Tilkynning
Ingólfur Dan Guðjónsson ráðinn þjálfari hjá Blakfélagi Hafnarfjarðar.
Blakfélag Hafnarfjarðar hefur ráðið Ingólf Dan sem þjálfara hjá félaginu. Ingólfur býr yfir víðtækri reynslu í blaki, bæði sem leikmaður og þjálfari.
Ingó mun sjá um þjálfun á hópi 1 kvk og hópi 3 kk hjá okkur í vetur og hlakkar okkur mikið til að starfa með honum.
Ingólfur hóf þjálfun yngri flokka hjá HK og hefur síðan þjálfað á fjölbreyttum vettvangi, allt frá byrjendum og yngri flokkum, upp í meistaraflokka.
Ingólfur starfaði meðal annars sem aðstoðarþjálfari hjá Göteborg United í Svíþjóð og á árunum 2017-2020 stýrði hann meistaraflokki kvenna hjá Þrótti Reykjavík. Þar tók liðið miklum framförum undir hans stjórn og náði meðal annars 3. sæti í deild og komst í úrslitakeppni bikarkeppninnar. Á meðan Ingólfur starfaði hjá Þrótti var hann ítrekað tilnefndur sem besti þjálfari ársins og hlaut hann þau verðlaun fyrir tímabilið 2019-2020.
Sem leikmaður á Ingólfur langan og farsælan feril. Hann hefur orðið Íslands-, bikar-, og deildarmeistari með HK, bikarmeistari með Aftureldingu og þá lék hann með Göteborg United í sænsku Allsvenskan deildinni. Þá hefur hann leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og lék hann sinn fyrsta A-landsleik árið 2008.
Við bjóðum Ingólf hjartanlega velkominn til BFH og væntumst við mikils af honum.
Þá eru þjálfaramál félagsins á hreinu fyrir veturinn, en þau eru eins og hér segir:
Hópur 1 kvk: Ingólfur
Hópur 2 kvk: Michelle
Hópur 3 kvk: Mateusz
Byrjendur: Michelle
Hópur 1 kk: Sladjana
Hópur 2 kk: Sladjana
Hópur 3 kk: Ingólfur
Minions (U16&U20): Michelle
Krakkablak: Minions
Boltaskóli: Minions
Blakfélag Hafnarfjarðar
Blakfélag Hafnarfjarðar
20/08/2026
Blakfélag Hafnarfjarðar býður upp á skemmtilegt og metnaðarfullt blakstarf fyrir börn og unglinga í vetur! 🙌
Hér, á plakatinu fyrir neðan, eru uppfærðir æfingatímar og staðsetningar fyrir yngri hópana okkar.
Við erum með hópa fyrir:
🏐 U20
🏐 U16
🏐 Krakkablak
🏐 Boltaskóla
Hvort sem barnið hefur spilað áður eða er að stíga sín fyrstu skref í blaki þá eru allir velkomnir! 💙
📅 Æfingar hefjast 31. ágúst
📝 Skráning er hafin á Abler
Sjáið nánari upplýsingar um æfingatíma, staðsetningar og aldurshópa á plakatinu hér að neðan.
Við hlökkum til að sjá fullt af skemmtilegum krökkum og unglingum á vellinum í vetur! 🏐💙
18/08/2026
Góðan og blessaðan daginn fallega blakfólk! 😍
Æfingatafla vetrarins hefur nú verið birt og má sjá hana hér neðst í þessum pósti.
Við fórum inn í hönnun á æfingatöflunni með tvær forsendur í huga. Allir hópar myndu fá eina æfingu "snemma" og aðra æfingu "seinna" yfir daginn. Þá vildum við ekki heldur að hópar myndu æfa tvo daga í röð, fyrir utan Minions.
Á sunnudögum munu karlar og konur skipta með sér tímum eins og verið hefur. Aðra vikuna verða karlar frá klukkan 18:00-20:00 og konur þá frá 20:00-22:00. Þá næstu verða konur frá 18:00-20:00 og karlar þá frá 20:00-22:00.
Það var krefjandi að lenda á loka niðurstöðu fyrir æfingatöfluna en við trúum að þetta sé það besta sem við getum gert og vonum við að þessir tímar henti sem allra flestum💙
Þjálfaramál eru að skýrast. Akkúrat núna eru ekki komnir staðfestir þjálfarar fyrir hóp 1 kvk og hóp 3 kk, en viðræður við þjálfara eru komnar vel á veg og vonumst við til að geta tilkynnt þá á næstu dögum.
Michelle hefur verið með hóp 1 kvk undanfarið en þar sem hún hefur verið að hugsa um Minions hópinn okkar þá fannst okkur rétt lausn að hún myndi færa sig niður í hóp 2 kvk. Ástæðan er sú að partur af þeim hópi spilar í 5. deild Íslandsmótsins, rétt eins og Minions liðið okkar. Þá getur hún fylgt því liði ásamt Minions á Íslandsmót.
Annars eru þjálfaramálin okkar fyrir komandi vetur eftirfarandi:
Hópur 1 kvk - ??
Hópur 2 kvk - Michelle
Hópur 3 kvk - Mateusz
Byrjendur kvk - Michelle
Minions - Michelle
Krakkablak - Minions
Boltaskóli - Minions
Hópur 1 kk - Sladjana
Hópur 2 kk - Sladjana
Hópur 3 kk - ??
Við höfum fengið að vita hvenær túrneringar á Íslandsmóti fara fram og hvar þær verða haldnar. Þetta eru þrjár helgar: 13.-15. nóvember, 5.-7. febrúar og 12.-14. mars.
Sjá má hér fyrir neðan hvar þær verða haldnar hverju sinni, við munum að sjálfsögðu halda ykkur upplýstum þegar ákveðið verður hvar keppt verður á þeim helgum sem enn er óákveðið. Við mælum með að liðsmenn fari að huga að gistiplássum þegar fyrir þær helgar sem keppt verður úti á landi :)
17/08/2026
Blakfélag Hafnarfjarðar býður upp á skemmtilegt og metnaðarfullt blakstarf fyrir börn og unglinga í vetur! 🙌
Við erum með hópa fyrir:
🏐 U20
🏐 U16
🏐 Krakkablak
🏐 Boltaskóla
Hvort sem barnið hefur spilað áður eða er að stíga sín fyrstu skref í blaki þá eru allir velkomnir! 💙
📅 Æfingar hefjast 31. ágúst
📝 Skráning er hafin á Abler
Sjáið nánari upplýsingar um æfingatíma, staðsetningar og aldurshópa á plakatinu hér að neðan.
Við hlökkum til að sjá fullt af skemmtilegum krökkum og unglingum á vellinum í vetur! 🏐💙
14/08/2026
🏐 Blakveturinn er að byrja! 🏐
Ertu búin að bíða eftir að komast aftur á völlinn? Eða hefur þig alltaf langað að prófa blak en ekki látið verða af því? Nú er rétti tíminn!
Blakfélag Hafnarfjarðar byrjar blakveturinn 23. ágúst og eru öll velkomin – hvort sem þú ert algjör byrjandi, með smá reynslu eða ert búin að spila í mörg ár. 💥
Sunnudagurinn 23.ágúst á Ásvöllum (hvort sem þú ert byrjandi eða ekki):
Karlar frá 18:00-20:00
Konur frá 20:00-22:00
Við bjóðum einnig upp á æfingar fyrir unglinga 🙌
Ef þig langar í góða hreyfingu, kynnast skemmtilegu fólki og ert með smá keppnisskap – komdu og vertu með! 🏐
Skráning er hafin á Abler! 💙
Nánari upplýsingar hér að neðan og svo er auðvitað hægt að senda okkur línu!👇
Góðan daginn og gleðilegt blak haust! 🏐
Við höfum verið að fá nokkrar fyrirspurnir varðandi þjálfaramál fyrir næsta tímabil og okkur langar að setja hér fram hvernig þau verða.
1. deild kvk - Michelle
Hópur 1 kvk - Michelle
Hópur 2 kvk - ??
Hópur 3 kvk - Mateusz
Byrjendur kvk - Michelle
Minions - Michelle
Hópur 1 kk - Sladjana
Hópur 2 kk - Sladjana
Hópur 3 kk - ??
Vegna óviðráðanlegra ástæðna mun Joanna ekki vera áfram með hóp 2 kvk. Unnið er hörðum höndum að því að fá nýjan þjálfara fyrir þann hóp sem og fyrir nýja karlahópinn okkar, hóp 3 kk.
Við viljum nýta tækifærið og þakka Jo kærlega fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og óskum við henni velfarnaðar á komandi tímum.
Við munum birta upplýsingar um þjálfara fyrir þessa tvo hópa um leið og ráðið hefur verið í stöðuna og þá munum við einnig birta æfingatöflu vetrarins á allra næstu dögum.
Stefnt er að því að hafa fyrstu æfingu tímabilsins annaðhvort sunnudaginn 23. ágúst eða 30. ágúst. Við látum vita hvor dagsetningin verður fyrir valinu þegar við vitum það sjálf 🙂
Svo er verið að plana allsherjar Start of Season Party sem haldið verður í september, það verður nánar auglýst síðar! 🍻🍾
Vá hvað við erum spennt að byrja aftur í blakinu með ykkur!
19/05/2026
🤍💙Ótrúlega stoltar af þessum stelpum! 🤩
Um helgina tóku stelpurnar okkar bronsið í sínum flokki á U20 Íslandsmótinu í Kópavogi — fyrstu verðlaun sem unglingastarf Blakfélags Hafnarfjarðar hefur nokkurn tímann unnið! Algjörlega frábær árangur. ✨
Við gætum ekki verið stoltari af framförum og liðsandanum hjá stelpunum 🏐
Við erum ótrúlega spennt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir þennan frábæra hóp! 💫
Innilegar hamingjuóskir til stelpnanna og þjálfarans — og kærar þakkir til foreldra og stjórnar fyrir allan stuðninginn! 💙🤍
10/01/2026
Frábær liðssigur hjá 1.deildinni okkar! 💪🔥
Stelpurnar okkar tryggðu sér glæsilegan 3–2 sigur í 1. deild gegn Ými á Digranesi á miðvikudagskvöldið. Alvöru barátta og frábær liðsheild! 🏐💙🤍
En gamanið er rétt að byrja…🤯🥳
Um helgina munu neðri deildirnar okkar keppa í 2. umferð Íslandsmótsins –
👉 3 karlalið 💃🏼
👉 6 kvennalið 🕺🏼
Leikarnir hefjast! 💥🙌
23/11/2025
💙🤍Frábær liðssigur hjá stelpunum okkar í 1. deild í kvöld – 3–1 á móti Fylki! 🔥💙🤍
Næsti leikur:
📅 Föstudagur 5. Desember
⏰ 20:00
📍 Digranes
🆚 HK U
🥳
Sjáumst á vellinum 🏐 Mætum og styðjum liðið! 💪
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Address
Hafnarfjörður
Opening Hours
| Monday | 17:00 - 22:00 |
| Tuesday | 17:00 - 20:00 |
| Wednesday | 17:00 - 20:00 |
| Thursday | 17:00 - 22:00 |
| Friday | 17:00 - 20:00 |
| Sunday | 20:00 - 22:00 |