finnið þið upplýsingar um allar keppnir og viðburði sambandsins. Við hverja keppni eru tenglar þar sem auðvelt er að tengjast því sem tilheyrir keppninni. Þar er að finna tengil að frekari upplýsingum um keppnina og skráningu í keppnina, dagskrá keppninnar, hvar er keppnin haldin, leiðarupplýsingar með Google eða Apple. Þá eru tenglar að upplýsingatöflu, tímum og stigum keppninnar, aðgangur að beinni útsendingu og að keppni lokinni sömu upptöku ef það er aðgengilegt.

25/07/2026

Tímatökubúnaður frá Race Control er notaður í öllum rallykeppnum og er tímamæling um sýndarhlið framkvæmd með Race Control kerfinu.

25/07/2026

Kvartmíluklúbburinn rekur spyrnukeppnir sínar með Race Control kerfinu.

Photos from Race Control's post 25/07/2026

Um helgina nota keppnishaldarar skoðunarkerfi Race Control við keppnisskoðun í rally, spyrnu og rallycrossi.

Photos from Race Control's post 04/07/2026

Race Control er alhliða kerfi fyrir rekstur akstursíþróttakeppna. Í kerfinu er félagatal, tímatökubúnaður, stigaútreikningur, uppröðun, úrslit, samskiptakerfi, framsetning upplýsinga fyrir upptöku og útsendingar.

Photos from Race Control's post 31/05/2026

Stigakerfi fyrir torfæru er í Race Control kerfinu. Kerfið hefur verið notað við útreikninga stiga og framsetningu þeirra fyrir hverja þraut og heildarstöðu. Þá er notast við upplýsingar úr kerfinu til að sýna stig og stöðu í beinum útsendingum frá torfærukeppnum. Kerfið hefur verið notað á keppnum hjá BA og KK s.l. ár og nú í ár hafa UMF Hekla og Torfæruklúbburinn bæst í hópinn og nota kerfið í sínum keppnum.

Photos from Race Control's post 31/05/2026

Í Race Control kerfinu er skoðunarkerfi fyrir búnað keppnistækja og ökumanns. Kerfið er notað við keppnisskoðun hjá aðildarfélögum AKÍS í akstursíþróttum. Kerfið er þegar í notkun hjá Kvartmíluklúbbnum, Bílaklúbb Akureyrar, Torfæruklúbbnum, UMF Heklu og fleiri félög taka það í notkun þegar keppnishald hefst hjá þeim í sumar.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Hafnarfjörður
220